Morgunblaðið - 27.07.2021, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI
Esther Hallsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
Um hádegi í gær voru 609 einstak-
lingar með virk Covid-19-smit undir
eftirliti Covid-göngudeildar Land-
spítalans. Þar af voru 62 börn. Þrír
smitaðir lágu á legudeildum Land-
spítalans en enginn var á gjörgæslu
eða í öndunarvél.
Göngudeild Co-
vid-19 notar lita-
merkingar til að
flokka sjúklinga
eftir einkennum.
Af þessum 609
upp úr hádegi í
gær voru 593 ein-
staklingar merkt-
ir grænir, það er
með engin eða
væg einkenni, og
16 einstaklingar merktir gulir, það er
með miðlungs alvarleg einkenni.
Enginn var merktur rauður, eða með
alvarleg einkenni. Þeir þrír sem eru á
spítala eru ekki inni í þessum tölum.
45 einstaklingar í áhættuhópum
eru með virk smit en flestir þeirra eru
enn sem komið er með væg eða engin
einkenni og því merktir grænir.
„45 einstaklingar sem eru í eftirliti
hjá okkur eru með undirliggjandi
áhættuþætti. Margir þeirra flokkast
grænir byggt á einkennum. Við erum
að bíða og sjá hvernig þeim reiðir af í
gegnum þetta ferli. Alvarleg einkenni
koma ekki fram fyrr en eftir vikutíma
og því er þessi óvissa áfram. Eftir því
sem tíminn líður fáum við skýrari
mynd af því hvernig þessu fólki reiðir
af,“ segir Runólfur Pálsson, yfirmað-
ur Covid-göngudeildar Landspítala.
Smit greinst víða
Smit hafa greinst víða í samfélag-
inu á undanförnum dögum. Hópur 40
einstaklinga sem komu til landsins í
sömu flugvél frá grísku eyjunni Krít í
síðustu viku hefur nú greinst smitað-
ur. Í vélinni voru útskriftarnemar frá
Flensborgarskólanum en að minnsta
kosti 30 þeirra smituðust.
Ekki er vitað hversu margir hinna
10 sem nú hafa greinst voru í útskrift-
arhópnum, en með þeim í flugvélinni
til Íslands voru einnig einstaklingar
sem tengdust ekki hópnum. Allir far-
þegar vélarinnar voru sendir í sóttkví.
Reglum um sóttkví hefur nú verið
breytt svo að bólusettir einstaklingar
þurfa einnig að fara í sóttkví hafi þeir
umgengist einstakling sem reynist
smitaður. Áður þurftu bólusettir ein-
göngu að fara í sóttkví ef umgengnin
var veruleg.
Runólfur segir nokkuð álag á
göngudeildinni sem hefur eftirlit með
fólki sem er smitað.
„Já, þetta hefur verið svo bratt,
þessi mikla fjölgun. Við þurfum að
meta alla með símtali sem tekur tíma.
Það þarf að fá mikið af upplýsingum.
Þannig höfum við getað lagt mat á
ástand fólksins og áhættu þannig að
það er tímafrekt. Svo eru ýmis önnur
verkefni, sýnatökur og annað. Svo
kemur einn og einn til skoðunar, við
skoðum þessa gulu, en það hefur ekki
leitt til fleiri innlagna síðustu daga,“
segir Runólfur. Engar innlagnir eru
yfirvofandi sem stendur.
Þrettán starfsmenn Landspítalans
voru í einangrun í gær vegna
Covid-19, 27 í sóttkví og 244 starfs-
menn í vinnusóttkví. Búist er við að
starfsfólki í vinnusóttkví muni fjölga
þegar niðurstöður úr fleiri skimunum
berast.
Síðustu helgi greindust smit hjá
starfsmönnum spítalans í nokkrum
starfseiningum. Starfsmennirnir
virðast hafa smitast annars staðar og
ekki hefur enn greinst smit út frá
þessum smitum innan spítalans.
„Rakning er langt komin, enginn
grunur er um smit út frá þessum
smitum enn þá en nokkur fjöldi
starfsmanna og sjúklinga fer í
sóttkví, annars vegar sóttkví A og
hins vegar vinnusóttkví. Einnig er
skimað í kringum þessi smit að
venju,“ segir í tilkynningu frá spít-
alanum.
593 með lítil eða engin einkenni
2
6 4 3
9
17
14
24
16 16
44
57
78
85
96
89
71
Fjöldi innanlandssmita
frá 28. febrúar 2020
Heildarfjöldi
smita frá
9. júlí 2021
Heimild: covid.is
Heimild: LSH 26. júlí kl. 14.30
253.666 einstak-
lingar
eru fullbólusettir en alls
267.830 hafa fengið
að minnsta kosti
einn skammt
71 nýtt innanlands-
smit greindist
sl. sólarhring
1.072 eru í skimunar-
sóttkví
1.805 einstaklingar
eru í sóttkví
Innanlandssmit
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
Skimun á
landamærum
9. júlí 10. júlí 11. júlí 12. júlí 13. júlí 14. júlí 15. júlí 16. júlí 17. júlí 18. júlí 19. júlí 20. júlí 21. júlí 22. júlí 23. júlí 24. júlí 25. júlí2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH
609 einstaklingar
eru undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
Væg eða engin einkenni
Aukin einkenni
Alvarlegri einkenni, s.s.
mikil andþyngsli og hár hiti
10 7 6 7 9
24
43
52
57
62
71
53
120
100
80
60
40
20
0
24.mars 2020
106 smit 5. október 2020
100 smit
23. júlí 2021
95 smit
7.304
staðfest smit alls
Runólfur
Pálsson
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Farsóttarhús Gestum þar fjölgar stöðugt og margir eru í einangrun.
- 609 einstaklingar voru undir eftirliti Covid-göngudeildar í gær, þar af 62 börn - Smitum heldur
áfram að fjölga en langflestir með lítil eða engin einkenni - Þrír sjúklingar á legudeildum Landspítala
Á miðnætti í nótt tóku gildi nýjar
reglur á landamærunum vegna
Covid-19. Allir bólusettir ein-
staklingar og þeir sem eru með
staðfesta fyrri sýkingu sem eru á
leið til Íslands þurfa að framvísa
neikvæðu Covid-prófi sem var
tekið á síðustu 72 klukkustund-
um. Prófinu er framvísað við
byrðingu, það er áður en farið er
um borð í flugvélina. Það má
bæði vera PCR-próf og svokallað
antigen-próf, það er hraðpróf.
Auk þessa er tilmælum beint
til þeirra sem eru búsettir á Ís-
landi eða eiga tengslanet hér á
landi að fara í sýnatöku hér strax
eftir komuna til landsins, þó að
þeir séu einkennalausir.
Þeir sem eru ekki bólusettir
né hafa vottorð um staðfesta
fyrri sýkingu munu til viðbótar
við að framvísa neikvæðu Covid-
prófi áfram þurfa að fara í tvær skimanir með fimm daga sóttkví á milli
skimana við komuna til landsins.
Börn fædd 2005 eða síðar eru undanþegin öllum aðgerðum á landa-
mærum.
Reglurnar voru settar samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra á
grundvelli minnisblaðs sóttvarnalæknis. Fram kemur í tilkynningu frá
Stjórnarráðinu að í minnisblaði sóttvarnalæknis segi að Covid-19-smitum
hafi fjölgað verulega hér á landi undanfarið. esther@mbl.is
Farþegar skili neikvæðu prófi
NÝJAR REGLUR Í GILDI Á LANDAMÆRUNUM
Leifsstöð Eftirlit verður aukið með farþeg-
um sem koma hingað til lands.
Morgunblaðið/Eggert
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er í
tilkynningu, sem send var út í
gær, hvatt til þess að virða
nálægðarreglur og nota grímu
við umönnun og þjónustustörf.
Unnið er að gerð frekari áætlana
um fyrirkomulag á starfsemi
borgarinnar sem tekur mið af
nýrri stöðu í baráttunni við
Covid-19.
Fá smit hafa komið upp hjá íbú-
um heimila sem rekin eru af vel-
ferðarsviði borgarinnar. Talið er
líklegt að sú staða sem nú er
komin upp, það er fjöldatakmörk
og ýmsar hömlur í samskiptum,
hafi áhrif fram yfir 13. ágúst, það
er þann tíma sem reglugerð sem
ríkisstjórnin setti fyrir helgina
gildir. Því er unnið að gerð áætl-
ana fyrir starfsemi skóla, íþrótta-
starf, þjónustu velferðarsviðs og
fleira. Sú áætlun tekur gildi í
næstu viku þegar starfsemi eykst
eftir sumarleyfi. Starfsemi fjög-
urra leikskóla, sem eru með fulla
starfsemi nú, er með eðlilegu
sniði.
Vel hefur gengið að starfa eftir
fjöldatakmörkunum í sundlaug-
um. Þá er verið að skoða hvernig
staðið verði að menningarnótt.
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar
starfar nú á hættustigi og gefur
út leiðbeiningar skv. almanna-
varnastigi. Markmiðið er að þjón-
usta borgarinnar skerðist eins lít-
ið og mögulegt er.
Neyðarstjórn Reykjavíkur-
borgar starfar nú á hættustigi
- Grímur við umönnun - Menningarnóttin er í skoðun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykavík Aðstæður sem veiran
skapar breytast oft mjög hratt.