Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Sjúkraflutningum vegna Covid-19 hefur fjölgað umtalsvert á und- anförnum dögum. Slökkvilið höf- uðborgarsvæðisins hefur sinnt að meðaltali 25 flutningum á sólar- hring vegna kórónuveirunnar síð- ustu daga en á sunnudaginn voru þeir 43. Alls voru sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu 116 þann dag. Jón Viðar Matthíasson, slökkvi- liðsstjóri Slökkviliðsins á höf- uðborgarsvæðinu, segir ástæðuna þá að verið sé að flytja smitaða einstaklinga sem eru í einangrun á Covid-göngudeildina til frekari skoðunar og eftirlits. „Sumir koma jafnvel á eigin vegum en aðrir þurfa aðstoð við að komast á göngudeildina og þá höf- um við verið að flytja viðkomandi. Það er mismunandi ástand á sjúk- lingunum,“ segir hann. Einhverjir hafa í kjölfarið þurft að leggjast inn á spítalann en flestir eru flutt- ir heim á ný. Þannig geta ferð- irnar verið tvær vegna sama ein- staklings. Alls liggja nú þrír á spítala vegna Covid-19. „Það er mjög gott eftirlit með þeim sem eru að veikjast en það kallar á aukna sjúkraflutninga í leiðinni,“ segir hann. Flutningar aukist almennt Jón Viðar segir sjúkraflutninga hafa aukist almennt síðustu miss- erin og Covid hafi bæst ofan á það. „Að fara yfir 100 flutninga á sólar- hring var mikið fyrir nokkrum misserum síðan. Því miður er það orðin undantekning núna. Það er ekki bara vegna Covid heldur er flutningum almennt að fjölga í samfélaginu.“ Hann segir fjölgunina í takt við aukið álag á heilbrigðiskerfið. „Það hefur verið mikið að gera á sjúkrahúsum og mikið álag á heil- brigðiskerfið almennt og þegar svo er þá eykst álagið hjá okkur líka.“ Í langflestum tilfellum þarf að þrífa sjúkrabílana mjög vel á milli sjúklinga og getur það tekið nokk- urn tíma. Jón Viðar segir mikið álag á starfseminni þessa stund- ina. „Það eru náttúrulega sumarfrí í gangi og menn eru að reyna að koma til móts við starfsfólk þannig að það geti farið í frí og hvílt sig eftir átökin sem eru búin að vera fram til þessa. Þetta hefur gengið allt í lagi þannig séð, en það er mikið álag og stundum er kannski bið eftir flutningi og flutningar sem mega bíða, bíða örlítið lengur en á venjulegum tímum. Það er þá gert í samvinnu við sjúklinginn og spítalann. Það er mjög mikið álag á kerfinu og við höfum verið að kalla inn fólk í aukavinnu til að ná að glíma við þetta.“ Fylgjast grannt með þróuninni Spurður hvort þurfi að gera ráð- stafanir og fjölga fólki í ljósi stöð- unnar segir Jón Viðar að þau fylg- ist grannt með þróun mála. „Við erum mjög vakandi yfir þessu, fylgjumst með þessum flutningum mjög náið og þurfum náttúrlega að grípa inn í,“ segir hann. „Eins og hefur komið fram hjá ráðamönnum þá áttu menn von á því þegar þetta byrjaði að þetta væri átaksverkefni í einhverjar vikur eða mánuði. Svo teygðist alltaf á þessu og svo náttúrlega vonuðu menn að þetta væri búið núna í vor, en það virðist aldeilis ekki hafa gengið eftir. Þannig að við erum bara á svip- uðum stað og allir aðrir, að máta okkur inn í þetta og hvort þetta sé orðið viðvarandi ástand sem við þurfum þá að gera frekari ráðstaf- anir gagnvart.“ 25 Covid-sjúkraflutningar á dag - Sjúkraflutningum fjölgar ört á höfuðborgarsvæðinu - Aukið álag vegna Covid-flutninga - Smit- aðir eru fluttir á göngudeild til skoðunar - „Mjög mikið álag á kerfinu,“ segir slökkviliðsstjóri Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjúkraflutningar Mikil vinna fer í það að sótthreinsa sjúkrabílana eftir hvern Covid-flutning. Á sunnudag voru 43 Covid-flutningar. Álag Jón Viðar Matthíasson, slökkvi- liðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Þjóðhátíð 2021 verður frestað og er áætlað að hún verði haldin í ein- hverri mynd í lok sumars. Áætlað er að endanleg ákvörðun muni liggja fyrir í síðasta lagi 14. ágúst. Þetta kom fram í tilkynningu þjóðhátíðarnefndar í gærkvöldi. „Það er okkar trú að hægt verði að halda hátíðina í einhverri mynd síðar í sumar,“ segir í tilkynning- unni en þar er auk þess talað um mikilvægi hátíðarinnar fyrir barna- og unglingastarf ÍBV. Þrír valkostir Fólk sem á miða á Þjóðhátíð mun standa frammi fyrir þremur kost- um: Að fá miðann endurgreiddan, flytja miðann yfir á Þjóðhátíð 2022 eða einfaldlega styrkja ÍBV um andvirði miðans. Endurgreiðslur á þjóðhátíðarmið- um munu hefjast í upphafi ágúst- mánaðar, en endurgreiðsla á miðum í Herjólf sem voru keyptir á dal- urinn.is fylgja beiðnum um endur- greiðslu á miðum. Þeir sem vilja aftur á móti enn þá ferðast til Eyja um verslunarmannahelgina eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að gera nýja bókun, segir í tilkynningunni. Mikil óvissa hefur ríkt um Þjóðhátíð 2021 síðustu vikur í kjöl- far hækkaðrar tíðni kórónuveiru- smita en ljóst var á föstudaginn þegar tilkynnt var um nýjar tak- markanir innanlands að hátíðin myndi ekki fara fram á þeim tíma og í þeirri mynd sem áætlað hefur verið hingað til. Þó mun dagskrá sunnudags- kvöldsins 1. ágúst fara fram sem streymisviðburður en þar á meðal er brekkusöngurinn frægi. Þjóðhátíð gæti orðið síðsumars - Brekkusöngnum verður þó streymt Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Söngur Þjóhátíð í Heimaey var síð- ast 2019. Ætli hún verði aftur í ár?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.