Morgunblaðið - 27.07.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 27.07.2021, Síða 8
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson ar brúar, sem verður 260 metra löng og tvíbreið að sjálfsögðu. Liggur nýi vegurinn frá Kinn- arstöðum að Þórisstöðum. Mun þessi framkvæmd stytta Vest- fjarðaveginn um níu kílómetra. Suðurverk áætlar að efnisöflun í veginn sé um 350 þúsund rúmmetr- ar. Áætlað er að smíði brúar og frá- gangi við hana verði lokið í lok september á næsta ári. Verkinu öllu á síðan að ljúka í júní 2024. Þorskafjörður þver- aður með nýrri brú Framkvæmdir við þverun Þorska- fjarðar á sunnanverðum Vest- fjörðum standa nú yfir á fullu. Unn- ið er við að fergja botn fjarðarsins, sem er mikil vinna. Suðurverk er aðalverktakinn en tilboð þeirra upp á rúma tvo millj- arða króna var lægst í útboði Vega- gerðarinnar. Um er að ræða 2,7 km langan kafla yfir fjörðinn og um Gufudals- sveit. Stór hluti verksins er smíði nýrr- 8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is BÍLASTÆÐALAUSNIR Kantsteinarnir Langhólmi og Borgarhólmi einfalda merkingu bílastæða og afmörkun akstursleiða Ýmsir hafa lýst vonbrigðum yfir því að bólusetningar hafi ekki virkað betur á kór- ónuveiruna en svo að Delta-afbrigði hennar hefur dreift sér hér á landi. Þetta eru vissulega vonbrigði en breytir því ekki að bólu- setningin virðist virka vel að því leyti að koma í veg fyrir alvarleg veikindi, sem hlýtur að vera helsta markmiðið með bólu- setningu og öðrum sóttvarnaað- gerðum. - - - Björn Bjarnason skrifar um veir- una á vef sinn og leggur út af grein eftir Klaus Dohm, vísinda- blaðamann á Jyllands-Posten, um nauðsyn þess að hjarðónæmi mynd- ist gegn kórónuveirunni í Dan- mörku. Það hvenær hjarðónæmi náist fari eftir því hve smitandi veiran sé og hve öfluga vörn bólu- setningin veiti. Áður hafi í Dan- mörku verið talið að 70% þjóð- arinnar þyrfti bólusetningu til að skapa hjarðónæmi en þetta hlutfall hafi síðan verið hækkað í ljósi reynslunnar. - - - Þetta sé vegna þess að Delta- afbrigðið breiðist hraðar út en fyrri afbrigði, en án eins alvarlegra veikinda. Nú sé í Danmörku talið að bólusetja þurfi um 86% íbúanna, sem feli í sér að bólusetja þurfi 12 ára og eldri. Ætlunin sé að ná þessu marki í haust. - - - Björn bendir á að færri séu bólu- settir hér á landi og spyr hve- nær markið verði sett jafn hátt hér. „Eina úrræðið sem dugar er aukin bólusetning og Bandaríkjamenn búa sig nú undir þriðja skammt af tveggja stungu bóluefnum. Íslensk stjórnvöld ættu að grípa til sama ráðs og ekki bíða eftir ESB,“ segir Björn. Björn Bjarnason Er þörf á þriðju stungu? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórn Viðreisnar samþykkti á fimmtudag tillögur sem snúa að breytingum á reglum um innra starf flokksins og verður prófkjör fram- vegis meginregla innan flokksins. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Benedikt Jóhannesson, fyrrv. for- maður og einn af stofnendum Við- reisnar, birti á facebook-síðu sinni. Þar segir einnig að fyrir skömmu hafi verið stofnað málfundafélagið Endurreisn sem berjist fyrir heiðar- leika, góðum stjórnarháttum, dreng- lyndi í stjórnmálum, frelsi, jafnrétti, stöðugu efnahagslífi og réttlæti. Var Benedikt kjörinn formaður félags- ins. „Nú hefur náðst samkomulag um að Endurreisn verði félag innan Viðreisnar, horft sé fram á veginn og allir félagar berjist innan Viðreisnar fyrir hugsjónum flokksins,“ segir þar enn fremur. Formaður flokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segist í tilkynningunni ánægð með að jafn öflugur liðsmaður og Bene- dikt muni áfram starfa með flokkn- um. „Við höfum sameiginlega sýn á það hvernig gera má íslenskt sam- félag betra og ég hef fulla trú á því að saman eigum við eftir að gera flokk- inn sterkari,“ segir Þorgerður Katr- ín. Benedikt kveðst ánægður með niðurstöðuna og nú skipti máli að snúa bökum saman. Samkomulag innan Viðreisnar - Benedikt kjörinn formaður Endur- reisnar sem starfar innan Viðreisnar Morgunblaðið/Eggert Samkomulag Benedikt Jóhann- esson og Þorgerður Katrín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.