Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.07.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Sumarvertíð er hafin á Þórshöfn en Heimaey kom að landi seint á sunnudagskvöld með fyrsta makríl- farminn, um 1.000 tonn, sem veiddist austarlega í síldarsmugunni. Nokkuð löng sigling er frá mið- unum, um 34 tímar, og þar hefur verið þokusúld svo sólardagur á Þórshöfn var áhöfninni kærkominn. Veiðin var ekkert sérstök en Sigurður dældi sín- um afla yfir í Heimaey og þetta er þokkalegur mak- ríll. Að sögn Siggeirs Stefánssonar, hjá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórshöfn, hefur mönnun gengið vel og er mikið til sama fólkið og var á vertíðinni í fyrra. Viðvarandi húsnæðisskortur er á Þórshöfn sem er hamlandi fyrir bæinn að öllu leyti og sést einkum vel þegar vertíð kallar á meiri mannskap sem þarf þak yfir höfuðið. Sigurður og Álsey eru á miðunum í síldarsmug- unni og var Sigurður kominn með um 500 rúm- metra í gærmorgun. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Heimaey VE landar fyrsta makrílfarminum á Þórshöfn í upphafi vertíðar. Vertíðin hafin á Þórshöfn - Heimaey kom með fyrsta farminn, um þúsund tonn Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er júlí núna og kjarasamning- arnir koma til endurskoðunar í sept- ember. Við eigum eftir að taka þessa umræðu í okkar hópi og ætlum okk- ur ágúst í það,“ segir Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Hún var spurð hvort hún tæki undir sjónarmið Ragnars Þórs Ing- ólfssonar, formanns VR, í Morgun- blaðinu í gær. Þar sagði hann m.a. að nú væri ekki mikil stemning, hvorki í samfélaginu né innan verkalýðs- hreyfingarinnar, fyrir átökum eða aðgerðum sem ykju á óvissuna í þjóðfélaginu samhliða fjölgun smita. Drífa bendir á að stemning geti breyst mikið á milli mánaða. Hún var ekki tilbúin til að gefa neitt út um þetta núna. En hvað segir hún um væntanlegar launakröfur? „Barátta verkalýðshreyfingarinn- ar snýst um aukin lífsgæði og aukinn kaupmátt. Það er hægt að tryggja kaupmáttinn með launahækkunum, með því að stemma stigu við vaxta- hækkunum eða að halda vöxtum lág- um. Húsnæðiskostnaðurinn kemur einnig mjög sterkt inn,“ segir Drífa. Spurður um atvinnuleysi kvaðst Ragnar reikna með að atvinnustigið og breytingar á störfum í kjölfar „fjórðu iðnbyltingarinnar“ yrðu fyr- irferðarmikil í næstu samningum. Hann minntist á styttingu vinnuvik- unnar í því sambandi. Drífa telur að stytting vinnuvikunnar hafi heilt yfir gengið ágætlega á almenna vinnu- markaðinum. „Það er ljóst að þetta er fyrsta skrefið í vegferð sem við erum að hefja,“ segir Drífa. „Það er tvennt í sambandi við „fjórðu iðnbyltinguna“ sem þarf að huga að. Það er að fram- leiðniaukning skili sér í auknum lífs- gæðum eða styttri vinnutíma. Á þinginu okkar í haust ætlum við að ræða sérstaklega um réttlát um- skipti. Hvernig við tryggjum að góð störf verði til þegar öðrum fækkar. Eins að fólk eigi kost á endurmennt- un til nýrra starfa.“ Hún kveðst ekki óttast að lang- tímaatvinnuleysi festist almennt í sessi, en sú hætta sé fyrir hendi hjá ákveðnum hópum. „Ég tel ástæðu til að hafa áhyggjur af ungu fólki sem hugsanlega mun eiga erfitt með að komast aftur inn á vinnumarkaðinn úr atvinnuleysi,“ segir Drífa. Hún nefnir að ákveðinn hópur ungs fólks hafi setið eftir þegar atvinnuleysis- tímabilinu eftir hrunið lauk. Þeim hópi þurfi að mæta með virknitrygg- ingu – ýmist framfærslu, námi eða stuðningi við ný störf. Jafna þarf aðstöðumuninn Spurður um sjónarmið Ragnars Þórs, formanns VR, segir Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar – stéttarfélags, ekki hægt að horfa fram hjá því að við höfum gengið í gegnum heimsfaraldur. „Þjóðfélagið hefur gengið í gegn- um mikla lægð og einhverjar greinar atvinnulífsins skrölt einhvern veginn áfram en aðrar hafa gengið ágæt- lega. Ég held að nú snúist málið mik- ið um að halda sjó,“ segir Aðal- steinn. Varðandi væntanlega kröfugerð segir hann að kaupmátt- inn þurfi að verja og bæta. Hann tel- ur einnig tímabært að taka inn í kjaraviðræður þá miklu mismunun sem íbúar landsbyggðarinnar búa við varðandi ýmsa opinbera þjón- ustu samanborið við íbúa þéttbýl- ustu svæðanna. „Stjórnvöld hafa staðið fyrir mjög mikilli samþjöppun þjónustu eins og sérhæfðrar læknisþjónustu og sér- hæfðs náms eins og t.d. á háskóla- stigi. Þessi þjónusta er nú einkum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Hún er orðin mjög dýr fyrir okkur sem búum annars staðar. Ég hef komið því á framfæri við ASÍ að það þurfi að ræða þann mikla kostnað sem við þurfum að leggja út til að njóta þessarar þjónustu,“ segir Aðalsteinn og telur að það geti kom- ið mörgum betur að það verði tekið á þessari fjárhagslegu mismunun fremur en tiltekin launahækkun. Aðalsteinn kveðst ekki óttast að umtalsvert atvinnuleysi sé að festast hér í sessi. „Við höfum alla burði til að efla ferðaþjónustu og grænan iðn- að. Það eru líka mörg tækifæri í kringum sjávarútveg og landbúnað. Ég sé ekki fyrir mér að atvinnuleysi á Íslandi muni aukast.“ Hann minnir á að hingað hafi ver- ið fluttar þúsundir erlendra starfs- manna til að mæta þörf fyrir vinnu- afl. Enn er verið að flytja inn starfsfólk. Því þurfi ekki að vera atvinnuleysi hér þegar við verðum komin í gegnum heimsfaraldurinn og afleiðingar hans. „Við þurfum að kalla eftir meiri stöðugleika og að þörfinni fyrir vinnuafl verði fyrst og fremst mætt með þeim sem búa hér. Svo verði leitað út fyrir landsteinana ef mæta þarf einhverjum toppum í atvinnulífinu,“ segir Aðalsteinn. Áfram þarf að tryggja kaupmáttinn - ASÍ skoðar stöðuna varðandi lífskjarasamning í ágúst - Ákvarðanir stjórnvalda sagðar valda mis- munun eftir búsetu vegna kostnaðar við að nota opinbera þjónustu - Óttast ekki langtímaatvinnuleysi Morgunblaðið/Hari Lífskjarasamningurinn Samtök atvinnurekenda og fulltrúar fjölda verkalýðsfélaga skrifuðu undir í apríl 2019. Aðalsteinn Árni Baldursson Drífa Snædal Vinningsmiði í lottó upp á 54,5 milljónir króna var keyptur fyrir um einum og hálfum mánuði á N1 í Mosfellsbæ. Síðan þá hefur verið reynt að hafa uppi á sig- urvegaranum, sem ekki hefur skilað árangri fyrr en nú. Maðurinn, eða „kærulausi lottó- spilarinn“ eins og hann kallar sig, fékk um daginn lánaðan síma hjá fé- laga sínum til að skanna nokkra lottómiða sem hann hafði keypt. Þá kom vinningurinn í ljós. Hann segist raunar heppinn að hafa ekki týnt miðanum en mjóu mátti muna að hann hefði týnt vesk- inu sínu um daginn. Faðir hans vann líka Kærulausi lottóspilarinn er ekki sá fyrsti í fjölskyldunni til þess að vinna mikið fé í lottóinu því faðir hans vann 1. vinning árið 1993. Sonurinn hefur ekki enn ákveðið í hvað hann mun nota milljónirnar, en sagði að hluti þeirra færi örugglega til góðgerðarmála. Kærulausi lottóspil- arinn loks fundinn - Týndi næstum veskinu og miðanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.