Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Lögregla á Skotlandi rannsakar nú
fjármál Skoska þjóðarflokksins
(SNP), flokks forsætisráðherrans
Nicolu Sturgeon vegna mögulegra
fjársvika. Málið snýst um 600 þús-
und sterlingspunda sjóð (jafnvirði
liðlega milljarðs íslenskra króna),
sem átti að nota næst og kosið yrði
um sjálfstæði Skotlands, en var eytt
í annað.
Þetta er vandræðamál á ótal vegu
fyrir flokkinn, sem hefur afar sterka
stöðu í landinu, sumir segja of
sterka. Jafnvel þó svo að í ljós komi
að sjóðurinn hafi verið tæmdur með
lögmætum hætti verður erfitt fyrir
flokksforystuna að útskýra af hverju
hún hafi talið kosningar um sjálf-
stæðið svo víðs fjarri. Ekki vegna
þess að það sé endilega rangt athug-
að, heldur vegna þess að forystan
hefur ekki þreyst á að segja grasrót-
inni að allt kapp væri lagt á það, nýj-
ar sjálfstæðiskosningar rétt handan
við hornið og peningum safnað á
þeim forsendum.
Hálfu verra er þó að í fréttum
Sunday Times um málið var vísað til
heimilda um að saksóknaraemb-
ættið í Skotlandi hafi lagst eindregið
gegn rannsókn lögreglunnar.
Embættið hefur áður verið sakað
um að lúta pólitískum fyrirmælum
frá forystu SNP, þegar það gekkst
fyrir rannsókn á meintum kynferð-
isbrotum Alex Salmond, fyrirrenn-
ara Sturgeon, sem hann var síðar
sýknaður af.
Þetta mál mun tæplega auka trú
manna á embættið eða flokkinn.
AFP
Skotland Nicola Sturgeon er enn
vinsæl, en hneykslunum fjölgar.
Lögreglan skoðar
bókhaldið hjá SNP
- Milljarður fór í annað en ætlað var
Fordæmalaus
réttarhöld í fjár-
svikamáli hefjast
í Páfagarði í dag.
Þar eru tíu
manns á saka-
bekk, þar á með-
al einn fyrrver-
andi kardínáli.
Embættismenn
kirkjunnar von-
ast til þess að
með réttarhöldunum verði sýnt að
enginn sé yfir lögin hafinn og þann-
ig megi eyða efasemdum um fjár-
reiður kaþólsku kirkjunnar.
Mest athygli beinist að Angelo
Becciu, 73 ára fyrrverandi kardín-
ála, en Francis páfi veitti honum
lausn í fyrra vegna ásakana um
frændhygli og aflétti einnig frið-
helgi hans, svo draga mætti hann
fyrir dóm.
Málið snýst um fjárfestingar á
vegum kirkjunnar, einkum kaup á
byggingu í einu dýrasta hverfi
Lundúna.
PÁFAGARÐUR
Becciu kardínáli
á sakamannabekk
Giovanni Angelo
Becciu kardínáli
Kínversk stjórn-
völd voru fremur
herská við upp-
haf fundar
þeirra með
Wendy Sherman,
aðstoðarutanrík-
isráðherra
Bandaríkjanna, í
borginni Tianjin
í gær.
Stjórnin í Peking rekur versn-
andi samskipti ríkjanna alfarið til
Bandaríkjanna og Xie Feng, að-
stoðarutanríkisráðherra Kína,
skoraði á Bandaríkin að falla frá
„hættulegri stefnu“ sinni. Hann
sagði Sherman að samskiptin væru
í pattstöðu vegna þess að Bandarík-
in hefðu skrímslavætt Kína.
Sherman er æðsti embætt-
ismaður Bandaríkjanna til þess að
heimsækja Kína frá því Joe Biden
forseti tók við völdum. Samskipti
ríkjanna hafa ekki batnað síðan, öf-
ugt við það sem margir töldu.
BANDARÍKIN OG KÍNA
Lítill sáttatónn
í sáttaviðræðum
Wendy Sherman
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Nýjum tilfellum Covid-19 í Bretlandi
fækkaði fimmta daginn í röð. Vel-
flestum sóttvarnatakmörkunum í
Englandi var aflétt mánudaginn 19.
júlí, en síðustu smittölur endur-
spegla ekki möguleg áhrif þess.
Í Bretlandi eru nú um 90% fullorð-
inna með mótefni við veirunni og
smitum virðist vera að fækka. Sótt-
varnayfirvöld segja þó of snemmt að
fagna, enda virðist Delta-afbrigðið
geta endursmitað fólk, sem fengið
hefur sjúkdóminn eða verið bólusett.
Líkurnar á endursmiti eru hins veg-
ar litlar, innan við 0,5% að talið er. Af
þeim, sem smitast hafa af Delta-af-
brigðinu þar í landi, höfðu aðeins
1,2% fengið veiruna áður. Það þýðir
að meira en 98% Delta-smita eru ný-
smit, svo það er tæplega hægt að
segja að þetta nýja afbrigði fari sem
lok um akur ónæmrar og bólusettrar
þjóðar.
Þar fyrir utan bendir flest til þess
að þeir sem smitast eftir bólusetn-
ingu verði miklu síður alvarlega
veikir eða finni yfirhöfuð fyrir ein-
kennum. Sömuleiðis bendir tölfræði
Breta til þess að fólk verði miklu síð-
ur alvarlega veikt við endursmit.
Flestir finna einungis fyrir vægum
einkennum, en aðeins einn af hverj-
um þúsund endursmituðum fékk al-
varleg einkenni og þannig að veiran
næði að grafa um sig í þeim.
Þrátt fyrir að smitum hafi tekið að
fækka í Bretlandi eru þau enn býsna
mörg, alveg svo að réttlætanlegt er
að tala um „þriðju bylgjuna“ í smit-
um.
Það er hins vegar ekki hægt að
benda á neina samsvarandi bylgju í
spítalainnlögnum eða dauðdaga af
völdum veirunnar.
Þegar það er borðið saman við töl-
fræðina í fyrri bylgjum blasir árang-
ur bólusetningarinnar við.
Á súluritinu til vinstri má sjá hve
víða helstu bóluefni hafa hlotið við-
urkenningu, svo ferðast megi.
80% bólusettra smita ekki
Tölfræði í Ísrael bendir í sömu átt,
að bólusett fólk sé mun ólíklegra til
þess að bera smit í aðra á almanna-
færi. Þar í landi hefur nær alfarið
verið notast við bóluefni Pfizer/
BioNTech, en þrátt fyrir að það veiti
ekki 100% vörn gegn kórónuveirus-
miti virðist það slá verulega á smit
áfram. Samkvæmt tölum heilbrigð-
isráðuneytisins um bólusett fólk,
sem samt sem áður smitaðist af veir-
unni, smituðu 80% þeirra engan ann-
an á almannafæri, um 10% smituðu
einn, en 3% tvo til þrjá. Ekki var
unnt að segja til um hvort 7% hefðu
smitað aðra eða ekki.
Augljós árangur bólusetninga
- Nýsmitum fækkar áfram í Bretlandi - Fáir veikjast alvarlega og deyja í þriðju
bylgjunni - Endursmit Delta-afbrigðisins fátíð - Bólusettir smita miklu síður
Bólusetning og ferðir
Viðurkenning landa á bóluefnum
AstraZeneca
Pfizer-BioNTech
Sputnik V
Sinopharm
Moderna
Janssen
0 25 50
FJÖLDI LANDA
75 100 125
Kais Saied, forseti Túnis, vék bæði
varnarmálaráðherra og dóms-
málaráðherra landsins úr embætti í
gær, en á sunnudag hafði hann rek-
ið forsætsráðherra landsins og sent
þingið heim í mánuð. Það voru við-
brögð við mótmælum vegna van-
máttar stjórnvalda við heimsfar-
aldrinum. Í gærkvöld fór forsetinn í
kvöldgöngu eftir aðalgötunni í
Túnisborg þar sem fylgismenn
hans fögnuðu, en öðrum var haldið
í skefjum af hermönnum.
Saied, sem er 63 ára gamall
íhaldssamur lagaprófessor, var
óvænt kjörinn forseti 2019, þar sem
hann þótti óflekkaður af stjórn-
málaþátttöku og spillingu. Pólitísk
ólga hefur verið í landinu frá „arab-
íska vorinu“ 2011 og efnahagurinn
bágborinn undnfarin ár.
Túnis
Kais Saied
rekur fleiri
ráðherra
AFP