Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kaupmáttur hefur auk- ist mikið á Íslandi á undan- förnum misserum og mun meira en annars staðar í álfunni. Við- sjárverð staða í efnahags- málum getur hins vegar stefnt þeim árangri í hættu og ljóst að um þessar mundir er lítið um sóknarfæri í þessum efnum. Í haust mun endurskoðunar- ákvæði lífskjarasamninganna virkjast. Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR, var spurður í Morgunblaðinu í gær hvers væri þá að vænta og í svari hans kvað við óvæntan tón. „Á þessari stundu er ekki mikil stemning, hvorki í samfélaginu né innan verkalýðshreyfingar- innar, fyrir átökum eða að- gerðum sem auka á óvissu í þjóðfélaginu samhliða fjölgun smita,“ sagði Ragnar Þór. Málið er að stéttarfélögin með Eflingu í fararbroddi hafa teflt á tæpasta vað í kröfugerð sinni og málflutningi. Ekki hef- ur gætt nokkurs skilnings á því að í erfiðu árferði þegar fyrir- tæki berjast í bökkum geta miklar launahækkanir riðið rekstrinum að fullu. Kaup- mátturinn eykst ekki hjá þeim sem missir vinnuna. Þessi mál- flutningur hefur einnig orðið til þess að vekja innistæðu- lausar væntingar hjá launþeg- um. Svo er önnur saga að hið opinbera hefur látið undan þrýstingnum af þessum mál- flutningi í stað þess að láta samninga í einkageiranum ráða för. Rekstur ríkis og sveitarfélaga byggist á blóm- legu atvinnulífi og að einka- geirinn dafni. Ragnar Þór er þó ekki af baki dottinn í viðtalinu. Hann talar um að tekið verði tillit til verðbólguþróunar í komandi kröfugerð og nefnir að hækkun fasteignaverðs gefi tilefni til að hafa áhyggjur, þótt um leið sé jákvætt að lægri vextir og möguleikinn á að taka hærri lán hafi gert fólki kleift að kaupa sér húsnæði, sem áður átti þess ekki kost. Fullyrðing Ragnars Þórs um að hagþróunin í faraldrinum sýni þvert á hrakspár að launa- hækkanir lífskjarasamningsins hafi haft jákvæð áhrif á rekst- ur fyrirtækja fær hins vegar ekki staðist. Ragnar segir að fyrirtæki hafi verið að stórauka veltu. Því til stuðnings nefnir hann skráðu félögin í kauphöllinni. Hann bendir að auki á að af- koma sé umfram væntingar og tekur til þess að verðbréfa- vísitalan í kauphöllinni hafi hækkað gríðarlega. „Það er því ljóst að allt tal um að launa- hækkanir myndu hafa neikvæð áhrif á hagkerfið stangast á við raunveruleikann og þær hagtölur sem við höfum fyr- ir framan okkur.“ Þetta er reyndar alls ekki ljóst. Að nota skráð félög og kauphöllina í þessu samhengi er í besta falli villandi. Þar er um að ræða stærstu og styrk- ustu félögin í landinu, þau félög sem auðveldast eiga með að taka á sig launahækkanir. Staða þorra fyrirtækja í landinu er allt önnur og alls ekki jafn sterk. Staðreyndin er sú að þegar síðustu samningar voru gerðir höfðu mörg fyrir- tæki ekki enn náð að koma jafnvægi á reksturinn eftir launahækkanirnar þar á und- an. Þeir samningar skiluðu vissulega mikilli kaupmátt- araukningu og það vildi svo vel til að atvinnulífið réð við launa- hækkanirnar, sem í þeim var kveðið á um, án þess að það hleypti af stað verðbólgu. Þar spilaði margt inn í og lukkan ekki síst. Víst er að flestir þeir, sem reka fyrirtæki á Íslandi, kann- ast ekki við glansmyndina, sem Ragnar Þór dregur í viðtalinu upp af íslensku atvinnulífi. Þá getur verið hæpið að draga of miklar ályktanir af rekstri fyrirtækja út frá hækk- un verðbréfavísitölu. Þótt bréf hafi hækkað í Icelandair er langt í land að reksturinn sé kominn á réttan kjöl og ekkert breyttist í rekstri Íslands- banka þótt bréfin rykju upp í verði eftir sölu ríkisins á eign- um í honum. Sem betur fer hefur dregið úr atvinnuleysi í sumar og sú þróun var hafin áður en ferða- þjónustan tók við sér í kjölfar þess að landið var opnað. Það er sennilega brýnasta við- fangsefnið í atvinnulífinu um þessar mundir að vinna bug á atvinnuleysinu. Það sýnir kannski best hvað staðan er viðkvæm að nú skuli aftur hafa þurft að grípa til aðhalds og takmarkana vegna kórónu- veirunnar þrátt fyrir að 85% íbúa landsins yfir 16 ára aldri hafi verið fullbólusett og fimm prósent til viðbótar fengið fyrri bólusetningu. Það er örugglega rétt mat hjá Ragnari Þór að það sé eng- in stemning í samfélaginu fyrir átökum á vinnumarkaði og ljóst að atvinnulífið þarf síst á þeim að halda. Það er mik- ilvægt að vita hvenær á að verjast og hvenær á að sækja. Þá verður trúverðugleikinn líka meiri þegar blásið er til sóknar. Nú er tíminn til að verja það sem hefur unnist og átta sig á að með því að fara of- fari er hægt að missa það úr höndunum. Atvinnulífið er í við- kvæmri stöðu og má ekki við átökum} Tónn skynsemi A thygli vakti þegar Ragnar Freyr Ingvarsson, fyrrverandi yfirmað- ur Covid-göngudeildar Landspít- ala, sagði að stjórnvöld hefðu brugðist þjóðinni tvívegis. Nú einu og hálfu ári eftir að faraldurinn skall á þurfi ekki nema þrjár innlagnir til þess að setja Landspítalann á hættustig. Í viðtali við Kjarnann segir Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir að hann hefði viljað sjá betri stjórn á landamærunum en að það „hafi ekki verið hægt“. Landspítalinn er á hættustigi og sótt- varnalæknir segir að ekki hafi verið hægt að hafa betri stjórn á landamærunum. Við hljótum að þurfa að spyrja „af hverju?“ Af hverju er Landspítalinn á hættustigi? Af hverju var ekki hægt að hafa betri stjórn á landamærunum? Eina svarið við þessum spurningum er „ríkisstjórnin“. Mánuðum saman hefur ríkisstjórninni mistekist að bregð- ast við álaginu á spítalann og nú er efnahagslega áætlun ríkisstjórnarinnar að mistakast líka. Veðmálið um að ferðaþjónustan sé lausnin er að kosta okkur enn eina bylgjuna. Ein fyrstu viðbrögð stjórnvalda þegar faraldurinn skall á í fyrra var að setja þrjá milljarða í markaðsátak fyrir ferðaþjónustuna og opna svo landamærin fyrir ferða- mönnum. Í framhaldinu komu önnur og þriðja bylgja far- aldursins. Allan faraldurinn hefur þetta verið eina markmið rík- isstjórnarinnar, að verja ferðaþjónustuna þannig að hún taki aftur við fyrra hlutverki í íslensku efnahagslífi eftir faraldurinn. Ekkert plan B. Þannig hefur allt þetta kjörtímabil verið, breið pólitísk stjórn um óbreytt ástand í stað þess að leysa þau samfélagslegu vandamál sem blasa við okkur öllum. Enn skortur á húsnæði. Enn mannekla í heilbrigðiskerfinu. Enn engar breytingar í sjávarútvegi. Gömul stjórnarskrá. Gamlir flokkar en samt engar lausnir fyrir gamla fólk- ið okkar. Stefna Pírata hefur verið skýr frá upphafi faraldurs. Takmarkanir á landamærunum eru besta leiðin til að tryggja hag, heilsu og frelsi almennings í heimsfaraldri. Í atvinnumálum höfum við alltaf lagt áherslu á nýsköpun til þess að taka við atvinnuleysinu, það býr til tækifæri til framtíðar og gefur okkur mögu- leika á að vaxa úr faraldrinum. Síðastliðnir 16 mánuðir voru fullkomið tækifæri til að renna fleiri stoðum undir íslenskt efnahagslíf. Tækifæri til að hjálpa fólki að gera hugmyndir sínar að veruleika, í stað þess að takmarka veruleikann við hugmyndir ríkisstjórn- arinnar. Þurfum við að þola annað kjörtímabil af gömlu geð- þóttastjórnmálunum? Þar sem öll eggin eru sett í sömu gömlu körfuna hjá sömu gömlu sérhagsmununum? Fram undan eru átök við fleiri stór úrlausnarefni, eins og lofts- lagsvá og sjálfvirknivæðingu, og miðað við þröngsýni stjórnvalda í faraldrinum er ljóst að framtíðin getur aldrei orðið á þeirra forsendum. Breytingar eru nauðsynlegar. Björn Leví Gunnarsson Pistill Breytingar eru eðlilegar Höfundur er þingmaður Pírata bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Rebekka Líf Ingadóttir rebekka@mbl.is L jóst er að töluverðs titr- ings gætir í viðburða- og skemmtanabransanum þessa dagana eftir að stjórnvöld hertu á ný sóttvarna- aðgerðir innanlands til þess að sporna við dreifingu Delta-afbrigð- isins svokallaða. Eru þetta mikil vonbrigði fyrir landann og skipu- leggjendur hátíðarhalda, sem margir hverjir ætluðu að halda við- burði á næstu dögum og vikum. Margir hafa lýst yfir svokallaðri „deja vu“, eða nokkurs konar end- urupplifun, enda ástandið ekki ósvipað því sem var fyrir akkúrat ári er herða þurfti takmarkanir á ný og flestum hátíðarhöldum og viðburðum annaðhvort frestað eða aflýst. Tónlistarhátíðin Innipúkinn er meðal þeirra hátíða sem hefur ver- ið aflýst. Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Innipúkans, segir mikil vonbrigði að hafa þurft að aflýsa hátíðinni annað árið í röð. Hann segir tekjutapið óljóst en síð- ustu daga hafi skipuleggjendur reynt að takmarka skaðann. Láta þetta ekki stoppa sig „Því miður verða Hinsegin dagar ekki eins og skipulagt var en dagarnir munu að sjálfsögðu fara fram og við látum þetta ekki stoppa okkur,“ segir Sigurður H. Starr Guðjónsson, framkvæmdastjóri Hinsegin daga. Hann segir Hinseg- in dagana koma til með að fara fram á einn eða annan hátt, þrátt fyrir að gleðigangan og útihátíð í Hljómskálagarði verði ekki með hefðbundnum hætti, muni verða fundnar lausnir og unnið í takt við takmarkanir, almannavarnir og Reykjavíkurborg. „Við stefnum á að halda alla þá viðburði sem við getum haldið og vera þá með eitt- hvað í streymi og eitthvað í per- sónu en með tilliti til takmarkana.“ Salan hafði tekið vel við sér Hrefna Sif Jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Tix miðasölu, segir söluna hafa tekið vel við sér í sum- ar en nú sé verið að fresta og af- lýsa viðburðum sem átti að halda á næstu tveimur vikum. „Verkefnið okkar núna er að endurgreiða miða og færa til, láta miðakaupendur vita af breytingum og þess háttar. Það var náttúrulega fjöldi viðburða sem átti að fara fram á næstu vikum en nú verðum við bara að sjá hvernig þetta þróast varðandi lok ágúst og haustið.“ Hrefna segir að lausnir sem notast var við síðasta ár séu tilbúnar aftur til notkunar, líkt og sala á kóðum sem virkja slóðir að tónlistarstreymum og þess háttar, „við erum nú þegar tilbúin ef til þess kemur en við vonum auðvitað bara að við höfum lifandi viðburði í haust.“ Svanhildur Konráðsdóttir, for- stjóri Hörpu, segir að verið sé að meta stöðuna en það séu engir stór- ir viðburðir skipulagðir á næstu tveimur vikum. „Það er í rauninni ekki fyrr en eftir þann tíma sem allt fer af stað með stórum viburð- um í Eldborg og svo framvegis. Miðað við þær takmarkanir sem núna eru í gildi, 200 manna fjölda- takmarkanir og eins metra reglu, kunnum við það náttúrulega mjög vel og höfum oft og lengi unnið með slíkar takmarkanir.“ Hún segir jafnframt að skipuleggjendur haldi ró sinni og taki því sem að höndum ber. Staðan verði metin ef hertari aðgerðir koma til. „Svo erum við eins og allir aðrir að velta fyrir okk- ur hvernig staðan verður á menn- ingarnótt.“ Titrings gætir víða í skemmtanabransanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleðigangan Óvíst er hvernig stórir viðburðir á borð við Hinsegin daga og menningarnótt fara fram í ár vegna nýrra samkomutakmarkana. „Þetta var all- an tímann mjög skýrt í okkar huga að við myndum aldrei fara af stað ef það væri einhvers konar áhætta sem myndi fylgja þessu,“ segir Júlíus Júl- íusson, framkvæmdastjóri Fiski- dagsins mikla á Dalvík. Hann seg- ir að allir skipuleggjendur hafi verið sammála um það þann 15. apríl, þegar tekin var sú ákvörðun um að aflýsa hátíðinni, að um áhættu væri að ræða. Hann segir að það hefði verið afar slæmt ef ákvörðunin hefði ekki verið tekin svo snemma og að verið væri að aflýsa henni núna. „Ég skil koll- ega mína allflesta mjög vel, engin hátíð er eins, fyrir suma er þetta fjáröflun og aðra er það ekki og rekið á núlli þannig að á bak við hverja hátíð eru mismunandi að- stæður.“ „Engin hátíð er eins“ FISKIDAGURINN Á DALVÍK Júlíus Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.