Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 20

Morgunblaðið - 27.07.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021 ✝ Katrín Jóns- dóttir fæddist á Kleifum í Ólafsfirði 6. júlí 1932. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Grund þann 17. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Jón Guð- mundsson, f. 13. jan. 1905, d. 14. júní 1991, og Guðrún Sigurhanna Péturs- dóttir, f. 25. des. 1897, d. 30. nóv. 1985. Systur Katrínar eru, Hólm- fríður, f. 31. maí 1930, d. 1. júlí 2009, maki Sigurður Jónsson, f. 1934 d. 2011; Jóhanna, f. 8. apríl 1934, d. 5. apríl 2005, maki Stef- án Antonsson, f. 1927, d. 2019; Hulda, f. 3. apríl 1937, maki Hilmir Jóhannesson, f. 1936 d. 2020. Hálfsystkini Katrínar sam- feðra eru; Sólrún, f. 2. sep. 1944, maki Páll Þorgilsson, f. 1940, og Hreinn, f. 16. des. 1946, maki Svanhildur Þorleifsdóttir, f. 1948. Katrín giftist 14. júli 1956 Magnúsi Ásmundssyni lækni, f. 17. júní 1927, d. 31. ág. 2015. Börn þeirra eru: Eyrún, f. 18. júní 1953 (fædd Gunnarsdóttir, Gunnar Líndal Jónsson f. 6. ág. 1930 d. 2. feb. 1989). Andrés, f. 15. nóv 1956, maki Áslaug Gunn- arsd, f. 1964, og eiga þau þrjú börn þeirra Magnús Fannar, f. 2005, og Jóhanna Katrín, f. 2007. Fyrir átti Magnús eiginmaður Katrínar soninn Sæmund Þor- berg, f. 14. jan 1956, barnsmóðir Eirný Sæmundsd., f. 1928, d. 2012. Katrín ólst upp á Húsavík og lauk þar gagnfræðaprófi. Um tvítugt fór hún að læra hjúkrun í Reykjavík, en varð að hætta námi þegar hún eignaðist dótt- urina Eyrúnu. Hún vann á sjúkraskýlinu á Hólmavík þegar hún kynntist Magnúsi lækni og giftist honum. Þau bjuggu skamma hríð á Kópaskeri og á Akureyri áður en þau fluttust til Svíþjóðar þar sem Magnús stund- aði framhaldsnám á árunum 1958-1964. Heimkomin settust þau að á Akureyri þar sem þau bjuggu í 20 ár. Þegar börnin urðu stálpuð fór Katrín að vinna utan heimilis og taka þátt í bæj- armálapólitík. Hún lauk sjúkra- liðanámi á Akureyri 1974. Hún sat um skeið í bæjarstjórn á Ak- ureyri fyrir Alþýðubandalagið. 1983 fluttu þau í Neskaupstað. Þar vann hún í hlutastarfi sem sjúkraliði og tók þátt í bæj- armálum. Við starfslok fluttu þau í Kópavog og síðar Reykja- vík. Katrín verður jarðsungin frá Seljakirkju í dag, 27. júlí 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á: https://seljakirkja.is/. Virkan hlekk á streymið má finna á: https://mbl.is/andlat/. börn, Gunnar, f. 1989, maki Eliza- beth Bunin, f. 1989, og eiga þau soninn Benjamin Hrafn, f. 2020, Katrínu Helgu, f. 1992, og Eyrúnu, f. 1996, en fyrir átti Andrés dótturina Önnu Töru, f. 1987, barns- móðir Ingibjörg Karlsd., f 1958, maki Önnu er Oussama Achour, f. 1986. Jón, f. 23. mars 1959, maki Guðrún Bergþórsd, f 1960, þeirra synir Bergþór Steinn, f. 1990, maki Þorbjörg Viðarsd, f. 1991, og eiga þau dótturina Guð- rúnu Dóróþeu, f. 2017, og Hjört- ur Snær, f. 1996, maki Diljá Dögg Gunnarsdóttir, f. 1996, og eiga þau soninn Gunnar Jökul, f. 2020, en fyrir átti Jón soninn Magnús, f. 1983, fv. eigink. Kristín Helga- dóttir, f. 1961. Ásmundur, f. 7. jan 1963, maki Ásdís Þrá Hösk- uldsd, f. 1959, barn þeirra Katr- ín, f. 1992, en fyrir átti Ásdís dótturina Guðnýju Helgu Her- bertsdóttur, f. 1978, maki Pétur R. Pétursson, f. 1972, og eiga þau dótturina Emmu Katrínu, f. 2013, en fyrir átti Guðný soninn Ásmund Goða Einarsson, f. 2002. Steinunn Sigríður, f. 21. jan 1975, maki Jesper Madsen, f. 1976, Mig langar í nokkrum orðum að minnast minnar kæru tengdamóður og vinkonu, Katr- ínar Jónsdóttur. Ég kynntist Katrínu árið 1986 þegar leiðir okkar Jóns lágu saman. Þá náðum við Katr- ín strax mjög vel saman þrátt fyrir að vera ólíkar. Katrín og Magnús bjuggu þá í Neskaup- stað. Vart er hægt að hugsa sér yndislegra fólk heim að sækja en þau hjón, Katrínu og Magn- ús. Oft var farið í gönguferðir út í Urðir eða kíkt til Jóns, pabba Katrínar, sem bjó þar nærri, en hann var þekktur fyr- ir að vilja gera vel við gesti í mat og drykk og var þá vissara að skilja bílinn eftir heima. Katrín var létt og skemmtileg kona og gátum við oft gleymt okkur þegar hún fór að segja sögur af þeim systrum á Húsa- vík þar sem þær ólust upp. Eftir að Magnús hætti að vinna fluttu þau Katrín í Kópa- vog. Þau komu oft norður til okkar, enda leið þeim vel á Ak- ureyri, sem hafði verið þeirra heimabær í 20 ár. Þau höfðu mjög gaman af því að fara í gönguferðir og að hitta gamla vini. Katrín hélt góðu sambandi við vinkonur sínar hér á Ak- ureyri. Sumum hafði hún kynnst þegar hún söng í kór og aðrar voru æskuvinkonur henn- ar frá Húsavík. Skömmu eftir að Magnús lést var Katrín greind með Alzheim- er-sjúkdóminn. Hún tók því af æðruleysi og var mikið hjá okk- ur næstu árin á meðan heilsan leyfði. Katrín hafði mjög gaman af því að fara í leikhús, kaffihús og síðast en ekki síst í fata- verslanir. Hún lagði mikið upp úr því að vera flott í tauinu, en þótti tengdadóttirin helst til nægjusöm þegar kom að fata- kaupum. Synir okkar og tengdadætur voru henni afar kær og tengslin enn nánari eftir því sem sjúk- dómurinn ágerðist og hún þurfti meiri aðstoð. Árið 2017 eignuðumst við ömmu- og afas- telpuna Guðrúnu Dóru, sem var mikill gleðigjafi fyrir langömmu sína. Mér er minnisstæð helgi í ágúst 2018 þegar Katrín, þá 86 ára, rölti galvösk með okkur milli húsa á súpukvöldi á fiski- dögum á Dalvík. Kvöldið endaði svo hjá okkur á léttri söng- skemmtun hjá Vandræðaskáld- um í Bergi, enda leikhúsferðir hennar líf og yndi alla tíð. Dag- inn eftir var svo haldið í ferða- lag á gamlar slóðir til Neskaup- staðar þar sem við Jón nutum samverunnar við Katrínu og veðurblíðunnar í nokkra daga. Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í friði. Guðrún Bergþórsdóttir. Í dag kveðjum við Katrínu Jónsdóttur sem var besta tengdamóðir í heimi. Aldrei dæmandi – alltaf styðjandi. Hún átti auðvelt með að eignast vini og voru þeir af öllum stærðum og gerðum og fjöl- skylduna ræktaði hún líka vel. Réttlæti og jafnrétti hafði hún að leiðarljósi. Fylgdist vel með heimsmálunum og hennar helsta heimild var sænska blað- ið „Vi“. Katrín hafði yndi af góðum bókmenntum, söng, dansi og listum. Söng sjálf með mörgum kórum og lék með Leikfélagi Akureyrar. Hún sagði að þegar hún var að alast upp og allar systur hennar voru húslegar og annálaðar hann- yrðakonur þá bauðst hún bara til að skemmta þeim við störf sín með söng, dansi, upplestri og leikþáttum. Hún varð þó mjög myndarleg húsmóðir og stóð fyrir stóru heimili. Græn- metissúpurnar hennar voru í allra uppáhaldi og ekki síður kanelsnúðarnir og klattarnir. Hún sinnti móður sinni í hárri elli en hún bjó á heimili Katr- ínar og Magnúsar, eiginmanns hennar, í mörg ár. Ýmsir frændur og frænkur komu einn- ig og dvöldu í lengri eða skemmri tíma á heimilinu og allir voru alltaf jafn velkomnir. Katrín vann öll sín verk með mikilli gleði. Kannski ekki miklu kappi en naut þess sem hún gerði. Þannig var það líka þegar hún fór að vinna sem sjúkraliði. Hún sagði að hún hefði alltaf unnið svo hægt því að hún hefði haft svo gaman af að tala við gamla fólkið. Þegar hún var innt eftir því hvort hún þyrfti ekki að hvíla sig, svaraði hún hlæjandi: – „ég get hvílt mig í gröfinni“. Sjálf einsetti Katrín sér að verða glatt gam- almenni og það var alltaf stutt í hláturinn. Síðustu árin fór kraftur hennar þverrandi. Við sem eftir erum eigum eftir að minnast hennar með söknuði, en þó fyrst og fremst með þakklæti fyrir að hafa notið samvista góðrar konu. Áslaug Gunnarsdóttir. Hvað er fjölskylda? Á síðustu árum og áratugum hefur svarið við þeirri spurningu falið í sér meiri breytileika en áður. Besta svarið sem ég hef fundið við þessari spurningu er – fjöl- skylda er hópur fólks sem er skuldbundið hvert öðru í gagn- kvæmri hollustu, elskar og ber umhyggju hvert fyrir öðru. Við Katrín erum í sömu fjölskyldu og þar var hún amma Katrín. Þó að ég hafi líklega hitt ömmu Katrínu og afa Magnús fyrr þá er sterkasta fyrsta minning mín af þeim þegar við mamma og Ási vörðum fyrstu páskunum okkar sem fjölskylda hjá þeim í Neskaupstað. Þau tóku mér opnum örmum og ég var eins og blómi í eggi þessa páskahelgi. Fékk að hanga með Steinu sem var eldri og flottari en ég, horfði á Grease í fyrsta skipti og lærði alla textana og fékk um leið að kynnast þessu fólki sem svo varð fjölskylda mín. Katrín og Magnús tóku alla tíð þátt í mínu lífi af hug og hjarta og ávallt stafaði frá þeim elska og velvilji í minn garð. Þegar ég eignaðist Ása yngri og lenti í vandræðum með pössun fyrir hann fyrsta sumarið hans þá tók Katrín ekki annað í mál en að hún myndi taka það að sér. Hún gerði það svo fallega. Heimilið var ávallt mannmargt en einhver furðuleg ró var yfir þessari smávöxnu og yndislegu konu. Hún var þó alls ekki laus við skoðanir og það var heldur betur töggur í henni en þetta rólega yfirbragð átti örugglega sinn þátt í því að börn elskuðu hana og hún elskaði þau. Þegar fátt var eftir nema heiðarleik- inn varð elska hennar gagnvart börnum svo sýnileg og tær. Við kvöddumst fyrir stuttu. Það var mikilvæg stund fyrir mig þar sem ég fékk tækifæri til að þakka henni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína. Ég kveð elsku ömmu Katrínu með þakklæti í hjarta og hugsa til þess hvað ég var heppin að hafa eignast skáömmu og -afa í jafn vönduðu og yndislegu fólki og þeim. Guðný Helga Herbertsdóttir. Tíminn flýgur. Nú sjáum við á bak Katrínu Jónsdóttur, sex árum eftir að eiginmaður henn- ar Magnús Ásmundsson læknir kvaddi árið 2015. Þau hjón komu árið 1983 til Norðfjarðar þar sem Magnús tók við starfi yfirlæknis á lyflæknisdeild Fjórðungssjúkrahússins og var fyrstur til að gegna því mik- ilvæga verkefni. Heimili þeirra var í 14 ár úti á Bakkabökkum í Neskaupstað. Þegar yngsta barn þeirra, dóttirin Steinunn, síðar læknir í Danmörku, var flogin úr hreiðrinu, fór Katrín að starfa við umönnun á sjúkra- húsinu, enda með sjúkraliða- menntun. Með glaðværð sinni og hlýju létti hún mörgum þar erfiða daga. Daglegar göngu- ferðir lækna enduðu yfirleitt í tedrykkju og umræðu um allt og ekkert hjá Kötu. Hún var söngelsk, söng í kirkjukórnum og lét tónlistarviðburði ekki fram hjá sér fara. Hún og Magnús aðlöguðust vel norð- firsku umhverfi, bæði vinstri- sinnuð að lífsskoðun. Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur bar fundum okkar stöku sinnum saman en oftar var það síminn sem brúaði bilið. Það er bjart yfir minningu þeirra hjóna og íslenskt samfélag nýtur áfram fjölmenntaðra afkomenda þeirra. Kristín og Hjörleifur Guttormsson. Katrín Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Amma var þeim einstaka hæfileika gædd að finnast allir sem hún kynntist óskaplega merkilegir og spennandi. Þegar ég sé hana fyrir mér var hún allt- af hlæjandi, alltaf að tengj- ast fólki og hlusta á sögur þeirra, full af forvitni og gleði. Ég hugsa til baka og sé hana fyrir mér að vinna í garðinum í Kópavogi innan um túlípana og jarðarber. Ég dáist að óþrjótandi þol- inmæði hennar og jafnvel húmor fyrir prakkaraskap okkar barnabarnanna. Ég heyrði hana aldrei tala illa um nokkurn mann og eftir því sem ég verð eldri átta ég mig á því hvað það er sjaldgæft og dýrmætt. Takk fyrir allt elsku amma. Katrín Helga Andrésdóttir. ✝ Elín Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 24. des- ember 1940. Hún lést 9. júlí 2021 í faðmi fjölskyldu á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru Jón Reykja- lín Sæmundsson skipstjóri, f. 18.10. 1904 í Stærra- Árskógi, Eyjafjarðarsýslu, d. 27.8. 1997, og Anna Helga Sig- urðardóttir, húsmóðir og prjóna- kona, f. 24.5. 1915 í Njarðvík í Norður-Múlasýslu, d. 11.11. 2007. Systkini Elínar eru Sig- urður Jónsson, f. 22.9. 1938, og Unnur G. Jónsdóttir, f. 17.2. 1946. Elín ólst upp á Seltjarnarnesi, síðan í Lyngholti í Garðahreppi. Hún lauk Landsprófi frá Flens- borgarskóla í Hafnarfirði, fór til Englands í ritaranám og braut- skráðist frá Hjúkrunarskóla Ís- lands árið 1963. Hinn 30.6. 1963 giftist Elín Birni Ólafssyni, fyrrverandi for- stjóra Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar og síðar fiskútflytjanda, f. 26.8. 1939, d. 12.3. 2005. For- eldrar hans voru Ólafur J. Elís- son, forstjóri í Hafnarfirði, f. 8.9. 1913, d. 31.12. 1958, og Gyða Björnsdóttir húsfreyja, f. 4.11. 1914, d. 18.2. 2010. Björn var við nám og störf í Þýskalandi þegar þau kynntust og fluttist Elín til hans að sínu námi loknu og starf- aði sem hjúkrunarfræðingur í Bremerhaven. Störf Björns leiddu þau síðar til Húsavíkur þar sem þau bjuggu á árunum 1967-69 og síðar til Eng- lands 1969-74. Eftir heimkomu til Ís- lands á ný bjuggu þau á æskuheimili Björns á Kross- eyrarvegi 9 í Hafnarfirði þar sem Elín annaðist fjölskyldu og heim- ili og starfaði síðar sem hjúkr- unarfræðingur á Landspítal- anum á göngudeild háþrýstings. Börn Elínar og Björns eru: 1) Gyða f. 3.11. 1964, maki Brynjar Viðarsson, f. 25.4. 1964. Dóttir þeirra er Birna, f. 20.9. 1994, sambýlismaður Eysteinn Gunn- laugsson, f. 21.4. 1992. Dætur Gyðu og fyrri maka, Jónasar Jó- hannssonar, eru Elín Anna, f. 12.10. 1987, og Anna Margrét, f. 27.3. 1990, hennar sonur og Rebekku Huldu Gestsdóttur er Brimir Þór, f. 26.8. 2019. 2) Jón Reykjalín, f. 13.4. 1968. Dætur hans og fyrrverandi maka, Auð- ar Erlu Gunnarsdóttur, eru Andrea Helga, f. 31.7. 1997, og Rebekka, f. 8.8. 2003. 3) Andri Björn, f. 23.8. 1976, í sambúð með Lilju Rut Kristjánsdóttur, f. 10.2. 1981, sem á dótturina Sóleyju, f. 24.8. 2010. 4) Anna Helga, f. 17.10. 1984. Útför Elínar fór fram í kyrr- þey frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði hinn 26. júlí 2021 að ósk hinnar látnu. Elsku mamma hefur nú kvatt þennan heim eftir langvarandi og erfið veikindi. Hún var okkur alltumvefjandi kærleikur, akker- ið okkar og áttavitinn, og minn- ingin um hennar fallegu sál mun lifa með okkur um alla tíð. Sálina engin binda bönd, guð henni vængi létta léði að lyfta sér á í hryggð og gleði, dýrðlega bjó þá drottins hönd. Þeir vængir engan þekkja lúa. Það er sálunni hvíld að fljúga innan um þennan undra geim, endurminninga og vona heim. Hún getur flogið öld frá öld herrans að skoða handaverkin, himnesk vísdóms og gæsku merkin, hennar ævi á ekkert kvöld. Henni er unun og endurnæring eilíf starfsemi, sífelld hræring. Ó guð! hvað er þá öndin mín? Eilífðar stjarna dóttir þín. (Páll Ólafsson) Gyða, Jón Reykjalín, Andri Björn og Anna Helga. Elskuleg tengdamóðir mín, Elín Jónsdóttir, er látin. Þessi fínlega, fallega, skarpgreinda og hrausta kona, sem stundaði sund, jóga, göngur og alhliða heilsu- rækt, greindist á besta aldri með bæði alzheimer og parkinsons, erfiða taugasjúkdóma sem leiddu til að bæði hugur og hönd gáfu sig og tóku að lokum lífið sjálft. Það sem reyndist henni og að- standendum sárast var að sjúk- dómarnir tóku snemma frá henni orð og tjáningu. En fram á síð- ustu stund þekkti hún sitt nán- asta fólk og brosti með bliki í aug- um þegar börn og barnabörn komu í heimsókn. Ég þakka fyrir allar mínar góðu minningar um kæra tengda- móður og þau bæði elskulegu hjónin, Elínu og Björn, sem nú eru vonandi sameinuð í eilífu góð- viðri í útilegunum sem þau elsk- uðu í landinu okkar fagra. Þau tóku mér tengdasyninum frá upphafi opnum örmum og það var alltaf gott að koma í eldhúsið til þeirra á Krosseyrarveginum. Þau heimsóttu okkur Gyðu til Madison í Bandaríkjunum þegar við bjuggum þar og áttum við með þeim góðar stundir. Stelp- urnar okkar áttu alltaf öruggt og gott skjól hjá ömmu Elínu sem sinnti þeim öllum af mikilli ást og alúð. Eftir heimkomu frá Amer- íku bjuggum við hjá þeim um tíma í kjallaranum á Krosseyr- arveginum á meðan við vorum að koma okkur upp húsnæði og fékk ég þá að kynnast snilldarmat- reiðslu Elínar. Einfaldur hvers- dagsheimilismatur varð að veislumat í eldhúsinu á Krosseyr- arveginum. Elín bjó til bestu fiskibollur í heimi, frábæra kjöt- súpu og enginn eftirréttur komst nálægt rjómatertunni hennar með jarðarberjunum nema kannski döðlutertan með banana- rjómanum. Hvíl í friði elsku Elín með þökk fyrir allt. Þinn tengdasonur, Brynjar Viðarsson. Elín Jónsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN EINARSSON, fyrrverandi prófastur og sóknarprestur á Kirkjubæjarklaustri, andaðist á Hrafnistu aðfaranótt föstudagsins 23. júlí. Útförin verður tilkynnt síðar. Ketill Sigurjónsson Æsa Sigurjónsdóttir Daniel Beaussier og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR INDRIÐASON, fyrrverandi forstöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkisins á Akureyri, lést föstudaginn 16. júlí. Útför hans fer fram í Akureyrarkirkju fimmtudaginn 29. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Steinunn Sigurðardóttir Árni Bjarnason Jón Gunnar Sigurðsson Sigrún Sigurgeirsdóttir Sigurður U. Sigurðsson Þórdís Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.