Morgunblaðið - 27.07.2021, Síða 27
SUND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Anton Sveinn McKee keppir í dag í
sinni einu grein á Ólympíuleikunum
en undanrásirnar í 200 metra
bringusundi karla hefjast klukkan
10.35 að íslenskum tíma. Anton er í
riðli númer tvö sem á að fara af stað
klukkan 10.39.
Hann er skráður til leiks með 25.
besta tímann af 40 keppendum og á
að vera fremstur keppenda í öðrum
riðli. Anton er skráður á leikana með
tímann 2:10,32 mínútur en Íslands-
met hans í greininni frá árinu 2015
er hinsvegar 2:10,21.
Anton ætlar sér stóra hluti en eins
og hann sagði í viðtali í Morg-
unblaðinu síðasta fimmtudag er
markmið hans að bæta Íslandsmetið
í það minnsta um rúmar þrjár sek-
úndur og synda að minnsta kosti á
2:07,00 mínútum. Háleitt markmið
sagði hann að væri 2:06,50 og
draumamarkmið 2:06,00 mínútur.
Miðað við skráðan tíma keppenda
þyrfti Anton að synda á um það bil
2:08,00 mínútum til að komast í und-
anúrslitin en þangað fara sextán
bestu í undanrásunum. Það er tals-
vert innan markmiðsramma hans,
en samt myndi hann bæta Íslands-
metið um rúmar tvær sekúndur.
Draumamarkmiðið
er heimsmet
Ef Anton nær því sem hann kallar
háa markmiðið verður hann í bar-
áttu um verðlaunasæti, hvorki meira
né minna. Draumamarkmiðið er
hvorki meira né minna en heimsmet
en heimsmethafinn Anton Chupkov
frá Rússlandi synti á 2:06,12 mín-
útum fyrir tveimur árum. Ólympíu-
met Ipei Watanabe frá Japan, sem
hann setti í Ríó árið 2016, er 2:07,22
mínútur. Chupkov er mættur til
leiks í Tókýó og með heimsmet sitt
skráð sem bestan árangur keppenda
í greininni.
Watanabe er ekki með í Tókýó þar
sem hann varð í þriðja sæti á jap-
anska úrtökumótinu og tókst því
ekki að vinna sér sæti í ólympíu-
liðinu að þessu sinni. Þeir sem eiga
bestu tímana á eftir Chupkov eru
Izaac Stubblety-Cook frá Ástralíu
(2:06,28), Shoma Sato frá Japan
(2:06,40) og Arno Kamminga frá
Hollandi (2:06,85)
Íslandsmet í frumrauninni
Snæfríður Sól Jórunnardóttir stóð
sig með mikilli prýði í frumraun
sinni á Ólympíuleikum þegar hún
keppti í 200 metra skriðsundi
kvenna í gær.
Snæfríður bætti eigið Íslandsmet
um 3/10 úr sekúndu, synti á 2:00,20
mínútum, og hafnaði í 22. sæti af 30
keppendum í greininni. Fyrra metið
setti hún í Álaborg í Danmörku í
mars og synti þá á 2:00,50 mínútum.
Hún hefði þurft að bæta metið um
rúmar tvær sekúndur og synda á
1:58,33 til að komast í hóp sextán
bestu og halda áfram keppni í und-
anúrslitum greinarinnar.
Seinni grein Snæfríðar er á morg-
un, miðvikudag, en þá keppir hún í
100 metra skriðsundi. Hún hefur
synt á 56,32 sekúndum og það er 38.
besti tíminn hjá þeim 52 keppendum
sem skráðir eru til leiks. Íslandsmet
Ragnheiðar Ragnarsdóttur í grein-
inni frá árinu 2009 er 55,66 sek-
úndur. Snæfríður syndir í þriðja riðli
af sjö og á að stinga sér í laugina
klukkan 10.07 að íslenskum tíma.
Hann stefnir á verðlaun
- Anton Sveinn McKee keppir í dag og nái hann markmiðum sínum berst hann
um verðlaunasæti - Snæfríður sló Íslandsmetið í 200 m skriðsundi í gær
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Tókýó Snæfríður Sól Jórunnardóttir í 200 metra skriðsundinu í gær þar sem hún sló eigið Íslandsmet.
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Tilbúinn Anton Sveinn McKee á æfingu í Tókýó. Hann keppir í dag.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Það verður afar áhugavert að
fylgjast með Antoni Sveini
McKee þegar hann stingur sér til
sunds á Ólympíuleikunum í
Tókýó í dag. Eins og fram kemur í
greininni hér til hliðar, og í viðtali
sem birtist í blaðinu í síðustu
viku, hefur Anton lagt allt í söl-
urnar til að ná sínum besta
árangri á þessum leikum.
Hann mætir til leiks með
mikla reynslu á bakinu, er á sín-
um þriðju Ólympíuleikum og hef-
ur náð góðum árangri á Evr-
ópumótum ásamt því að keppa
sem atvinnumaður með félags-
liði.
Anton fer ekkert í felur með
það að hann ætlar sér mjög langt
í 200 metra bringusundinu, enda
þótt hann mæti til leiks númer
25 í röðinni af þátttakendum,
miðað við fyrri árangur.
Hann segist reyndar einbeita
sér að því að ná ákveðnum tím-
um en horfi ekkert á keppinaut-
ana. Enda geti hann engu um
það ráðið hvað þeir gera. Síðan
komi bara í ljós hverju það skilar.
En þeir tímar sem hann stefnir á
tala sínu máli eins og farið er yfir
í umræddri grein.
Á síðustu Ólympíuleikum í
Ríó komust bæði Hrafnhildur
Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir í úrslit í sínum greinum
í sundinu. Örn Arnarson náði
fjórða sæti á Ólympíuleikunum í
Sydney árið 2000. Anton getur
lagt sitt af mörkum til að styrkja
hefð íslensks sundfólks fyrir
góðum árangri á leikunum.
Við eigum bara fjóra kepp-
endur í Tókýó. Ásgeir hefur lokið
keppni, Snæfríður setti Íslands-
met og er fyrst og fremst að ná
sér í reynslu og Guðni Valur kast-
ar kringlu um næstu helgi. Anton
og Guðni eru þeir sem eiga raun-
hæfa möguleika á að gera þessa
leika minnisstæða.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Elías Már Óm-
arsson knatt-
spyrnumaður frá
Keflavík gengur
að óbreyttu til
liðs við franska
B-deildarliðið
Nimes. Sam-
kvæmt heim-
ildum Morgun-
blaðsins eru
viðræður Nimes
við Excelsior í Hollandi um kaup á
honum á lokastigi og kaupverðið
70-80 milljónir íslenskra króna. Elí-
as hefur leikið með Excelsior und-
anfarin þrjú ár og varð næst-
markahæsti leikmaður hollensku
B-deildarinnar á síðasta tímabili
með 22 mörk í 37 leikjum.
Elías á leið til
Frakklands
Elías Már
Ómarsson
Ólympíuleikar
Karlar, A-riðill:
Argentína – Þýskaland....................... 25:33
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Brasilía – Frakkland ............................ 29:34
Spánn – Noregur .................................. 28:27
_ Frakkland 4, Spánn 4, Þýskaland 2, Nor-
egur 2, Brasilía 0, Argentína 0.
Karlar, B-riðill:
Japan – Svíþjóð.................................... 26:28
- Dagur Sigurðsson þjálfari Japan.
Barein – Portúgal................................ 25:26
- Aron Kristjánsson þjálfar Baraein.
Egyptaland – Danmörk ....................... 27:32
_ Danmörk 4, Svíþjóð 4, Egyptaland 2,
Portúgal 2, Barein 0, Japan 0.
%$.62)0-#
Englendingurinn Adam Peaty stóð
undir væntingum í gær þegar hann
sigraði í 100 metra bringusundi á
Ólympíuleikunum í Tókýó og varð
með því fyrsti breski sundmaðurinn
til að verja ólympíutitil í sundi.
Peaty, sem er 26 ára gamall og
kemur frá smábænum Uttoxeter í
ensku Miðlöndunum, er áttfaldur
heimsmeistari og hefur sett þrettán
heimsmet í 50 og 100 metra bringu-
sundi, tvö þeirra í boðsundi. Hann
synti í gær á 57,37 sekúndum en
heimsmet hans frá 2019 er 56,88
sekúndur.
Peaty stóð undir
væntingunum
AFP
Bestur Adam Peaty fagnar sigr-
inum í lauginni í Tókýó í gær.
Slóvenski körfuboltamaðurinn
Luka Doncic setti mark sitt á Ól-
ympíuleikana strax í fyrsta leik í
Tókýó í gær. Hann skoraði 48 stig
og tók 11 fráköst þegar Slóvenar
sigruðu Argentínumenn, 118:100,
og hélt áfram merkilegri sigur-
göngu sinni með landsliðinu en
Slóvenía hefur aldrei tapað í þeim
14 leikjum sem hann hefur spilað.
Doncic leiddi Slóvena til Evr-
ópumeistaratitils 18 ára gamall ár-
ið 2017 en hefur síðan lítið leikið
með landsliðinu þar sem hann er
lykilmaður Dallas í NBA-deildinni.
Doncic tapar
ekki landsleik
AFP
48 Luka Doncic í slag við Argent-
ínumenn í leiknum í gær.
Þeir Aron Kristjánsson og Dagur
Sigurðsson hafa verið grátlega
nærri því að krækja sér í stig gegn
stærri þjóðunum en þeir stýra
karlalandsliðum Bareins og Japans
í handknattleikskeppni Ólympíu-
leikanna í Tókýó.
Aron og hans menn í Barein töp-
uðu í gær 25:26 fyrir Portúgal eftir
að hafa verið tveimur mörkum yfir
skömmu fyrir leikslok og töpuðu
áður 31:32 fyrir Svíum þar sem
markmaður Svía varði vítakast eft-
ir að leiktímanum var lokið.
Dagur Sigurðsson og hans menn
í Japan unnu upp sex marka forskot
Svía í gær en töpuðu að lokum
26:28 eftir mikla spennu í lokin.
Japan og Barein eru í baráttu við
Portúgal og Egyptaland um að
komast í átta liða úrslit.
Alfreð Gíslason fagnaði hins veg-
ar fyrsta sigrinum í Tókýó í gær
þegar Þýskaland, undir hans
stjórn, vann Argentínu örugglega,
33:25.
AFP
Barein Aron Kristjánsson og hans menn hafa verið sérlega óheppnir í
fyrstu tveimur leikjunum á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Stigalausir eftir
spennuleiki í Tókýó