Morgunblaðið - 27.07.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SCARLETT
JOHANSSON
FLORENCE
PUGH
DAVID
HARBOUR
O–T
FAGBENLE
RAY
WITHWINSTONE
RACHEL
ANDWEISZ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
Yasiin Bey, sem áður var þekktur
sem rapparinn Mos def, hefur til-
kynnt að hann sé hættur við að leika
píanistann og tónskáldið Thelonious
Monk í kvikmyndinni Thelonious
sem Jupiter Rising Film framleiðir,
en tökur eiga að hefjast næsta sum-
ar. Framleiðslufyrirtækið tilkynnti
nýverið áform sín, sem vöktu hörð
viðbrögð hjá T.S. Monk, syni The-
loniousar Monks sem jafnframt er
stjórnarformaður í dánarbúi tónlist-
armannsins. Tónlistartímaritið
Pitchfork hefur eftir T.S. Monk að
myndin sé ekki gerð með leyfi dán-
arbúsins sem á notkunarrétt á allri
tónlist Monks.
„Ef dánarbúið er ekki sátt við
myndina þá er ég það ekki heldur,“
segir Bey í tilkynningu og tekur
fram að framleiðendur myndar-
innar hafi blekkt hann með því að
telja honum trú um að dánarbúið
væri sátt við gerð myndarinnar.
Í tilkynningu frá Peter Lord
Moreland, höfundi handritsins og
einum framleiðenda, segir að mynd-
inni sé ætlað beina sjónum að „vel-
gengni [Monks] í tónlistinni, geðsýki
hans og andlegum ástarþríhyrningi
með Nellie, konu hans, og Nicu
Rothschild, einni ríkustu konu
heims.“ Í tilkynningu frá T.S. Monk
segir hann: „Ég hata handritið.“
Yasiin Bey hættur við að leika Monk
Tónskáldið Thelonious Monk.
Tónlistarhátíðin í Bayreuth var sett um helgina og í
fyrsta sinn í 145 ára sögu hátíðarinnar var kona í hópi
hljómsveitarstjórnenda. Úkraínski hljómsveitarstjórinn
Oksana Lyniv stjórnaði á sunnudag flutningi á óperunni
Hollendingnum fljúgandi eftir Richard Wagner. Þessu
greinir The New York Times frá. Í viðtali við blaðið seg-
ir Lyniv það markmið sitt að miðla með flutningnum
hugarástandi Wagners þegar hann samdi óperuna. „Á
þessum tíma var hann skuldugur og vonsvikinn þar sem
honum fannst enginn skilja list sína. Hann var drifinn
áfram af miklum metnað og samdi óperuna til að sanna
sig,“ segir Lyniv og upplýsir að vegna sóttvarnaráðstafana hafi hún aðeins
mátt æfa með helmingi hljómsveitarinnar hverju sinni. Kórnum, sem telji
um 140 manns, sé skipt í tvennt. Annar hlutinn leikur á sviðinu en má ekki
syngja vegna smithættu meðan hinn hlutinn syngur í öðrum sal þaðan sem
söngnum er varpað yfir í leikhúsið með tæknibúnaði.
Fyrsta konan til að stjórna í Bayreuth
Oksana Lyniv
Bandaríska tónlistarkonan Pink hefur boðist til að greiða
1.500 evra sekt sem norska strandhandboltalið kvenna
hlaut í síðustu viku fyrir að klæðast stuttbuxum í stað
efnislítilla sundbuxna í leik liðsins gegn Spánverjum á
Evrópumeistaramótinu í strandhandbolta. Það var
Handknattleikssambands Evrópu (EHF) sem sektaði liðið
um sem samsvarar um 224 þúsundum ísl. kr. vegna „óvið-
eigandi klæðaburðar“ þar sem stuttbuxurnar standist ekki
reglur Alþjóðlega handknattsleikssambandsins (IHF).
„Ég er afar stolt af norska strandhandboltaliði kvenna
fyrir að mótmæla þessum karlrembureglum um búning þeirra,“ skrifaði
Pink á Twitter um helgina og bætti við: „Það ætti að sekta Handknattleiks-
samband Evrópu fyrir karlrembu. Áfram stelpur. Ég borga með glöðu geði
sektina fyrir ykkur.“ Á samfélagsmiðlum þakkaði liðið Pink fyrir stuðn-
inginn.
Pink býðst til að borga sekt Norðmanna
Pink
Kínverski listamaðurinn Ai Weiwei
afhjúpaði 32 metra háa járnstyttu af
tré á sýningunni Ai Weiwei: Inter-
twine sem opnuð var í Serralves-
samtímasafninu í Porto á föstudag,
en listamaðurinn býr í borginni um
þessar mundir. Innihluti sýningar-
innar stendur fram í febrúar, meðan
útiverkin verða til sýnis fram í júlí.
Weiwei hefur á ferli sínum beint
sjónum sínum að umhverfismálum
og dvaldi í Brasilíu fyrir fjórum ár-
um þar sem hann tók afsteypu af tré
af ætt Caryocar sem er í útrýming-
arhættu. „Fólk ætti að horfa á þessi
verk og hugsa til þess sem við gæt-
um glatað í framtíðinni ef við bregð-
umst ekki við,“ segir Weiwei í sam-
tali við Reuters.
Weiwei mun í nóvember senda frá
sér ævisögu sem nefnist Þúsund ár
af gleði og sorg, þar sem hann beinir
sjónum ekki aðeins að eigin ævi
heldur einnig að föður sínum, ljóð-
skáldinu Au Qing. „Faðir minn
fæddist 1910 og sonur minn 1999.
Ævisaga mín mun spanna hundrað
ár eða tvær kynslóðir,“ segir Weiwei
í samtali við vefinn Macau Business.
Hugmyndina að bókinni segist Wei-
wei hafa fengið þegar hann sat í
varðhaldi í 81 dag í Kína árið 2011.
Þegar hann hugsaði til föður síns,
sem dvaldi í útlegð í 20 ár, hafi hann
verið sorgmæddur yfir því hversu
lítið hann vissi um föður sinn. Wei-
wei hafi ekki viljað að sonur hans
þyrfti að upplifa sömu sorg og
ákveðið að yrði honum sleppt úr
varðhaldi myndi hann skrifa allt sem
hann vissi um föður sinni og miðla
því til sonar síns af eins mikilli hrein-
skilni og honum væri unnt.
AFP
Umhverfislistamaður Kínverski listamaðurinn Ai Weiwei fyrir framan listaverkið „Pequi Tree“ sem er hluti af
sýningunni Ai Weiwei: Intertwine sem opnuð var í Serralves-samtímasafninu í Porto í Portúgal í liðinni viku.
Tréð er áminning til fólks
AFP
Sóun Safngestur gengur fram hjá verkinu „Mutuophagia“ eftir Ai Weiwei.
- Von á ævisögu
Ai Weiwei sem
spannar 100 ár