Fréttablaðið - 09.11.2021, Page 6
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
FIAT 500e ER FYRSTI FALLEGI
RAFMAGNSSMÁBÍLLINN.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN
MEÐ ALLT AÐ 460 KM DRÆGNI.
kristinnhaukur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Í gær þurfti að fella niður
mál fimm manna sem hafa stöðu
f lóttamanna í Grikklandi og Ung-
verjalandi vegna þess að málsmeð-
ferð ríkisins tók of langan tíma. Eru
þeir úr hópi f lóttamanna sem lög-
maðurinn Arndís Anna K. Gunn-
arsdóttir hefur stefnt ríkinu fyrir
vegna málsmeðferðar.
Arndís segir tilf inningarnar
blendnar. „Í sjálfu sér unnum við
sigur í málunum en það er súr-
sætt því við fáum ekki niðurstöðu
dómstóla um þessa framkvæmd.
Ég vil fá dóm um þetta því ég tel
að stjórnvöld séu að ganga gegn
lögum,“ segir hún.
Sjö önnur mál eru í farvatninu en
f lóttamennirnir koma frá Sýrlandi,
Íran, Afganistan og Eþíópíu.
Þar sem þeir hafa stöðu f lótta-
manna í Grikklandi eða Ungverja-
Mál fimm flóttamanna gegn ríkinu felld niður
Arndís Anna K.
Gunnarsdóttir,
lögmaður
landi neitar Útlendingastofnun að
taka við umsóknum. Kærunefnd-
in fellir þá ákvörðun úr gildi en
Útlendingastofnun neitar aftur og
kærunefndin staðfestir á endanum.
Arndís bindur vonir við eitt mál,
en í því var f lóttamaður sendur til
Ungverjalands daginn áður en 12
mánuðir voru liðnir. „Það er eina
málið sem við náum að halda lif-
andi og vonandi fáum dóm í,“ segir
hún. n
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Samgöngustofa hefur
undanfarið lent í vandræðum vegna
vélrænna fjöldafyrirspurna í öku-
tækjaskrá á vefsíðu stofnunarinnar.
„Vandræðin snerust um það að
einstaklingar nýttu forrit til að búa
til fjöldafyrirspurnir í ökutækja-
skrá, mögulega í þeim tilgangi
að endurbirta eða selja gögnin,“
útskýrir Þórhildur Elínardóttir,
samskiptastjóri Samgöngustofu.
„Þessar vélrænu fyrirspurnir ollu
miklu álagi á vefþjóninn sem nauð-
synlegt var að bregðast við. Upp-
færsla á þjónustunni er á döfinni,“
segir Þórhildur. Fram kemur á vef
Samgöngustofu að sett verði upp
ný leit með virkni sem komi í veg
fyrir vélrænar fjöldafyrirspurnir.
Þeir sem þurfa rýmri leit geti leitað
til aðila sem hafi samning við Sam-
göngustofu varðandi vefþjónustur
með tengingu í ökutækjaskrá. n
Afstýra áhlaupi á
ökutækjaskrána
Þórhildur
Elínardóttir,
samskipta-
stjóri Sam-
göngustofu
birnadrofn@frettabladid.is
SAMFÉLAG Íslenskum ellilífeyris-
þegum sem búa erlendis hefur
fjölgað um 45 prósent frá 2017. Þeir
voru í lok síðasta árs tvö þúsund,
eða fjögur prósent allra ellilífeyris-
þega. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofunnar.
Í desember 2020 voru ellilífeyris-
þegar rúmlega 51 þúsund. Fjölgaði
þeim um nær fjögur prósent milli
ára. Karlar voru rúmlega 24 þúsund
og konur nær 27 þúsund. n
Ellilífeyrisþegum
erlendis fjölgar
Blíðviðri á Tenerife. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Erla Bolladóttir, Klúbbmenn
og rannsakendur rifjuðu
Geirfinnsmálið upp í Héraðs-
dómi í gær. Ekki mundu allir
jafn vel eftir rannsókninni.
adalheidur@frettabladid.is
GEIRFINNSMÁL „Ég hafði nátt-
úrulega aldrei komið í dráttar-
brautina á þessum tíma en ég fór
þarna núna um um daginn og þá
var ég ekki viss um hvar í bænum
dráttarbrautin hafði verið,“ sagði
Erla Bolladóttir í skýrslu sinni í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
þegar aðalmeðferð fór fram í máli
hennar gegn íslenska ríkinu. Með
málsókninni freistar Erla þess að fá
felldan úr gildi úrskurð endurend-
urupptökunefndar frá árinu 2017,
sem synjaði henni um endurupp-
töku á hennar þætti í Guðmundar-
og Geirfinnsmálum.
Erla var dæmd í Hæstarétti árið
1980 fyrir rangar sakargiftir með
því að hafa sammælst um það með
Kristjáni Viðari Júlíussyni og Sævari
Marínó Ciesielski að þau myndu
bera sakir á fjóra menn, kennda við
skemmtistaðinn Klúbbinn, færu
spjótin að beinast að þeim sjálfum
vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar.
Erla gaf ítarlega skýrslu um sam-
skipti sín við lögregluna meðan
Geirfinnsmálið var til rannsóknar
í Reykjavík, en auk hennar gáfu níu
vitni skýrslu. Af skýrslutökunum
er ljóst að ágreiningurinn í málinu
lýtur að því hvort svonefndir Klúbb-
menn hafi verið bendlaðir við málið
af lög reglunni sjálfri áður en Erla
og aðrir sak borningar nefndu nöfn
þeirra í skýrslutökum og hvernig
það kom til að nöfn þeirra voru
nefnd.
Á eftir Erlu gáfu skýrslu frum-
rannsakendur Geirfinnsmálsins í
Keflavík, Valtýr Sigurðsson, þáver-
andi fulltrúi sýslumanns í Keflavík,
og Haukur Guðmundsson, þáver-
andi rannsóknarlögreglumaður.
Þeir svöruðu almennum spurn-
ingum um framkvæmd rannsókn-
arinnar, einkum um skjalahald og
skýrslutökur, en komið hefur í ljós
að töluvert af gögnum frumrann-
sóknarinnar hefur glatast. Þá voru
þeir spurðir um rannsókn á mönn-
um tengdum klúbbnum.
„Klúbburinn kom strax inn í
umræðuna vegna þess að Geirfinn-
ur hafði verið í Klúbbnum þarna
dagana á undan og hitt þar menn.
Þess vegna var verið að kanna og
lýsa eftir manni sem hefði talað við
Geirfinn í Klúbbnum,“ sagði Valtýr.
Haukur sagði sömuleiðis að ástæða
þess að Klúbbmenn hefðu dregist
inn í málið kynni að vera sú að
Geirfinnur hefði farið í Klúbbinn
skömmu fyrir hvarfið.
Einnig gáfu skýrslu fyrir dómi þrír
menn sem unnu að rannsókn Geir-
finnsmálsins sem hófst í Reykjavík
eftir að Erla og Sævar höfðu verið
handtekin vegna póstsvika. Rann-
sókn málsins virðist hins vegar
alveg horfin úr minni þeirra og gátu
þeir ekki svarað neinni spurningu
lögmanna efnislega.
Á vitnalista setts ríkislögmanns
voru þrír af þeim fjórum mönnum
sem Erla var sakfelld fyrir að hafa
borið á sakir. Magnús Leopoldsson,
fyrrverandi framkvæmdarstjóri
Klúbbsins, Valdemar Olsen og Einar
Bollason, bróðir Erlu.
Þeir lýstu allir deginum sem þeir
voru handteknir og upplifun sinni
í gæsluvarðhaldinu í Síðumúla. Þá
lýstu Magnús og Einar samprófun
með Erlu og sögðu báðir að Erla
hefði lýst atburðum í Hafnarbraut-
inni með svo nákvæmum hætti og
þeim hefði verið mjög brugðið við
hve sannfærandi hún var.
Aðspurðir minntust hvorki Einar
né Valdemar þess að lögreglan
hefði nokkru sinni sagt þeim um
hvaða brot þeir væru grunaðir eða
að þeir væru yfir höfuð sakaðir um
tiltekinn glæp.
„Ég man aldrei eftir því að neinn
hafi sakað mig um að hafa drepið
Geirfinn, heldur að ég hafi verið í
ferð,“ sagði Einar.
Fréttablaðið fjallar nánar um
skýrslutökurnar og aðalmeðferð í
máli Erlu á næstu dögum. n
Búnir að gleyma öllu um Geirfinnsmál
Erla Bolladóttir gaf skýrslu í héraðsdómi í gær um gæsluvarðhaldsvist og samskipti við lögreglu meðan Geirfinnsmál
var til rannsóknar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 Fréttir 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ