Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 31

Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 31
BÆKUR Tunglið, tunglið taktu mig Þorgrímur Þráinsson Útgefandi: Mál og menning Blaðsíðufjöldi: 215 Brynhildur Björnsdóttir Máney er 11 ára og býr í sveitinni. Hún á hund og heimalning, afa og ömmu, selur ástarpunga á hlaðinu og drekkur ölkelduvatn úr brunnin- um. Hún býr hjá afa sínum og ömmu af því mamma hennar er sendi- herra á Indlandi og pabbi hennar og bræður eru þar hjá henni. Einn daginn kemur strákur úr bænum til dvalar á næsta bæ. Hann á farsíma og gengur í hettupeysu og er skap- vondur og leiðinlegur við Máneyju. En þau verða svo góðir vinir, enda sveitin allra meina bót. Tunglið, tunglið taktu mig virð- ist í fyrstu vera sérkennileg blanda af gamaldags sveitarómantík og nútíma raunsæissögu af félags- legum vandamálum en hún leynir á sér. Sögustúlkan Máney er á einhverfu rófi og hefur mestmegnis verið alin upp af afa sínum og ömmu í þeirra gildum og hugmynd- um um heiminn. Bæjardrengurinn Sóli er fatlaður, kemur úr erfiðum félagslegum aðstæðum og á sér þá ósk heitasta að litla systir hans fái að koma líka í sveitina. Plottið í sög- unni hverfist um það að nokkru að uppfylla þessa ósk hans en annars gengur það út á að draga upp mynd af ævintýraheimi sveitarinnar þar sem lömb fæðast, f lór er mokaður, álftaregg bíða undir ofni eftir að klekjast út og álf konur birtast á fullu tungli. Þorgr ímur Þráinsson hef ur margra áratuga reynslu af því að skrifa fyrir börn og honum bregst ekki bogalistin hér, persóna Mán- eyjar hefur skemmtilegan frá- sagnarstíl og heimssýn sem auðvelt er að hverfa inn í og með fram er upplýsingum mjatlað inn í vitund lesandans um þann heim sem er umhverfis og hún jafnvel skilur ekki eða nennir ekki að pæla í. Í raun má segja að þetta sé sagan af tveimur börnum sem komið er fyrir í sveitinni vegna þess að nútímalíf, af einhverjum ástæð- um, hentar þeim ekki, Máneyju vegna taugaröskunar sem veldur því að hún ræður ekki við áreitið í umhverfinu og Sóla vegna hans félagslegu aðstæðna og líkam- legrar fötlunar. Bæði finna þau sér stöðu, gildi og ánægju í hinu ídyll- íska sveitalífi og þó stundum verði sveitarómantíkin aðeins of yfir- þyrmandi fyrir fullorðinn lesanda er nóg af ævintýrum til að halda ungum lesendum vel við efnið. ■ NIÐURSTAÐA: Ágætis bók um nútímabörn sem finna sig í nost­ algískri sveitasælu. Í sveitinni kolbrunb@frettabladid.is Ofankoma er yfirskrift sýningar Lilýar Erlu Adamsdóttur í Þulu. Sýningin er opin til og með 28. nóv- ember. Lilý Erla Adamsdóttir vinnur á mörkum myndlistar, hönnunar og listhandverks. Yfirborð eru henni hugleikin, hvort sem um ræðir yfirborð náttúrunnar eða mennsk- unnar. Líðandi form og lífræn endurtekning eru áberandi stef á sýningu sem fjallar um andartakið og eilífðina. ■ Andartakið og eilífðin Lilý Erla sýnir verk sín í Þulu. Líðandi form og líf- ræn endurtekning eru áberandi stef. Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Eliza Reid forsetafrú ræðir hér við konur á ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags um jafnrétti, atvinnulífið, móðurhlutverkið og margt fleira. Litrík mynd af íslensku nútíma- samfélagi – kostum þess og göllum. KVENSKÖRUNGAR „Heillandi innsýn í hvernig heimur með meira jafnrétti kynja gæti litið út og hvers vegna hann væri baráttunnar virði.“ HILLARY ROTHAM CLINTON ÞRIÐJUDAGUR 9. nóvember 2021 Menning 17FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.