Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 34

Fréttablaðið - 09.11.2021, Síða 34
Mitt markmið er að gera fiskinn hipp og kúl og koma honum þannig á framfæri. Heldurðu að Elísabet drottn- ing sé að fara að deyja? Guðný Ósk Laxdal enskukennari „Ég held hún sé hress. Þetta leit náttúrlega ekki vel út á tímabili og ég var með pínu áhyggjur af henni,“ segir enskukennarinn Guðný Ósk Laxdal um vangaveltur um heilsu Elísabetar Englands- drottningar eftir að hún eyddi nýlega nótt á sjúkrahúsi. „Ég myndi segja að spurningin ætti bara að vera: Er í lagi með hana? Og svarið er í raun og veru bara já. Hún tórir sko, held ég. Mamma hennar varð 102 ára þann- ig að það er í familíunni að tóra.“ Guðný skrifaði BA-ritgerð um konungsfjölskylduna og fjallar ein- beitt um kóngafólk sem @ royla- icelander á Instagram. „Ég er sko búin að vera að pæla í þessu,“ heldur Guðný áfram og hlær þegar hún tekur undir að vissulega hafi verið nokkuð um hliðstæður við aðdraganda þess þegar Filipus drottningarmaður lést í fyrra. „Þetta er rosalegt sko og maður spyr sig alveg. Hún átti bara að vera heima að hvíla sig og er svo bara komin á spítala yfir nótt.“ Guðný segir að ekki hafi bætt úr skák að hirðin hafi reynt að fela sjúkrahússvistina. „En svo sást hún keyra í Windsor og það væri varla verið að hleypa henni undir stýri ef hún væri ekki hress,“ segir Guðný og telur víst að ökuferðin hafi verið hugsuð til þess að sýna fram á að ekkert ami að drottningunni. „Hún er líka alveg að sinna skyldum og átti sinn fund með Boris Johnson. Bara gegnum síma þannig að það er ekki eins og hún sé rúmliggjandi.“ „Mig grunar að eina ástæðan sé hreinlega bara að þar er allt of mikið af fólki alls staðar að úr heiminum og það er ennþá Covid,” segir Guðný um fjarveru drottn- ingar á loftslagsráðstefnunni. „En hún tók ræðuna upp og var með upptöku í Glasgow og leit bara mjög vel út en sagði þar að það lifi ekki allir að eilífu. Hún náttúrlega er 95 ára þótt hún sé fullbólusett og það þarf að halda henni á lífi fyrir krýningar- afmælið á næsta ári. Það er búið að leggja pening í þessi veisluhöld og ekkert hægt að vera að setja hana í einhverjar hættulegar að- stæður.“ n n Sérfræðingurinn Guðný telur víst að drottningin muni halda upp á krýningarafmælið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY KVIKMYNDIR Last Night in Soho Leikstjórn: Edgar Wright Leikarar: Thomasin McKenzie, Anya Taylor-Joy, Matt Smith odduraevar@frettabladid.is Verandi hræddur við ógnvekjandi myndir var mér nokkuð brugðið þegar félagi minn spurði, rétt áður en Last Night in Soho hófst, hvort ég vissi ekki örugglega að hún væri sálfræði tryllir. Það kom þó ekki að sök þar sem ég er forfallinn aðdá- andi leikstjórans. Með Last Night in Soho sannar b r e s k i l e i k - stjór inn Edgar Wright að fátt er honum of viða. Hvort sem það er spennumynd eins og Baby Driver, grínmyndir eins og Cornetto-þrí- leikurinn eða sálfræðitryllir eins og þessi. Hann skilar alltaf góðu verki. Í Last Night in Soho fylgjum við eftir tískustúdentinum Ellie Turner þegar hún flyst frá ömmu sinni til Lundúna í fatahönnunarnám. Ellie elskar tónlist og tísku sjöunda ára- tugarins og dregst á dularfullan hátt aftur til Lundúnaborgar þess tíma. Söguþráðurinn er virk ilega frumlegur og handrit þeirra Edgar Wright og Krysty Wilson-Cairns heldur manni þannig við efnið að manni leiðist aldrei. Sérstaklega er mælt með að kynna sér myndina sem minnst, því eðli málsins sam- kvæmt er best að vita sem minnst um á hverju er von. Kvikmyndatak- an og hljóðvinnslan er svo til fyrir- myndar og hefur á sér öll þekktustu fingraför breska leikstjórans. Hin 21 árs gamla Thomasin McKenzie, sem flestir muna eftir úr Jojo Rabbit, brillerar í aðalhlutverk- inu sem Ellie og tekst vel að halda myndinni uppi. Anya Taylor-Joy, aðalleikkona skákþáttanna Queen's Gambit, er hins vegar senuþjófur sem hinn dularfulli tvífari Ellie frá sjöunda áratugnum. Matt Smith skilar sínu eins og var að vænta, rétt eins og hinn lítt þekkti Michael Ajao, en best er líklega hin háaldr- aða Diana Rigg sem hér syngur sinn svanasöng í síðustu bíómynd sinni en hún lést í fyrra. n NIÐURSTAÐA: Last Night in Soho mun heilla kvikmyndaunnendur sem þyrstir í frumlega bíómynd og hefur á sér þekktustu fingra- för Edgar Wright en er samt hans frumlegasta mynd til þessa. Tískutryllingur með Edgar Wright Magnús Már Hauksson opnaði veitingastaðinn Íslendinginn, eða Der Isländer, í þýsku borginni Dortmund þar sem hann leggur áherslu á að bjóða upp á allt það góða sem Ísland hefur fram að færa; íslenskan fisk, bjór og fleira góðgæti frá heimalandinu. svavamarin@frettabladid.is „Það má segja að þetta sé íslensk fersk f iskbúð og nútímaleg ur skyndibitastaður, auk þess sem við bjóðum upp á úrval af íslenskum vörum. Við f lytjum inn íslenska kokteilsósu með fisknum og bjóð- um upp á bjór frá Einstakri ölgerð ásamt því að selja súkkulaði frá Nóa Síríusi, Omnom, harðfisk, Saltverk salt, brennivín og erum með þeim fyrstu til að bjóða upp á íslenskt skyr,“ segir Magnús og bætir við að staðurinn verði að standa undir nafni með því að hafa allt íslenskt. „Ég bjó í München og var nýbúinn með master í rekstrarverkfræði þegar ég datt inn í þetta verkefni og var spurður hvort ég vildi vera með af bæði þýskum og íslenskum fjárfestum. Við fórum í ítarlega greiningu og sáum að það var lítið um fiskneyslu í Þýskalandi. Ég vildi breyta því.“ Þraukað að hætti víkinga Að sögn Magnúsar setti heimsfar- aldurinn stórt strik í reikninginn hjá Íslendingnum sem var opnaður í september 2020. „Það skall á svokall- að „lock down“ í Þýskalandi í des- ember svo við lokuðum fyrir allan gestagang í átta mánuði. Það reyndi ákveðið á okkur en við ákváðum að vera eins og víkingarnir og þrauka þetta,“ segir Magnús kíminn. Hann segir reksturinn hafa siglt í gegnum þetta meðal annars með lokunarstyrk frá ríkinu. „Við sigld- um í gegnum þetta og erum komin um 80 prósent í fyrra horf þar sem það er enn grímuskylda og bólu- setningarvottorð inn á veitinga- staði.“ Matseðillinn þrautaganga Íslendingurinn hefur verið að fikra sig áfram með matseðilinn til að sjá hvað virkar. „Þjóðverjinn er ansi vanafastur en samt forvitinn um Ísland. „Í upphafi vorum við með plokkfisk og fiskisúpu sem gekk vel í nokkrar vikur en við fundum svo að það var ekki nógu spennandi í útliti þegar fólk var að fara út að borða.“ Steiktur fiskur og fiskborgarar eru meðal þess vinsælasta þar sem valið á meðlæti stendur milli kart- öflusalats, franskra eða hrásalats ásamt íslenskri kokteilsósu. „Við erum með E. Finnsson kokteilsósu til þess að Þjóðverjinn fái að prófa þessa góðu íslensku eins og við þekkjum hana,“ segir Magnús og hlær. Þjóðverjar áhugasamir Að sögn Magnúsar hafa Þjóðverjar tekið staðnum afar vel og ánægja er með matinn. „Bæði skyndibitann og ferska fiskinn sem við fáum frá Íslandi. Við erum að prufa okkur áfram í að gera tilbúna fiskrétti eins og við þekkjum í fiskbúðum heima á Íslandi,“ segir Magnús. „Þorskur, ufsi og karfi er mest keyptur, ásamt mar- ineruðum laxi í ostasósu, barbeque og teriaki. Við höfum reynt þorsk í pestó, basil og hnetu, en Þjóðverjinn virðist ekki alveg ætla að stökkva á þá lest,“ segir hann og hlær. Magnús reynir að ná til yngri kynslóðarinnar með því að útfæra fiskinn skemmtilega. „Mitt mark- mið er að gera fiskinn hipp og kúl Íslenskur matur í sókn í Þýskalandi Magnús Már stefnir á matarútrás frá Dortmund þar sem Der Isländer hefur gengið vonum framar. MYND/AÐSEND Íslendingurinn, eða Der Isländer, er að gera það gott í Dortmund. Þjóðverjar hafa tekið íslenskum mat og drykk fagnandi. MYND/AÐSEND Drottningin mun tóra áfram en ekki að eilífu og koma honum þannig á framfæri þar sem þetta er frábær matur. Viðtökur Íslendinga hafa að sama skapi verið afar góðar og þeir keyra jafnvel hingað í einn til tvo klukku- tíma til að heimsækja okkur, sem er bara frábært. Þeir eru líka dug- legir að senda okkur fyrirspurnir um hvort þetta eða hitt sé til. Þá reynum við að sjálfsögðu að leggja þeim lið og sjá hvort við getum ekki fengið það í sölu hjá okkur þar sem við erum með mesta vöruúrval af íslenskri vöru í Þýskalandi.“ Stefna lengra Magnús segir mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytt úrval af íslenskri vöru á einum stað og er opinn fyrir því að taka inn nýjar vörur og hvet- ur þá sem vilja koma vörunni sinni á framfæri til að láta á það reyna. „Sumar ganga og aðrar ekki, en það sakar ekki að prófa.“ Hann segir verkefnið hafa gengið vonum framar og staðinn hafa fengið góðar einkunnir á vefnum. „Núverandi staðsetning er frábær byrjun þar sem við erum á þéttbýl- asta svæði Þýskalands og stefnum á að opna f leiri í nærliggjandi bæjum,“ segir hann bjartsýnn. Nánari upplýsingar eru á Der Isl- änder á Facebook og Der.islaender á Instagram. n 20 Lífið 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 9. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.