Huginn - 01.04.1953, Síða 3

Huginn - 01.04.1953, Síða 3
HUGINN BLAÐ SAMVINNUSKDLANEMENDA — 3. TÖLUBLAÐ 1953 RITNEFND; ORLYGUR HALFDANARSDN, GUNNAR Á. JDNSSGN, PÁLL GUÐBJARTSSDN RITSTJÓRI: GÍSLI SIGURDSSON Þetta er nú þriöja blaðið, sem við gefum út í vetur. Tvö fyrri blöðin fjölrituðum við sjálf- ir, en þar sem margar orsakir lágu til þess, að frágangur þeirra varð ekki sem beztur, aðal- lega vegna þess, hve slæmur pappírinn var, tókum við núna upp þá nýbreytni að láta prenta það. Það varð að vísu allmikill kostn- aður við það, en við höfum fengið pappír og stensla ókeypis í hin blöðin, svo okkur finnst, að fært sé að vanda til þessa síðasta blaðs skólaársins á kostnað hinna. Eins og oft vill við brenna í félagslífi, hef- ur vinnan við að koma út þessum blöðum að- eins lent á örfáum mönnum. Ritnefndin hefur staðið á biðilsbuxum eftir efni í allan vetur, og að vísu hafa margir brugðizt vel við, og látið af hendi rakna oftar en einu sinni. En hinsvegar vissum við, að margir sátu hjá, sem jafnvel betur gátu en hinir. Sá félagslegi van- þroski að láta allt, sem þarf til að halda uppi félagslífi, koma niður á örfáa menn, og skella svo skuldinni á þá ef illa fer, er ekkert einsdæmi hér í skólanum. En þaö er einmitt í Samvinnuskólanum, sem mönnum ætti að vera öll samvinna svo kær, að allir beri byrð- arnar sameiginlega, því margar hendur vinna létt verk. Skólastjórinn, hr. Jónas Jónsson, og Sig- ríður Ingimarsdóttir kennari hafa í þetta sinn lagt hönd á plóginn með okkur, og var þó ekki út leitað viðfanga vegna þess, að eigi væri gnótt inni fyrir, svo sem hjá Gunnari á Hlíð- arenda forðum, heldur var það til að prýða blaðið sem verða mætti. Þá hefur Jónas Kristjánsson kennari lagt okkur lið með því að lesa yfir handrit. Að lokum vill ritnefndin þakka þeim, er stutt hafa að útgáfu blaðsins, og óskar mönn- um árs og friðar. Verkefni æskumanns Hver kynslóð í landinu fær ný verkefni. Og dómurinn um hverja kynslóð fer eftir því, hversu vel tekst að leysa aðkallandi vanda- mál. Sennilega er á hverjum tíma jafnmikill þróttur í því fólki, sem uppi er í landinu. Hins vegar munar mjög miklu á afköstunum. Sumar kynslóðir eru atorkusamar. Aðrar mjög athafnalitlar. Að líkindum er gæfa hverrar kynslóðar fólgin í því að erfa stór og erfið viðfangsefni. Erfiðleikarnir einir knýja menn fram til stórvirkja og dáða. Á síðari öldum hafa tvær kynslóðir afkast- að mestu verki. Fjölnismenn og Jón Sigurðs- son vöktu íslendinga, lögðu grundvöll að þjóðlegum bókmenntum og pólitísku sjálf- stæði þjóðarinnar. Þar var við nóga erfið- leika að etja. ísland var amt í Danaveldi, án nokkurrar heimastjórnar. Danskir stjórnar- hættir lágu eins og farg á þjóðinni, og höfðu þjáð íslendinga öldum saman. En kynslóðin, sem var ung 1830, leysti þessi verkefni með miklum glæsibrag. Næsta kynslóð, sem réði fram úr mörgum vandamálum, var ung um síðustu aldamót. Þá var vélaiðjan að teygja arma sína til fs- lands. Hið forna gat ekki staðið í sömu spor- um og áður. Menn fóru þá að sækja aflann út á hafið með stórvirkum tækjum, bylta óræktaðri jörð, reisa hús úr varanlegu efni, leggja vegi, brýr og símalínur, koma á fót sjúkrahúsum og skólum. Sú kynslóð fékk næga erfiðleika og leysti mörg þýðingarmikil verk- efni. Kynslóðin, sem gekk út á leiksviðið um 1950, fær í einu erfið og merkileg viðfangsefni. Þessvegna getur hún orðið stór af verkum sínum. Hún fær í arf nýfengið frelsi, en ó- tryggan fjárhag sökum stríðsáhrifa og gjafa frá annarri þjóð. Meginhluti þjóðarinnar býr nú í þéttbýli við sjóinn við margskonar tækni. Meginverkefni unga fólksins er að verða heppilegur tengiliður milli þess, sem var, og

x

Huginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Huginn
https://timarit.is/publication/1602

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.