Huginn - 01.04.1953, Síða 13

Huginn - 01.04.1953, Síða 13
H U G I N N 13 honum var farið aö þykja vænt um, — að minnsta kosti ekki strax. Hún skyldi dvelja áfram í París, hann mundi hjálpa henni. Hann átti mikils megnuga vini, er áttu bóka- útgáfu og þeir gáfu meðal annars út sál- fræðileg skrif; við þá ætlaði hann að tala. Tveim dögum síðar var málið útkljáð. Sylvía átti að skrifa fjölda greina fyrir bókaútgáf- una og hafði föst laun 3000 franka á mán- uöi. Hún hafði frjálsar hendur hvað efnisval snerti, en greinar hennar skyldu helzt fjalla um læknisfræðilega sálfræði og andlega heilsufræði. Jaques þurfti því miður að fara burtu um nokkurt skeið til að heimsækja móður sína heima í Belgíu. Þann 26. júlí skrif- aði hann henni frá Bruxelles, að móðirin hefði verið flutt á spítala vegna lífshættulegrar lim- lestingar, er hún varð fyrir í bílslysi. í febrúar næsta ár sagði hann henni, að hann hefði ákveðið, í samráði við belgíska blaðasambandið, að verða fréttaritari þess í Ameríku. Sylvía neyddist því til að fara heim í veg fyrir hann, því hann ætlaði fljótlega að koma á eftir. En það kom brátt í Ijós, að Jaques átti erfitt með að fá landvistarleyfi og varð brátt fullviss um, að hann fengi ekki ferðaleyfi til Bandaríkjanna. Þau höfðu sí- fellt haft skeytasamband með sér, á meðan hann var að reyna að fá leyfið. Sylvía var svo í þann veginn búin að sætta sig við, að hann kæmi aldrei. Hún hafði nú fengið stöðu við Velferðarstjórnardeildina í Brooklyn. En Jaques kom þó seint um síðir til New York í september 1939 eða örfáum dög- um eftir að síðasta heimsstyrjöld skall á. Jaques hafði fengið sér annað nafn og kall- aði sig nú Frank Jackson. Hann sagði Sylvíu, að ástæðan til þess væri sú, að hann yrði ann- ars sem belgískur borgari kallaður heim og þá hefði hann aldrei sloppið til U. S. A. Það var af ást til hennar, að hann hafði tekið sér annað nafn og borgað 3500 dollara fyrir fals- aðan kanadískan passa. Hann var því neydd- ur til að fara varlega. Þegar hann skipti um nafn, varð hann einnig að skipta um lífsstöðu. Hann var hætt- ur að skrifa. Sylvía gleypti söguna hráa og sætti sig við, að hann væri nú kaupsýslumað- ur og sendi bandamönnum bráefni; það voru nógir peningar í því fyrirtæki, sagði hann. í október sama ár fór hann til Mexíkó- borgar. Hann skrifaði henni mörg ástarbréf og sagði henni, að hann væri mjög einmana og bað hana að koma, því hann gæti ekki án hennar verið, og nú græddi hann svo vel, að hann gæti séð fyrir þeim báðum. í janúar 1940 tók svo Sylvía þriggja mán- aða frí og flaug til Mexíkó. Þau voru mjög hamingjusöm yfir að vera nú aftur saman. Systir Sylvíu vann stöðugt fyrir Leon Trot- zky og margir af vinum hennar tóku á móti henni tveim höndum. Sylvía kynnti unga manninn sinn fyrir þeim öllum. í marz varð hún að fara aftur til starfa sinna í Brooklyn, en gerði allt sem í hennar valdi stóð til að halda við samband- inu við hina mörgu vini, sem hún hafði eign- azt í Mexíkö. Einkum vildi hún halda nánum kunningsskap við Rosmers-hjónin, sem höfðu gegnt nokkru hlutverki í franska kommúnista- flokknum. Þau höfðu seinna flutt burtu og voru nú í nánum kynnum við Trotzky. Rosmers-hjónin bjuggu meira að segja hjá honum. Þegar Frank Jackson — sem nú var nefnd- ur svo — heyrði, að Rosmers-hjónin áttu að ferðast frá Vera Cruz til Frakklands og að frú Trotzky vildi gjarnan fylgja þeim til skips, bauð hann þeim að aka þeim til Vera Cruz og var það þegið með þökkum. Þau áttu að hefja ferðina þann 28. maí, en þann 24., nokkrum tímum fyrir miðnætti, var ráðizt á verðina við hús Trotzkys af þrjátíu mönnum í mexíkönskum einkennisbúningum, undir stjórn foringja í ofurstabúningi. Einn af líf- vörðunum, Robert Sheldon Harte, var neydd- ur inn í bíl. Maður með vélbyssu var settur við innganginn og síðan var skotið í gegnum alla gluggana. Trotzky og kona hans stukku fram úr rúminu og földu sig. Þau heyrðu hóp manna ryð.iast inn í svefnherbergið, þar sem þeir sáldruðu skotum úr hríðskotabyssu yfir rúmið, en síðan héldu þeir á braut, auðsjá- anlega vissir um að hafa gert upp við Trotzky og frú hans að fullu. Bílnum var ekið á braut, en hinn burtnumdi Robert Harte fannst dauður um morguninn. Þessi leyndar- dómsfulla árás komst aldrei upp. Fjórum dögum eftir morðtilraunina ók svo vinur Sylvíu Rosmershjónunum og frú Trozky til Vera Cruz. Hann kom til hússins nokkru fyrr heldur en ráð var fyrir gert, svo að honum var boðið til morgunverðar með fjölskyldunum. Það var í fyrsta sinn sem hann heilsaði Trotzky persónulega — þessum manni, sem var samherji Nikolai Lenins og

x

Huginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Huginn
https://timarit.is/publication/1602

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.