Huginn - 01.04.1953, Page 16
16
H U □ I N N
Fréttapistlar úr Samvinnuskólanum
Það má til tíðinda telja, að sú nýbreytni var
tekin upp mánudaginn 9. marz, að menn
komu saman og spiluðu framsóknarvist eða
félagsvist og bar sigur úr býtum Árni Jóns-
son, sem náttúrlega er í deild A-l. Á eftir var
dansað og léku þeir Sveinn Hafberg og Gunn-
ar Á. Jónsson fyrir dansinum. Gestir voru all-
margir og samkoman hin virðulegasta. Negra-
dansar sáust alls ekki og togleðurs-jórtri var
mjög í hóf stillt. Pétur Rögnvaldsson heiðr-
aði samkomuna með nærveru sinni.
Fundur var haldinn í skólafélaginu nýlega
og var rætt um væntanlegt vorferðalag. Pét-
ur Rögnvaldsson hafði framsögu um málið og
hafði mörg orð þar um, með tilheyrandi
bægslagangi og handsveiflum. Eftir málþóf
mikið var skipuð nefnd til að taka á móti
og vinna úr tillögum um málið. Bárust henni
alls þrjár tillögur um ferðalagið, þar af var
ein viðvíkjandi 5 daga ferðalagi til Akureyr-
ar og fylgdi henni nákvæm kostnaðaráætlun,
en sá galli var á henni, að margfalda þurfti
upphæðina með tveim eða meira til þess að
hún gæti staðizt, en þá var hún orðin þrisvar
sinnum hærri en ferðalagsssjóðurinn. Höf-
undur tillögunnar er í deild A-2, sem vænta
má. Þá kom fram tillaga um ferð til Stykkis-
hólms og Breiðafjarðareyja og Snæfellsness.
Einnig var önnur tillaga, sem næstum var
eins, nema gert var ráð fyrir að fara að Stað-
arfelli í Dölum í staðinn fyrir Snæfellsnes.
Gert var ráð fyrir að halda ball að Staðar-
felli og í Stykkishólmi og jafnvel að æfa
einhver smá-skemmtiatriði, en Ragnheiður
taldi þá Hólmara ekki vera uppnæma fyrir
andi, og var rokinn burtu um leið aftur.
Ég var nú orðinn uppfullur af leiðindum út
að borðinu til að kæla sig. ,,Þú færð að splæsa
heim í rúm og sofnaði fljótlega.
Um það leyti er fyrsta dagsskíman var að
brjótast inn um gluggatjöldin, læddist Bjössi
inn í herbergið. Ég vaknaði við marrið í hurð-
inni. „Hvernig gekk?“ spurði ég svefndrukk-
inni röddu. „Svona,“ svaraði hann seint og
dauflega, „— — Hvar á ég að bjóða þér í
kaffi á morgun?“ - — S. J.
slíkum hégóma. Þá skyldi fara með bát út í
eyjar ef veður leyfði. Síðarnefnda tillagan
var samþykkt á fundi eftir miklar umræður
milli þeirra, sem vitrir voru fyrirfram og
einhvers sem var vitur eftir á.
Hr. kaupfélagsstjóra, Magna Reyni Magn-
ússyni, var opinberlega veitt viðurkenning
fyrir óeigingjörn störf í þágu kaupfélagsins og
skólafélagsins. Þótti hann vel að heiðrinum
kominn.
Það hefur þó verið til vonbrigða fyrir ýmsa
sportidíóta innan skólans, að ekki hafa feng-
izt heilhveitivínarbrauð í kaupfélaginu að
neinu ráði í vetur, og reikna þeir með held-
ur minni afrekum í sumar fyrir bragðið. Vín-
arbrauðin hafa kostað eina krónu í vetur hjá
Magna, en ýmsir telja það einni krónu of
mikið.
„Landskeppni“ í frjálsum iþróttum fór
fram milli deildar A-1 og A-2, sunnudaginn
1. marz, í skála KR í Kaplaskjóli. Keppt var
í þrem greinum og urðu úrslit sem hér segir:
Kúluvarp:
1. Guðjón B. Ólafsson A-1 ........ 14,33 m
2. Ólafur Þórarinsson A-2 ........ 14,21 —
3. Ásgeir Þ. Óskarsson A-1 ....... 13,35 —
4. Einar Einarsson A-2............ 10,52 —
Stig fyrir kúluvarp: A-l:7, A-2:4.
Hástökk með atrennu:
1. Gunnsteinn Karlssson A-1 ....... 1,65 m
2. Ólafur Þórarinsson A-2 ......... 1,60 —
3. Einar Einarsson A-2............. 1,50 —
4. Guðjón B. Ólafsson A-1 ......... 1,50 —
Stig fyrir hástökk: A-l:6, ,A-2:5.
Langstökk með atrennu:
1. Guðjón B. Ólafsson A-1 ......... 5,85 m
2. Gísli Sigurðsson A-1 ........... 5,83 —
3. Ólafur Þórarinsson A-2 ......... 5,20 —
4. Einar Einarsson A-2 ............ 5,06 —
Stig fyrir langstökkið: A-l:8, A-2:3.
Stig alls: A-l: 21, A-2: 12.
Mótið var hið ánægjulegasta og árangur
fremur góður, en þátttaka var í daufara lagi