Huginn - 01.04.1953, Page 19

Huginn - 01.04.1953, Page 19
HUGINN 19 Sem kólfi skotið Það var síðla dags, að ég var að fá mér morgungöngu. Gekk ég þá framhjá íþrótta- vellinum á Melunum, og sá Pétur Rögnvalds- son þar á göngu. Var hann að virða fyrir sér mannvirki þau, sem hann hafði unnið að síðastliðið sumar. Dettur mér þá i hug, að helztu æviatriði þessa merkilega og sérkenni- lega manns ættu það skilið að klínast í prent- svertu. Reyni ég að nálgast Pétur, en gengur það illa, því að hann er hugsi og stígur stór- um. En með dugnaði mínum og kænleik heppnast mér það að lokum. Pétur rekur upp stór augu, þegar hann sér mig svona nálægt íþróttavellinum. Jæja, ég segi honum frá er- indi mínu og tekur hann allvel í það. Sett- 21. DxRd2 BxBd2 22. DxBd2 HxHf4 23. HxHf4 bxHf4 24. bxc5 D-a5 Hótar máti með D-el eða peðsvinning og svartur hefur léttari stöðu. 25. a-3 H-f8 26. Hxf8 KxHf8 27. K-f2 g-6 28. K-e2 D-b5 Tapleikur svarts, því hvítur verður á undan með kónginn upp að peðunum. 29. DxDbö cxDb5 30. K-d3 K-e8 31. K-e3 K-d7 Svartur átti hiklaust að leika a-5 í 31. leik og hann heldur sennilega jafntefli. 32. K-b4 K-c6 33. K-a5 h-5 Dauðateygjur hjá svörtum. 34. h-4 e-5 35. K-a6 exd4 36. exd4 K-c7 37. Kxa7 K-d7 38. K-b6 K-e6 39. Kxb5 K-f5 40. c-6 K-e4 41. K-c5 K-f4 42. c-7 K-g3 43. c-8 Kxh4 44. Kxd5 g-5 45. D-g4 M á t ist ég á stein, sem þar var, og setti ritvélina, sem ég hafði meðferðis, á hné mér, því að ég vissi af fyrri kynnum mínum við Pétur, að ekki dugði að hafa einungis blýant og blað, þar sem maðurinn er sérstaklega hraðmælsk- ur. Ég byrja á því að spyrja Pétur hvar og hve- nær hann sé fæddur. „Ég er fæddur á Siglufirði, í bænum, sem hefur bjargað þjóðarbúskapnum í fjölda mörg ár, þann 22. apríl árið x (fæðingarári haldið leyndu) á leiðinni til spítalans.“ „Hvaðan?“ spyr ég. „Ég veit það ekki, því að ég fæddist ekki fyrr.“ „Auðvitað," segi ég og roðna vegna þessar- ar heimskulegu spurningar. Ég sé á þessu, að Pétur er alveg óheimskur maður og læt- ur óvitið ekki hlaupa með sig í gönur. „Jæja, hve lengi varstu á spítalanum?“ „Þangað til ég var búinn að ná mér það vel, að ég gat farið heim og þar var ég til 9 ára aldurs.“ „Hvað gerðirðu svo á sumrin?“ „Á sumrin var ég bílstjóri (með pottlok í höndunum, ha?!) eða flæktist bara fyrir. Var ég aðallega á síldarplönunum. Einu sinni þótti yfirmanninum ég vera heldur til trafala og barði hann mig, svo að mig sárkenndi til. Tók ég þá saman allt mitt hafurtask og fór til höfuðborgarinnar og hef átt hér heima síðan.“ „í hvaða skólum hefurðu starfað?“ spyr ég. „Fyrst var ég í barnaskóla, en brátt var ég hækkaður í tign og var settur í Gagnfræða- skóla Vesturbæjar.“ „Varstu þar allt skólaárið um kring?“ „Nei, nei, ég mátti ekki vera að því. Ég þurfti að vinna eins og aðrir fullorðnir menn. T. d. vann ég á Vellinum s.l. sumar.“ Þegar Pétur segir Völlurinn, þá meinar hann auð- vitað íþróttavöllinn. „Hvað geturðu sagt mér af þeirri stöðu þinni?“ spyr ég. „Það er nú margt, maður. T. d. einu sinni vildi ég fara að leika mér í sandhrúgu, sem var þar. Þá kom verkstjórinn, en hann vildi ekki neinn leikaraskap, tók í hálsmálið á mér og buxnastrenginn og fleygði mér ofan í skurð. Síðan hef ég aldrei flogið nema hug- myndaflug.“ „Hvað skeði svo?“ spyr ég eftirvæntingar- fullur.

x

Huginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Huginn
https://timarit.is/publication/1602

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.