Dagrenning - 01.12.1939, Side 5
DAGRENNING 423
Fyrir það kveikjum vér Ijós hina heilögu jóla-
nótt, til þess að festa með oss ljósið, sem ljómaði af himnum
í gegn um öll myrkur. Fyrir það kveikja börnin ljós, — að
minna á föðurinn, semgaf ljósið, — ljósið, sem eyðir skamm-
deginu, skín í náttmyrkrinu — friðar mennina, — ljósið, sem
boðar oss lengri dag, bjartar nætur, líf í dauðanum, eilífan
frið og fögnuð.
Þetta ljós eru jólin.
Dagrenning óskar öllum gleðilegra jóla og allrar
farsældar á komandi ári, —óskar, að allir megi njóta birtunn-
ar af hinu sanna jóla-ljósi, — að það megi lýsa mönnunum á
vegum þessa heims, — lýsa inn í hjörtu mannanna. — ]ýsa
upp allan heiminn.
Megi sú ósk verða upp fylt.
G. P. M.
3W
★
1)
lasa við oss blessuð jólin,
birtu’ oss veitir náðar sólin.
Það er hún, sem lýsir lífið,
land og allt, sem skapað er,
Hennar geislar veg oss vísa
á vorri leið, er öldur íísa.
Móti hennar geislum göngum
götu lífs á jörðu hér.