Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1943, Blaðsíða 13
7
er, enda er á skýrslum úr einstöku sveituin varla nokkur kind talin hafa
gengið úr tölu af öðrum orsökum en mæðiveiki.
Á töflunum II a.—II k. er svnt í hverri sýslu fyrir sig og á mæðiveiki-
svæðinu í heild, hve mörg % af ánum hafa farizt úr mæðiveiki, frá því
þær voru lömb til 1. jan. 1942, af hverjum árgangi í öllum flokkum, en
heimilin eru hér flokkuð eftir því á hvaða ári mæðiveikinnar varð fyrst
vart í fénu.
Austur-Húnavatnssýsla.
Tafla II a. sýnir niðurstöðurnar í Austur-Húnavatnssýslu. Þar virð-
ist draga nokkuð úr vanhöldunum, eftir því sem veikin er lengur í fjár-
stofnunum. Af ánum, sem fæddar eru 1940 og voru því á 2. vetri 1. jan.
1942, hefur drepizt mun minna á þeim heimilum, sem fengu veikina
1936 og 1937 en á heimilum, sem fengu hana 1939 og 1940. Á bæjum, sem
veikin kom á 1936, voru 5,8% af ánum á 2. v. dauðar úr mæðiveiki 1.
jan. 1942, en 16,2% eða ca. þrisvar sinnum fleiri af jafngömlum ám á
hæjum, sem veikin kom á 1940.
Af ánum, sem fæddust 1939, voru dauðar úr mæðiveiki 1. jan. 1942,
16,5% á bæjum, sem veikin kom upp á 1936, en 33,7% eða helmingi
fleiri á bæjum, sem veikin kom á 1939.
Lítill munur er á vanhöldum í ánum, sem fæddust 1938, en þó er að-
eins meira af þeim dautt á bæjum, sem veikin kom upp á 1938 en 1936.
Haustin 1936 og 1937 var svo fátt af lömbum alið upp á lieimilum,
sein veikin kom til þau sömu ár, að ekki er mikið mark takandi á iit-
komunni á þvi fé.
Vestur-H únavatnssýsla.
Tafla II b. sýnir, hvernig unga fénu hefur reitt af í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Af ám á annan vetur, f. 1940, var mun fleira dautt á bæjum, sem
veikin kom til 1939 og 1940, en á bæjum, sem veikinnar varð vart á 1936
og 1937.
Hliðstæð útkoma er á ánuin á 3. vetri, l'. 1939. Af þeim voru 18,1%
dauðar á bæjum, sem veikinnar varð vart 1936, en 28,8% á bæjum, sem
veikin kom á 1939.
28,6% var dautt af ánum f. 1938 á bæjum, sem veikin kom til 1936,
en 38,9% hjá þeim, sem fengu veikina í stofninn 1938.
Sýnir þetta, að vanhöldin í V.-Húnavatnsýslu minnka nokkuð, eftir
því sem lengra líður frá því að veikin kom í fjárstofnana.
Dalasýsla.
í Dalasýslu voru vanhöldin af völdum mæðiveiki minni, en í Húna-
vatnssýslunum (Tafla II c.). Af jafngömlu fé var mun meira dautt
því síðar, sem veikin kom í stofninn. Virðast því vanhöld af völdum
mæðiveiki í Dalasýslu fara minnkandi, eftir því sem veikin er lengur í
stofninum.