Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1943, Blaðsíða 23
17
Til þess að noklcur von sé um að vinna megi bug á mestu vanhölcb
unum af völdum mæðiveikinnar og auka viðnámsþrótt. fjárins gegn
veikinni, svo búandi verði við það sem framtíðar bústofn, þá verða
bændur að beita eftirfarandi ráðum í baráttu sinni við mæðiveikina:
1. Forðast verður að ala upp nolckurn hrút af nærnu fjárkyni.
2. Drepa verður alla hrúta eftir að það kemur í ljós, að annaðhvort
foreldri þeirra eða bæði drepast úr mæðiveiki.
3. Forðast verður, af fremstu getu, að ala upp gimbrar undan foreldr-
um, sem tekið hafa veikina eða eru af næmum ættum.
4. Þeir, sem eiga næmt fé, þurfa að fá a. m. k. hrúta af eins hraustu
kyni og völ er á, og gimbrar eftir því sem ástæður leyfa.
5. Þeir, sem eiga sæmilega hraust fé, mega alls ekki bianda i ]>að fé
af óhraustari stofnum.
Baráttan við mæðiveikina verður enn um skeið mjög erfið, en líkur
benda þó til þess að takast megi, með ræktun fjárins, að draga svo úr
vanhöldunum, að sauðfjárræktin verði enn sem fyir traust atvinnugrein.