Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1943, Qupperneq 15

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.05.1943, Qupperneq 15
9 1 þessum sýslum hefur veikin ekki náð mikilli útbreiðslu og víðast- hvar ekki orðið vart fyrr en 1939 og 1940. Er því ekki unnt að sjá enn, hvort veikin muni réna þar, eftir þvi sem hún er lengur í fjárstofnunum. Niðurstöður þessar sýna þó, að veikin virðist enn mjög ska»ð í stofn- um, sem hafa verið fá veikina siðustu árin. Mæðiveikisvæðið. Tafla II k. sýnir vanhöldin, af völdum mæðiveiki, í öliu fé, sem alið liefur verið, upp eftir að mæðiveiki kom í ljós í fjárstofnunum, að undan- teknum þeim fáu lireppum, sem engar skýrslur sendu um uppeldi og vanhöld unga fjárins. Ærnnr sem fæddust Á.heimilum, sem veikinnar varð vart á 1936, hafa 6280 gimbrarlömb ^erið sett á haustið 1940. Af þeim var dautt úr mæðiveiki 6% 1. jan. 1942. Af 9117 gimbrum, sem voru settar á haustið 1940, á bæjum, sem veik- in kom í féð á árinu 1937, voru 7,4% dauðar úr mæðiveiki 1. jan. 1942. Af sömu orsökum voru dauðar 7,3% af 5407 gimbrum, sein settar voru á baustið 1940, á heimiluin, sem veikin kom í Ijós á árinu 1938. Af 3128 gimbrarlömbum, sem sett voru á haustið 1940, á bæjum, þar sem veikinnar varð vart árið 1939, voru 14,3% dauðar 1. jan. 1942 eða ca. helmingi fleiri en dauðar voru á sama tíma af jafngömlum ám á bæjum, sem veikin kom upp á árið 1938 og 1937. Á heimilum, sem veikinnar varð fyrst vart á 1940, voru settar á vetur 1821 gimbur haustið 1940. Af þeim var 17,5% dautt úr mæðiveiki 1. jan. 1942, eða hérumbil þrisvar. sinnum meira en dautt var á sama tíma af jafn g'ömlum ám á heimilum, þar sem veikinnar varð vart 1936. Eftir þessari rejmslu að dæma, sem byggð er á afdrifum fleiri þúsund einstaklinga, á mörg hundruð heimilum, virðist að meðaltali draga all verulega úr vanhöldum af völdum mæðiveiki á yngsta fénu, sem alið er upp eftir að veikin hefur verið 2—3 ár í fjárstofninum. Ærnar. sem fæddust 1939. Af 6355 ám, fædduin 1939, á bæjum, þar sem mæðiveiki varð vart árið 1936, var 21,5%dautt úr mæðiveiki 1. jan. 1942. Á sama tíma var dautt úr mæðiveiki 21,8% af 9704 jafngömluiu ám á heimilum, þar sem veikinnar varð vart árið 1937. Á heimilum, þar sem veikin kom í féð árið 1938, voru 4334 gimbrar settar á vetur haustið 1939. Af þeim var 23,3% dautt úr mæðiveiki 1. jan. 1942. Haustið 1939 voru 2185 gimbrar settar á vetur á heimilum, þar sem mæðiveiki varð fyrst vart árið 1939. Af þeiin var 29,9% dautt úr mæði- veiki 1. jan. 1942, eða tæp 40% meira en dautt var á sama tíma af jafn- gömluin ám á bæjum, þar sem veikinnar varð vart 1936.

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.