Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 5

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 5
Inngangur. Hér á landi eru allmörg kartöfluafbrigði í ræktun, sem menn á ýms- um tímum hafa flutt inn til reynslu í leit að nýjum uppskerumiklum kartöflum. Önnur kartöfluafbrigði hafa verið flutt inn til matar í kart- öflueklu, en síðan verið tekin til ræktunar af einstaklingum. Víða hefur þessum afbrigðum verið haldið i hreinni ræktun árum saman og útsæðis- úrval miðað við ákveðna eiginleika. Hafa því smátt og smátt valizt úr afbrigði, sem hlotið hafa viðurltenningu og nafn, svo sem Rauðar ís- lenzkar, Akranes-kartöflur, Bláar íslenzkar o. fl., en fjöldi annarra er enn ónafngreindur. Liggur þar fólginn mikill efniviður til kartöflukynbóta. Enda þótt margt kartöfluafbrigða sé til í landinu, liggja ekki fyrir samanburðartölur á uppskerumagni þeirra, matargildi o. fl. nema að litlu leyti. Má því búast við, að víða séu ræktaðar kartöflur undan afbrigðum, sem flutt hafa verið inn af handahófi og engan rétt eiga á sér í íslenzkri mold. Það er hins vegar úrlausnarefni tilraunastöðvanna að rannsaka, hvaða afbrigði eru hentugust til ræktunar, leita að árvissum kartöfluafbrigðum, sem geta þolað veðurfar ákveðinna landsvæða og eru ónæm fyrir sjúk- dómum, en gefa mikla uppslteru góðra, næringarríkra kartaflna, sem auð- veldar eru til upptöku og góðar til geymslu. Til þess að fá fram slík kart- öfluafbrigði er fyrst að leita í þeim efniviði, sem fáanlegur er í landinu eða frá erlendum tilraunastöðvum og verzlunum, og rannsaka, hvort ekki sé til afbrigði, sem fullnægir þessum settu kröfum. Sé slíkt afbrigði ekki til, verður hins vegar að hefja hinar eiginlegu kynbætur með víxlfrjóvg- unum, úrvali eða öðrum flóknari aðferðum. Tilraunaefni. Af hálfu Búnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans var hafizt handa árið 1946 með söfnun hinna beztu afbrigða, er völ var á hjá nágranna- löndum okkar og á einn eða annan hátt höfðu skarað fram úr að gæð- um. Frá Statens Frökontrollanstalt í Stokkhóhni voru send 92 af- brigði vorið 1946. Þessi afbrigði voru upprunnin frá ýmsum löndum,

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.