Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 19

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1954, Blaðsíða 19
17 hennar, að allt að helmingsmunur getur verið á raunverulegum nytjum afbrigðanna. Til þess að afla vitneskju um raunverulegt notagildi afbrigðanna var því reiknað út sterkju- og þurrefnismagn þeirra á hektara lands. Er sterkju- og þurrefnismagn uppskerumestu afbrigðanna birt í töflu 5, og er afbrigðunum raðað þar eftir sterkjumagni. Tafla 5. Sterkju- og þurrefnismagn 17 afbrigða í kg pr. ha. The amount of starcli and dry matter of 17 varieties in kg pr. ha. Afbrigðl Nr. Sterkja Þurrcfni variety starch dry matter kg/ha kg/ha Sequoia 131 4541 7268 Kennebec 120 4436 6261 Eigenheimer II 13!) (4424)i) (6646) Bintje II 141 (4346) (6098) Ófeigur .. 140 (4329) (5001) B 73—3 USDA 101 4177 5957 Ben Lomond 21 4139 5813 Ostbote 1 3980 4686 Flava 17 3665 4818 Direktör Johanssen . . . 61 3500 5396 Furore .. 138 (3487) (6153) Harbinger 64 3427 4954 Green Mountain II .... 96 3395 4904 Rauðar islenzkar 134 3365 5408 Fruhmölle 11 3340 5778 B G1—3 USDA 98 3310 4429 Eyvindur 10 3231 4489 Kemur þá í ljós, að Sequoia gefur mesta sterkju- og þurrefnismagn á hektara af öllum afbrigðum tilraunarinnar. Kennebec er annað í röð- inni, og mjög svipuð virðast næstu þrjú afbrigðin vera, en eins og fyrr getur voru þau of stuttan tíma í tilrauninni til þess að gefa öruggar upp- skerutölur. Nokkurs mismunar gætir í samræmi sterkju- og þurrefnismagns, og má geta þess, að afbrigðin nr. 122, 128, 130 og 133 virðast hafa meira þurrefnismagn en Eyvindur, þótt sterkjan í þeim mælist minni. Frostþol. Kartöfluuppskera hér á landi er mjög oft takmörkuð af næturfrost- um, sem fella grös síðla sumars, áður en venjulegur vaxtartími er hjá liðinn. Kveður svo rammt að þessu í sumum byggðarlögum norðanlands, að varla er hægt að telja kartöflur ræktanlegar þar í sumum árum. Oft 1) Figures in parenthases are only based on two years observations.

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.