Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1954, Page 14
12
rannsókn raunhæfni uppskeru þeirra síðustu fjögur ár tilraunarinnar.
í þeim útreikningi voru ekki taldar uppskerutölur tveggja fyrstu áranna.
Auk þess voru ekki tekin með í þennan reikning 4 yngstu afbrigði til-
raunarinnar, en uppskeru þeirra verður að skoða með nokkurri varúð,
þar sem flest þeirra voru aðeins höfð til samanburðar um tveggja ára
skeið og annað þessara ára var bezta uppskeruárið. Er því líklegt, að
meðaluppskera þessara afbrigða myndi reynast mun minni, ef um saman-
burð fleiri ára væri að ræða.
Niðurstöðutölur sveiflurannsóknarinnar eru hér birtar í töflu 3, og ber
þess að geta, að til grundvallar eru uppskerutölur undan 5 grösum úr reit.
Tafla 3.
Niðurstöður sveiflurannsókna á uppskeru 27 úrvalskartöfluafbrigða í 4 ár.
Analysis of variance of yields of 27 potato varieties in í years.
Tegund frávika Fertölur Frítölur Frávik F-gildi Meðal-
varialion sum of degrees mean F frávik
due to squares of square s
freedom
Alls total ........................... 4760205 323
Dálkar blocks ............................ 13028 2 6514 1.25
Ár years ............................. 3500019 3 1166673 224.53***
Afbrigði varieties ....................... 285891 26 10996 2.17**
Samverkan ára og afbrigða y Xv .. 600243 78 7695 1.48*
Afgangur remainder ................... 961267 185 5196 72.08
Niðurstöður þessar sýna, að mikill raunhæfur mismunur var á upp-
skeru einstakra ára, enda var það augljóst af töflu 2. Milli afbrigða var
einnig raunhæfur mismunur, sem bendir til, að einhver afbrigði til-
raunarinnar væru raunverulega betri en önnur á þessum fjórum árum.
Samverkan ára og afbrigða reyndist raunhæf í 95% tilfella, en það, að
F-giIdi hennar er minna en F-gildi afbrigðanna, sannar, að einhver afbrigði
hafa alltaf gefið betri uppskeru en önnur, hvernig sem áraði.
Til þess að rannsaka, hvaða afbrigði reyndust öll árin raunverulega
betri en Eyvindur, varð að reikna út meðalskekkju mismunar tveggja
afbrigðameðaltala, sem fundin voru af uppskeru þriggja samreita yfir
fjögurra ára tímabil. Þessi skekkja var
en með t = 1.97 við 95% raunhæfni og
j/ |/2X5196
29.43. gr.,
raunhæfni
_ t = 2.60 við 99%
verður minnstur, raunhæfur mismunur samsvarandi 57.98 gr. og 76.52 gr„
ef miðað er við uppskeru undan 5 grösum. Af fjögurra ára meðaltali
reyndust tvö afbrigði þannig raunverulega gefa meiri uppskeru en Ey-
vindur, en það voru Kennebec, nr. 120, og Sequoia, nr. 131. Mismunur
þessi reyndist raunhæfur í 99% tilfella. Önnur afbrigði, sem gáfu meiri
meðaluppskeru en Eyvindur, þótt ekki væri sá niunur raunhæfur, eru
Raunhæft í 95% tilfella significant at the 5% levcl.
Raunhæft í 99% tilfella significant at the 1% level.
Raunhæft í 99.9% tilfella significant at the 0.1% level.