Fréttablaðið - 12.11.2021, Side 2
Nýtingin er minnst í
Breiðholti, um sextíu
prósent.
Hjálmar Sveins-
son, borgar-
fulltrúi Sam-
fylkingarinnar
Allt er þegar þrennt er
Birgir Ármannsson, formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar, var ákveðinn á svip þegar hann náði í gögn í tengslum við alþingiskosningarnar á dög-
unum. Þetta var þriðja ferð kjörbréfanefndar í Borgarnes og vonaðist Birgir til þess að spurningum nefndarinnar yrði svarað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Átak stendur yfir til að efla
virkni barna í tómstunda-
starfi í Breiðholti. Aðeins
sextíu prósent barna þar nýta
frístundakortið, en hlut-
fallið er allt að níutíu prósent í
öðrum hverfum.
bth@frettabladid.is
JAFNRÉTTI Mikil viðbrögð hafa orðið
við fréttaskýringu Fréttablaðsins um
að fjöldi íslenskra barna hafi ekki
efni á íþrótta- og tómstundastarfi.
Þörf á hækkun frístundastyrks er
rauður þráður í umkvörtunum for-
eldra sem borist hafa blaðinu.
Hjálmar Sveinsson, borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar hjá Reykja-
víkurborg, segir ekki útilokað að frí-
stundastyrkurinn verði hækkaður.
Umbætur á frístundakortinu séu til
stöðugrar skoðunar.
„Það er sláandi að lesa þessa frétta-
skýringu Fréttablaðsins og mjög
slæmt ef sum börn upplifa sorg,“
segir Hjálmar.
„En þetta setur líka þær kvaðir á
íþróttafélögin að stilla sinni gjald-
skrá og ferðalögum í hóf þannig að
enginn sé skilinn eftir út undan,“
bætir hann við.
Í fréttaskýringunni kom fram
að innf lytjendur, atvinnulausir
foreldrar og öryrkjar væru sérlega
viðkvæmir fyrir vaxandi kostnaði.
Keppnisferðir eru eitt dæmi um slíkt,
þar sem bjargir foreldra til að safna fé
eru mjög misgóðar.
Hjálmar segir að heilt yfir telji
hann að vel hafi tekist til með frí-
stundakortið. Nýting þess sé allt að
90% í sumum hverfum borgarinnar.
Þó er ekki sömu sögu að segja um
alla hluta borgarinnar.
„Nýtingin er minnst í Breiðholti,
um sextíu prósent,“ segir Hjálmar.
Vegna þeirrar staðreyndar hefur
borgin efnt til átaks til að auka nýt-
ingu frístundakortsins í Breiðholti.
„Einn liður til að auka jafnræði
er að börn í fyrsta og öðrum bekk í
Breiðholti fá 80.000 krónur á ári til
að stunda íþróttir,“ segir Hjálmar.
Algengt er að frístundastyrkur
sveitarfélaga sé 50.000 krónur.
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðing-
ur og borgarfulltrúi Flokks fólksins,
segir að frístundastyrkurinn sé ekki
bara of lágur heldur séu reglur um
hann of stífar.
Í fréttaskýringunni kom fram að
hægt væri að nota frístundakortið til
að greiða fyrir frístundaheimili. Kol-
brún segir það bagalegt og því þurfi
að breyta.
„Borgin verður að trygga að barn-
ið eitt geti notað kortið og að for-
eldrum sé boðin aðstoð til að greiða
frístundaheimili,“ segir Kolbrún. n
Börn í Breiðholti ólíklegust
til að nýta frístundastyrkina
Reykjavíkurborg hefur tímabundið hækkað greiðslu frístundastyrks til barna
í Breiðholti. Liður í átaki til jafnræðis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Baldursdóttir,
sálfræðingur og
borgarfulltrúi
Flokks fólksins
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Samkvæmt nýrri reglu-
gerð Sigurðar Inga Jóhannssonar,
samgöngu- og sveitarstjórnaráð-
herra, getur einstaklingur sótt um
að dylja nafn sitt og heimilisfang
eða aðsetur í þjóðskrá. Er þetta gert
til að vernda viðkomandi fyrir utan-
aðkomandi hættu og þarf staðfest-
ing lögreglu að liggja fyrir til þess að
upplýsingarnar verði duldar.
„Heimild fyrir að hafa nafn og/
eða lögheimili/aðsetur dulið skal
ekki vara lengur en þörf er á og getur
aðeins gilt til eins árs í senn,“ segir
í reglugerðardrögunum. „Þann-
ig fellur vernd niður að þeim tíma
liðnum eða fyrr, ef hættan er liðin
hjá og tilkynning þess efnis berst
Þjóðskrá Íslands frá hlutaðeigandi
eða frá lögreglu.“
Ekki kemur fram hvers konar
vernd sé um að ræða. Gera má ráð
fyrir að þolendur of beldis og elti-
hrella geti nýtt sér þetta eða þá vitni
í sakamálum. n
Verður hægt að dylja
nafn sitt og lögheimili
Þolendur eltihrella eru fjölmargir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
adalheidur@frettabladid.is
COVID-19 Ríkisstjórnin ræðir til-
lögur sóttvarnalæknis um hertar
aðgerðir gegn kórónaveirunni á
fundi sínum í dag. Þungt hljóð var í
Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni
þegar Fréttablaðið ræddi við hann í
gær. Hann sagði hápunkti yfirstand-
andi bylgju svo sannarlega ekki náð
þrátt fyrir metfjölda smita. En 200
greindust með Covid-19 þarsíðasta
sólarhring.
Aðeins tveir dagar eru síðan hert-
ar aðgerðir tóku gildi, með grímu-
skyldu í þrengri rýmum, 500 manna
samkomutakmörkunum og styttri
opnunartíma veitinga- og skemmti-
staða.
Nú liggja átján á sjúkrahúsi með
COVID-19. Þar af eru fjórir á gjör-
gæslu. n
Ríkisstjórn ræðir
harðari aðgerðir
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðis-
ráðherra, fer yfir stöðuna með ríkis-
stjórninni í dag. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
2 Fréttir 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ