Fréttablaðið - 12.11.2021, Síða 6
thk@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Már Kristjáns-
son, yfirlæknir á smitsjúkdóma-
deild Landspítalans, segir húsakost
Landspítalans óboðlegan. Húsnæði
aðalgöngudeildar smitsjúkdóma-
deildarinnar sé meira að segja ekki
múshelt. „Við höfum lengi verið með
spítalann í yfirkeyrslu, um og yfir
hundrað prósenta rúma nýtingu,
en við höfum verið með of fátt heil-
brigðisstarfsfólk,“ sagði Már á Frétta-
vaktinni á Hringbraut í gærkvöldi og
bætti við að of fátt starfsfólk drægi úr
getu spítalans til að sinna öðrum og
mikilvægum störfum.
Í þeirri stöðu sem uppi er ræður
Landspítalinn einfaldlega ekki við
farsótt eins Covid. „Við erum búin
að þrauka í 22 mánuði með skerð-
ingu á starfsemi og það er ekkert í
kortunum annað en að það verði
svona áfram, nema eitthvað mjög
drastískt verði gert í samfélaginu,“
benti Már á.
Starfsmenn Landspítalans eru
afar stoltir af stofnuninni, sagði Már.
Hins vegar þurfi mikið að breytast.
„Við erum í stöðugri samkeppni
um fólk, að fá fólk að utan úr námi.
Við þurfum að skapa ungu fólki
gott vinnuumhverfi og vera sam-
keppnishæf því sem gerist erlendis.“
Byggingar spítalans, sem margar
hverjar voru byggðar um miðja síð-
ustu öld, sagði Már að væru ósveigj-
anlegar og mættu ekki á nokkurn
hátt þörfum nútímans. „Birkiborg
er ónýtilegt húsnæði. Þar hefur samt
verið haldið uppi aðalgöngudeild-
inni okkar,“ sagði Már og bætti við
að húsið væri ekki múshelt. „Þetta
er ekki mönnum bjóðandi.“
Nýr Landspítali er í byggingu en
Már sagði of langt í að smitsjúk-
dómadeildin gæti f lutt starfsemi
sína þangað. „Við í framkvæmda-
stjórninni erum að horfa til átta
til tíu ára þangað til við erum flutt
þangað inn. Það er kannski ára-
tugur. Þetta er of dýrkeypt fyrir
okkur,“ sagði Már enn fremur, en
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka
daga á Hringbraut klukkan 18.30. n
Már Kristjánsson,
yfirlæknir á smit-
sjúkdómadeild
Landspítalans
HAFNARFJÖRÐUR
Hjallahraun 4
NJARÐVÍK
Fitjabraut 12
KÓPAVOGUR
Smiðjuvegur 34
REYKJAVÍK
Skútuvogur 2
ÞAÐ ER ÓÞARFI
AÐ NEGLA TÍMANN
FR
ÁBÆR VER
Ð
Á
DE K K J UM
Eftirlitsstofnun EFTA sendi
stjórnvöldum rökstutt álit í
vikunni vegna brota á EES-
samningnum með takmörk-
unum á úthlutun leigubíla-
leyfa. Samgönguráðherra
segir álitið setja leigubíla-
frumvarpið í forgang á nýju
þingi, sem gæti opnað fyrir
farveitur á Íslandi.
mhj@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Íslensk stjórnvöld
hafa tvo mánuði til að bregðast við
áliti eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)
vegna brota á EES-reglum um stað-
festurétt á leigubifreiðamarkaði,
annars vísar ESA málinu til EFTA-
dómstólsins.
Álitið er skref í meðferð samn-
ingsbrotamáls, en ESA hefur áður
komist að sambærilegri niður-
stöðu.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnaráðherra,
segir álitið gera leigubílafrum-
varpið svokallaða að forgangsmáli
á nýju þingi, en frumvarpið var sett
á ís síðasta haust vegna mikilvæg-
ari forgangsmála. Ef frumvarpið
verður samþykkt getur það greitt
leið farveitna á borð við Uber og
Lyft inn á íslenskan markað.
Að mati ESA takmarkar núver-
andi löggjöf um leigubifreiðar
úthlutun atvinnuleyfa fyrir leigu-
bifreiðaakstur á ákveðnum svæð-
um, sem gerir nýjum rekstrarað-
ilum erfitt eða jafnvel ómögulegt
að komast inn á markaðinn.
„Í lögunum er sömuleiðis gert ráð
fyrir að leigubílstjórar innan skil-
greindra svæða séu tengdir leigu-
bifreiðastöð og hafi leigubílaakstur
að aðalstarfi. Slík takmörkun á
staðfesturétti, sem jafnvel útilokar
aðkomu nýrra aðila á markaðinn,
dregur úr samkeppni og takmarkar
nýsköpun sem leiðir til hærra verðs
fyrir neytendur,“ segir í áliti ESA.
Sigurður Ingi segir að frum-
varpið, sem var unnið eftir skýrslu
starfshóps um heildarendurskoðun
á íslensku regluverki um leigubif-
reiðar og lá í þinginu allan síðasta
vetur, svari f lestum ávirðingum
ESA. „Þetta frumvarp er til, það
er á þingmálaskrá og verður lagt
fram að nýju. Það svarar f lestum
af þessum ávirðingum ESA,“ segir
Sigurður. Spurður hvort það frum-
varp greiði ekki leið fyrir farveitur
á borð við Uber og Lyft hér heima,
segir Sigurður það mögulegt.
„Það getur opnað fyrir það ef þeir
uppfylla þær kröfur sem settar eru
í frumvarpinu,“ segir Sigurður og
bætir við að staða farveitna í Evr-
ópu hafi breyst frá því að frum-
varpið var samið. „Í millitíðinni
hefur það gerst að Uber hefur verið
f lokkað af Evrópuregluverkinu sem
f lutningafyrirtæki, en ekki deili-
hagkerfi. Sem þýðir að þeir þurfa
bara að uppfylla sömu kröfur og
aðrir. Ef þeir gera það, þá geta þeir
verið með starfsemi á Íslandi.“
Spurður hvort það sé meirihluti
fyrir frumvarpinu á þingi, segir
Sigurður að það hafi verið skiptar
skoðanir um það þegar það var til
umfjöllunar síðast.
„En ég held að langstærsti hópur-
inn hafi talið það eðlilegt að verða
við þessum grundvallarbreyting-
um svo við værum til að mynda
ekki að fara að lenda í því að þurfa
að verjast fyrir dómstólum,“ segir
Sigurður. n
Litið til álits eftirlitsstofnunar EFTA
við útfærslu á leigubílafrumvarpinu
ESA segir lögin
gera nýjum
rekstraraðilum
nær ómögulegt
að komast inn
á markaðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILLHELM
Covid-göngudeildin í Birkiborg er ekki músheld
kristinnhaukur@frettabladid.is
NEYTENDUR Verð hlutamiða hjá
Happdrætti Háskóla Íslands verður
hækkað í 1.800 krónur, samkvæmt
nýjum drögum dómsmálaráðherra.
Miðinn hefur kostað 1.600 krónur
síðan árið 2018.
Verðbreytingar hafa verið örar
á undanförnum áratug. Árið 2010
kostaði miðinn 1.100 krónur og
var hækkaður í 1.300 árið 2012 og
1.500 krónur árið 2015. Gerir þetta
hækkun um meira en 60 prósent.
Til samanburðar hækkaði miðinn
aðeins um 300 krónur áratuginn þar
á undan, úr 800 krónum í 1.100.
Samkvæmt nýjasta ársreikningi
Happdrættis Háskóla Íslands, frá
árinu 2019, var hagnaður félagsins
rúmir 1,6 milljarðar króna, sem var
aukning um 24 prósent frá árinu
áður. n
Veruleg hækkun á
miðaverði hjá HÍ
Miðinn mun kosta 1.800 krónur í
stað 1.600. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
birnadrofn@frettabladi.is
COVID-19 Þau sem hafa fengið Covid-
19 og tvo skammta af bóluefni þurfa
ekki að fara í örvunarskammt, sam-
kvæmt upplýsingum frá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins (HH).
„Við teljum upp að þremur. Þann-
ig að ef þú hefur fengið tvo skammta
af bóluefni og Covid þá ertu komin
upp í þrjá. Við leggjum það að jöfnu
að sýking sé eins og einn skammtur,“
segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Ragnheiður segir að ekki hafi verið
tekin endanleg ákvörðun um það
hvort bólusett börn skuli fá örvunar-
skammt. „Við gerum ráð fyrir því en
það er þá ekki fyrr en eftir áramót
þar sem bólusetning tólf til fimmtán
ára hófst ekki fyrr en í ágúst.“
Aðspurð segir Ragnheiður að þau
börn sem fædd eru 2009 en hafi
ekki verið orðin tólf ára þegar þeirra
árgangur var bólusettur hafi skilað
sér vel í bólusetningu. n
Óvíst hvort börn
fái aukaskammt
Sigurður Ingi
Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitar-
stjórnaráðherra
6 Fréttir 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ