Fréttablaðið - 12.11.2021, Side 8
STÓRVIRKI UM BÍLA
Hér fjallar Örn Sigurðsson um bíla og allt sem
þeim tengist í ríku lega myndskreyttu verki.
Ómissandi fyrir
allt bílaáhugafólk!
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTURLAND Félögum sem höfðu
aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brák-
arey hefur verið gert að tæma hús-
næðið fyrir 16. janúar. Borgarbyggð
ákvað að loka húsinu í febrúar eftir
bruna úttekt og viðhaldsskýrslu sem
sýndi fram á 600 milljóna kostnað.
„Þetta er hrikalegt,“ segir Þórður
Sigurðsson formaður Skotfélagsins.
Einnig höfðu aðstöðu í húsinu Golf-
klúbburinn, Fornbílafélagið, Bif-
hjólafélagið og Pútthópurinn, sem
í október sendu áskorun á sveitar-
stjórn að opna það aftur.
„Okkur hefur ekki verið boðið eitt
eða neitt en bæjarstjórn skreytir sig
með því að okkur hafi verið boðið
að sækja um útisvæði,“ segir Þórður.
Umrætt svæði er við Ölduhrygg,
svæði sem félaginu var synjað um
árið 2015.
Þegar skotfélagið var stofnað, árið
2012, var því boðin aðstaðan í Brák-
arey og gerðu félagsmenn upp hús-
næði sitt að innan. „Við settum upp
veggi, steyptum í gólf og réttum þau
af, settum í loftin, máluðum, settum
upp hurðir, pípulagnir, smíðuðum
stálvirki á veggina og flóttaramp,“
segir Þórður. Fleiri þúsund vinnu-
stundir félagsmanna, sem margir
hverjir eru iðnaðarmenn, hafi farið
í verkið og margir hafi keypt efni út
á sinn reikning.
„Við viljum að húsið verði lagað
og það kostar engar 600 milljónir,“
segir Þórður. Hvað Skotfélagið varð-
ar þarf að laga þakið, kostnaður var
áætlaður um 50 milljónir, og hafi
félagsmenn boðist til að gefa vinnu
sína ef sveitarstjórn skaffaði járnið.
Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitar-
stjóri segir ákvörðun um framtíð
hússins verða tekna fyrir lok kjör-
tímabilsins. Hluti hússins verði þó
rifinn.
„Þetta er stórt verkefni sem yrði
aldrei gert án mikillar fjárhags-
legrar aðkomu sveitarfélagsins,“
segir Þórdís. Varðandi mikla vinnu
og fjármagn sem Skotfélagið hafi
lagt í húsið, segir hún að flestir í hús-
næðinu hafi verið með samning til
eins árs í senn. Í þeim komi fram að
allt sem framkvæmt er verði eign
sveitarfélagsins.
„Við höfum boðið Skotfélaginu
að sækja um starfsleyfi á útisvæði
sem búið er að taka út, út frá hljóð-
vörnum. Við stefnum einnig á upp-
byggingu íþróttamannvirkis og
höfum rætt um það hvort þar gæti
verið aðstaða fyrir Skotfélagið,“
segir Þórdís. Hvað það mannvirki
varðar er enn þá verið að gera rann-
sóknir á jarðvegi. n
Gert að tæma húsið í Brákaraey fyrir miðjan janúar
Félagsmenn hafa eytt þúsundum
vinnustunda í húsið.
MYND/VIÐHALDSSKÝRSLA
Brúin, verkefni á vegum
Hafnarfjarðar, var á dög-
unum tilnefnt til alþjóðlegra
hvatningarverðlauna UNICEF.
Samtökunum var í kjölfarið
tilkynnt að til rannsóknar hjá
lögreglunni væri mál tengt
innilokun barns í bæjarfélag-
inu. Hafnarfjarðarbær frétti
fyrst af kærunni í gær.
lovisa@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Kennari og þrír starfs-
menn grunnskóla, sem kærðir hafa
verið til lögreglu vegna innilokunar
barns, starfa við skóla í Hafnarfirði.
Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu
í byrjun mánaðarins en ekki í hvaða
sveitarfélagi sá grunnskóli sem um
ræðir er.
Upplýsingafulltrúi Hafnarfjarðar-
bæjar hafði ekki heyrt um málið
þegar Fréttablaðið leitaði svara
og kvaðst þurfa að leita viðbragða
hjá sviðsstjórum og lögfræðingum
sveitarfélagsins. „Sveitarfélagið fékk
fyrst upplýsingar um kæru til lög-
reglu í dag. Málið er því í rannsókn á
þeim vettvangi og tjáir sveitarfélagið
sig ekki um það frekar á þessu stigi,“
segir í svari bæjarins við fyrirspurn
Fréttablaðsins.
Verkefni á vegum Hafnarfjarðar
var á dögunum tilnefnt til hvatn-
ingarverðlauna í alþjóðlegri keppni
á vegum UNICEF, Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna, en UNICEF, á
alþjóðavísu, hefur nú verið tilkynnt
um kærurnar.
Verkefnið sem var tilnefnt kallast
Brúin og tekur þátt í keppninni í
flokki um barnvæna félagsþjónustu
samkvæmt vef Hafnarfjarðarbæjar,
en tilgangur verkefnisins er að sam-
þætta þjónustu bæjarins og ef la
stuðning og þjónustu við börn í leik-
og grunnskólum bæjarins.
Birna Þórarinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
segir að hún viti ekki hvort þessar
upplýsingar hafi áhrif á verðlauna-
afhendinguna en að UNICEF erlend-
is hafi verið tilkynnt um kærurnar.
Málið sé í skoðun hjá samtök-
unum og Hafnarfjarðarbæ hafi verið
tilkynnt um það. „Við fáum að vita
að málið snerti Hafnarfjarðarbæ
þegar tilkynnt er um tilnefning-
arnar. „Við erum í samtali við bæði
aðstandendur keppninnar, sem er
UNICEF úti í heimi, og við Hafnar-
fjarðarbæ og erum í góðu samtali við
báða aðila,“ segir Birna
Hún vill taka fram að þrátt fyrir
þetta styðji UNICEF heilshugar við
verkefnið sem er tilnefnt.
„UNICEF á Íslandi styður heilshug-
ar markmið Brúarinnar, en það er
verklagið þar sem er tilnefnt til verð-
launanna, vegna þess að það snýr að
því að brjóta kerfi út úr sílóum í þágu
hagsmuna barnsins.“
Birna segir að Hafnarfjörður sé
að vinna sig í áttina að því að verða
barnvænt sveitarfélag.
„Þetta er viljayfirlýsing, að fara
í þetta verkefni með okkur, og þá
ertu að segja að þú viljir vinna að
réttindum barna í sveitarfélaginu
og þú útskrifast ekki sama dag og
þú skrifar undir viljayfirlýsinguna,“
segir Birna. UNICEF líti svo á að ef og
þegar mál komi upp, skipti mestu að
dreginn sé uppbyggilegur lærdómur
af þeim og tryggt að þau endurtaki
sig ekki.
„Í þessu ákveðna tilviki eru rétt-
indi barnsins þverbrotin og þarna
hefði réttindafræðsla sannarlega
komið að gagni. Við teljum jákvætt
að vera í samstarfi við Hafnarfjarð-
arbæ í því að breyta og bæta starfs-
hætti hjá bænum svo að bæði allt
starfsfólk sem starfar með börnum
fái fræðslu og að ákvarðanir sem
varða börn séu alltaf teknar með
hagsmuni þeirra að leiðarljósi,“ segir
Birna.
Aðspurð segir hún að sveitar-
félagið hafi ekki tilkynnt UNICEF
á Íslandi um kæruna og segist ekki
geta lagt mat á hvort það hefði átt að
gera það.
„Ég held að þetta undirstriki svo
ekki verði um villst mikilvægi akk-
úrat þeirrar vinnu sem við erum í. Þú
getur varla fengið skýrara dæmi um
mikilvægi þess að fólk sem vinnur
með börnum fái fræðslu um þeirra
réttindi,“ segir Birna um áhrif máls-
ins á tilnefninguna og bætir við:
„Verkefnið Barnvæn sveitarfélög
gefur okkur frábært tækifæri til að
vinna með Hafnarfjarðarbæ á upp-
byggilegan hátt að réttindum barna.“
Birna játar því að innilokanir
barna og valdbeiting gegn þeim,
sem fjallað hafi verið um nýverið,
hafi verið rædd á skrifstofu UNICEF.
„Þetta eru auðvitað sorgleg dæmi
um réttindabrot á börnum sem við
viljum ekki sjá. En tvíeflir okkur í
vinnunni sem við erum í með fjölda
sveitarfélaga og skóla, því við erum
líka með verkefnið Réttindaskólar,
sem snýst um að innleiða Barnasátt-
málann í starfshætti skóla.“ n
UNICEF fékk tilkynningu inn á borð sitt um
kærur gegn starfsfólki skóla í Hafnarfirði
Hafnarfjarðar
bær skrifaði
undir samning
um innleiðingu
á Barnasáttmála
Sameinuðu
þjóðanna árið
2019. Þá sagðist
bærinn ætla
að setja upp
barnaréttinda
gleraugun.
MYND/HAFNAR-
FJARÐARBÆR
Þetta eru auðvitað
sorgleg dæmi um
réttindabrot á börnum
sem við viljum ekki sjá.
Birna Þórarins
dóttir, fram
kvæmdastjóri
UNICEF
8 Fréttir 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ