Fréttablaðið - 12.11.2021, Qupperneq 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Fólk á rétt
á að endur-
heimta
frelsi sitt að
fullu.
Salan á
Mílu ehf.
er stórmál
sem varðar
íslenskan
almenning
og öryggi
þjóðar-
innar.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Mannréttindi fólks hafa í langan
tíma verið takmörkuð vegna
Covid-faraldursins. Það væri
hættulegt að taka því sem sjálf-
sögðum hlut. Við búum við
óeðlilegt ástand og verðum að muna að svo er,
en ekki sætta okkur þegjandi við það og hætta
að spyrja um nauðsyn og tilgang allra þeirra
hafta sem við höfum þurft að búa við.
Forsvarsmenn sóttvarna hér á landi eiga
ekki að bregðast illa við gagnrýni eða spurn-
ingum sem þeim þykir óþægilegt að svara.
Þeir sem spyrja erfiðra spurninga gera það
vegna þess að þeir vita að brýnt er að vakta
frelsi og mannréttindi á tímum þar sem hætta
er á að stjórnvöld taki sér of mikið vald, með
þeim afleiðingum að fólk endurheimti aldrei
að fullu það sem tekið var af því. Covid má
ekki stuðla að þessu. Endalaust má deila um
það hversu miklar og harðar sóttvarnir eiga að
vera en eitt á að vera öllum ljóst og það er að
fólk á rétt á að endurheimta frelsi sitt að fullu.
Stjórnmálamenn eiga að leggja áherslu á þetta
og það eiga sóttvarnayfirvöld sömuleiðis að
gera, en ekki skammast út í þá sem eru gagn-
rýnir á aðgerðir.
Á dögunum, þegar tilkynnt var í enn eitt
skiptið um hertar aðgerðir vegna Covid, sagði
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn að ekki
væri í boði að hengja haus og vera fúll. Þessi
orð lýsa ekki sérlega mikilli nærgætni í garð
þeirra sem verða fyrir verulegu fjárhagstjóni,
atvinnumissi eða þjást af vanlíðan vegna
harðra Covid-aðgerða. Þessar aðgerðir bitna
á fólki og reynast mörgum afar þungar og
erfiðar. Það er lítilsvirðing að tala um fýluköst
í því sambandi.
Covid-höftin hafa mismunandi áhrif á fólk.
Þeir sem búa við fjárhagslegt öryggi og eru þar
að auki lítt félagslyndir una sér alveg ágæt-
lega heima hjá sér. Hið sama verður ekki sagt
um fólk sem sækir í félagsskap utan heimilis
og vill vera í margmenni. Á sama tíma verður
fólk sem er í eðli sínu kvíðafullt enn kvíðnara.
Mörg ungmenni viðurkenna að ástandið hafi
slæm áhrif á andlega líðan þeirra. Einhver
þeirra gætu þurft langan tíma til að ná and-
legu jafnvægi á ný.
Furðulega lítið er lagt upp úr því að róa fólk,
frekar er verið að auka kvíða þess með alls
kyns viðvörunum, sem iðulega eru mjög mót-
sagnakenndar. Kannski þykir henta að fólk
sé hrætt, það er þá ekki að spyrja óþægilegra
spurninga eða efast um mikilvægi aðgerða. Það
blasir hins vegar við að sóttvarnaaðgerðir leysa
ekki allan vanda heldur skapa ný vandamál. n
Vandamál
Það var aðfaranótt 13. júní, fyrir fimm mánuðum
síðan, sem fundum Alþingis var frestað. Frá kosn-
ingum eru liðnar sjö vikur og ekkert bólar á stjórnar-
sáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Reyndar sætir það furðu
hversu langan tíma sú vinna hefur tekið. Þetta eru jú
sömu flokkar sem samþykktu í júní sl. stefnu fyrir öll
málasvið ríkisins og fjármálaáætlun til næstu fimm
ára. Og gengu samstíga til kosninga.
Á meðan vinna þingmenn allra flokka við að skoða
kosningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi þar sem ásýnd
lýðræðisins hefur beðið hnekki, heimsfaraldurinn nær
hæstu hæðum með tilheyrandi afleiðingum og stefnt
er að sölu eins af mikilvægustu innviðum landsins til
erlendra fjárfesta.
Salan á Mílu ehf. er stórmál sem varðar íslenskan
almenning og öryggi þjóðarinnar. Míla á stærsta hlut-
inn í stofnljósleiðara landsins á móti NATO og Míla
sér um rekstur og viðhald allra þráðanna í strengnum.
Ljósleiðarastrengirnir eru undirstaða flestra fjar-
skiptakerfa sem notuð eru á Íslandi, þar á meðal
símakerfis, farsímakerfis, Tetraneyðarfjarskiptakerfis,
mikilvægra gagnatenginga fyrir helstu stoðkerfi lands-
ins og almennrar internettengingar landsmanna.
Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnu-
rekstri segir að ef erlend fjárfesting ógni öryggi
landsins geti ráðherra stöðvað slíka fjárfestingu, enda
kynni ráðherra ákvörðun sína innan átta vikna frá því
að samningur er gerður. Samningurinn var gerður 23.
október síðastliðinn. Því er hægt að stöðva söluna fyrir
17. desember. Það væru stórkostleg mistök að ganga frá
sölunni á Mílu án þess að stjórnvöld setji skýr skilyrði
og Alþingi telji tryggt að þjóðaröryggis sé gætt.
Við Íslendingar höfum verið stolt af sjálfstæði okkar,
af lýðveldinu og þingræðinu. En nú er staðan sú að
Alþingi fær ekki að koma saman til að fjalla um mikil-
væg mál sem varðar ásýnd lýðræðisins, heimsfaraldur
eða öryggi þjóðarinnar, vegna þess að fráfarandi
ríkisstjórn dregur lappirnar við að koma saman
stjórnarsáttmála og kosningu til Alþingis var klúðrað í
NV-kjördæmi.
Eftir hverju er verið að bíða? n
Lýðræðið og þjóðaröryggi
Oddný G.
Harðardóttir
þingmaður Sam-
fylkingarinnar
benediktboas@frettabladid.is
Atkvæðasetrið
Langt er um liðið frá því Land-
námssetrið í Borgarnesi sló í
gegn í hugum og hjörtum ferða-
manna.
Nú er í bígerð að gera Lata-
bæjarsafn í Borgarnesi, sem
efalítið mun trekkja túristana
enn frekar í plássið. Magnús
Scheving sjálfur hefur puttana
í því og mun það allt verða hið
glæsilegasta.
Og ef allt er þegar þrennt er
þá er auðvitað upplagt að fara
að leggja drög að Atkvæða-
setrinu í bænum, safni um ein-
hverja raunalegustu talningu
í alþingiskosningum á Íslandi,
en hver vill ekki fá að láta loka
sig inni í fangaklefanum, sjá
seðlana, handleika þá og fá
að endurtelja sjálfur, svindla
kannski smávegis og stinga C-
seðli í D-bunkann. Myndi þetta
ekki heita gagnvirk sýning?
Tími Ögmundar
Tími Ögmundar er kominn – og
má ekki seinna vera. Það tók
Jónasson ekki nema fjögur ár
að átta sig á því að Sjálfstæðis-
f lokkur og Vinstri græn eiga
ekki heima í sömu stjórninni
– og megi fyrir vikið heita svik
við kjósendur beggja f lokka.
Sjaldan hefur reynslubolti í
stjórnmálageiranum gefið sér
jafn langan tíma í eina og sömu
ályktunina, en vel ígrunduð
hlýtur hún alltént að vera. n
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................
Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Þessa vöru þarf að sérpanta. S. 561 1433
Netfang: bjornsbakari@bjornsbakari.is
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR