Fréttablaðið - 12.11.2021, Síða 11
Nú líður að jólum og þá er sérstak-
lega mikilvægt að huga að eldvörn-
um heimilisins eins og að skipta
um rafhlöðu í reykskynjaranum,
kaupa eldvarnateppi ef það er ekki
til staðar í eldhúsinu og athuga
hvort komið sé að yfirferð og skoðun
slökkvitækis.
Talandi um slökkvitæki, erum við
að missa sjónar á öryggi heimilis-
fólks til að hampa fallegri hönnun?
Það er gaman að eiga fallegt heimili
og margir hafa ánægju af því að eiga
fallegar hönnunarvörur til að prýða
það. En hvað skiptir mestu máli í
okkar daglega lífi, eru það verald-
legir hlutir eða fólkið okkar?
Ég veit að allir segja að auðvitað
gangi fólkið okkar alltaf fyrir og
enginn vill viljandi leggja sína
nánustu í hættu en það er einmitt
inntak þessarar greinar. Vita fagur-
kerar, áhrifavaldar, vöruhönnuðir,
lífsstílshönnuðir eða aðrir þeir sem
hanna, selja eða mæla með „hönn-
unarvörum“ sem í tísku eru í það og
það skiptið, þegar þeir eru að stofna
lífi fólks í hættu?
Mér var verulega brugðið þegar ég
sá sjónvarpsauglýsingar frá einu af
stóru tryggingafélögunum þar sem
verið var að auglýsa valfrelsi í því
hvernig slökkvitæki fólk gæti valið
sér, það er valfrelsi í útliti slökkvi-
tækis. Á heimasíðu tryggingafélags-
ins eru þessi nýju slökkvitæki einnig
auglýst og þar er meðal annars þessi
setning: Veljum öryggisvörur sem
okkur finnst fallegar og pössum að
þær séu aðgengilegar. Látum öryggið
passa. Er það rétta viðhorfið? Ég tel
svo ekki vera.
Öll þekkjum við (vonandi) hið
hefðbundna rauða slökkvitæki sem
á að vera til inni á hverju heimili.
Þegar ég var barn, man ég eftir her-
ferð sem fól í sér að koma slökkvi-
tæki og reykskynjurum inn á hvert
heimili og held ég að það hafi tekist
nokkuð vel. Flestir eru meðvitaðir
um nauðsyn þessara litlu tækja sem
hafa margsannað ágæti sitt við að
bjarga mannslífum og eigum fólks.
Seinna bættist svo eldvarnateppið
við, sem er nauðsyn í hverju eldhúsi.
Skv. reglugerð um slökkvitæki 1
skulu þau að lágmarki uppfylla stað-
alinn ÍST EN 32 og vera CE-merkt.
Nánari lýsingu, sem tekur til dæmis
til útlits og merkinga slökkvitækja,
má finna í leiðbeiningablaði 3, sem
gefið var út af Brunamálastofnun (nú
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun).
Þar segir: „Slökkvitæki skulu vera
rauð á lit (einstök lönd geta þó
ákveðið að allt að 5% yfirborðs tækis
sé í lit sem einkennir slökkviefnið).
Upplýsingar utan á tækinu skulu
settar fram í 5 hlutum (nákvæm lýs-
ing er á hvað á að koma fram í hvaða
hluta merkingarinnar)“.
Í Evrópustaðlinum sem vísað er
í hér hér að ofan, segir í kafla 16 að
slökkvitæki skuli vera rauð að lit,
RAL 3000 samkvæmt litakóða RAL-
841-GL. Þar eru einnig fyrirskrifaðar
nákvæmar útlistanir á því hvernig
merkingum á handslökkvitækjum
skuli háttað. Það má ætla að þessi
nýju slökkvitæki sem ekki eru rauð,
séu aðallega eða eingöngu seld til
heimilisnota, því fyrirtæki og stofn-
anir hafa ríkari skyldur til að gæta
að öryggi almennings.
Það má vera að mörgum finnist
ég vera að hnýta í smáatriði hér en
þegar eldsvoði verður, þá eru það
einmitt smáatriðin sem geta skilið
milli lífs og dauða. Leiðin, til dæmis
frá eldhúsi og út, getur fyllst af eitr-
Tísku-slökkvitæki?
Anna Málfríður
Jónsdóttir
brunaverkfræð-
ingur M.Sc. hjá
Lotu verkfræði-
stofu
uðum reyk á aðeins nokkrum sek-
úndum. Rétt staðsett slökkvitæki,
til dæmis við útidyr, getur slökkt
minni elda og þá komið í veg fyrir
stórtjón og jafnvel keypt nokkrar
auka sekúndur til þess að komast út
heilu og höldnu.
Það er líklegt að húsráðendur viti
að slökkvitækið þeirra sé gyllt, hvítt,
svart eða krómað, í stíl við annað
innanhúss og þar af leiðandi skipti
litur þess engu máli. En hvað um
gestkomandi? Það er veisla í gangi
og upp kemur eldur í jólaskreytingu,
næsti maður ætlar að grípa rauða
sívalninginn sem hann þekkir, en
það tekur hann einhverjar sekúndur
eða mínútur að fá upplýsingar frá
húsráðanda um hvar slökkvitækið
er staðsett og að þetta fína tæki
sé í alvörunni fullgilt og nothæft
slökkvitæki. Það er hægt að taka
fleiri dæmi en mér dettur einnig í
hug barnapössun, hvort heldur sem
um er að ræða ungling utan úr bæ
eða ömmur og afa, er ekki líklegt að
það fólk grípi í slökkvitækið sem það
þekkir, en gangi jafnvel fram hjá fína
tækinu sem fellur svo agalega vel inn í
umhverfið að það sést næstum ekki?
Rauði liturinn á slökkvitækjum,
brunaslöngum og á merkingum sem
vísa á þessi tæki er til þess ætlaður
að grípa augað, að falla ekki inn í
umhverfið. Þegar sekúndur skipta
máli, ætti innanhússhönnun ekki
að vera í öðru sæti? Það er nefnilega
góð ástæða fyrir því að slökkvitæki
eru rauð. n
Flestir eru meðvitaðir
um nauðsyn þessara
litlu tækja sem hafa
margsannað ágæti sitt
við að bjarga manns-
lífum og eigum fólks.
SKANNAÐU QR KÓÐANN
OG TAKTU PRÓFIÐ
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2021 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ