Fréttablaðið - 12.11.2021, Síða 12
Verstappen varð á
sínum tíma yngsti öku-
þór Formúlunnar frá
upphafi þegar hann
keppti sautján ára
gamall í Ástralíu.
12 Íþróttir 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Baráttan um heimsmeistara-
titil ökumanna í Formúlu 1 er
í algleymingi. Fjórar keppnir
eru eftir af tímabilinu og
aðeins nítján stig skilja að
Max Verstappen, ökumann
Red Bull Racing, og sjöfaldan
heimsmeistara, Sir Lewis
Hamilton, ökumann Merce-
des.
aron@frettabladid.is
FORMÚLA 1 Max Verstappen, öku-
þór Red Bull Racing, er með for-
ystuna í keppninni um heims-
meistaratitil ökumanna í Formúlu
1 þegar fjórar keppnir eru eftir af
tímabilinu. Með sigri um helgina
gæti hann unnið sér inn gott and-
rými frá pressunni, sem fylgir því að
leiða stigakeppni ökumanna.
„Verstappen er með tak á þessu
akkúrat núna og Hamilton verður
að ná að gera eitthvað í stöðunni
í Brasilíu. Ef Verstappen vinnur í
Brasilíu er hann með að minnsta
kosti 26 stiga forystu á Hamilton.
Það þýðir að Verstappen hefur efni
á því að detta út í einni keppni án
þess að eiga hættu á að missa efsta
sætið í stigakeppni ökumanna,“
segir Kristján Einar Kristjánsson,
umsjónarmaður Formúlunnar á
Viaplay, í samtali við Fréttablaðið.
„Það sem Hamilton vantar núna
er sigur í Brasilíu og síðan þarf
hann að byggja ofan á það. Ég tel
að Brasilía gæti orðið mikilvægasta
keppni tímabilsins,“ segir Kristján
Einar. Hann telur Mercedes eiga
séns á sigri um helgina. „Þeir hjá
Mercedes eru búnir að vera að finna
hraða sem gefur þeim góða von um
að geta barist við Red Bull.“
Spennandi sprettkeppni
Mat margra Formúlu 1 áhuga-
manna er að ekki sé á spennuna
bætandi um þessar mundir, en
forráðamenn Formúlu 1 eru ósam-
mála. Um helgina mun, líkt og á
tveimur öðrum keppnishelgum
fyrr á tímabilinu, fara fram sprett-
keppni. „Í hinum tveimur keppnum
tímabilsins þar sem hefur verið
sprettkeppni hafa Hamilton og
Verstappen lent saman. Brautin í
Brasilíu býður upp á mikla baráttu
milli bíla þannig að við gætum
fengið algjört einvígi þeirra á milli.“
Brautin sem keppt verður á um
helgina er einnig sú braut sem Max
Verstappen og Lewis Hamilton ættu
að þekkja best, en fjórar keppnir eru
eftir. Brasilía núna og tvær keppnir í
Katar og Sádí-Arabíu sem eru mikið
spurningarmerki að mati Kristjáns.
„Það hefur aldrei verið keppt á þeim
brautum áður í Formúlu 1. Síðan er
lokakeppnin í Abú Dabí og þar hafa
verið gerðar breytingar á brautinni.“
Það er ljóst að spennustigið
verður hátt um helgina en um er að
ræða íþróttaviðburð sem fáir sem
elska góða spennu í íþróttum ættu
að missa af.
„Þetta er sögufræg braut þarna í
Brasilíu. Það hafa verið svo margar
goðsagnakenndar keppnir þarna.
Þetta verður risastór keppni og
hún gæti verið sú mikilvægasta á
tímabilinu fyrir Lewis Hamilton en
einnig fyrir Max Verstappen. Þarna
getur hann komið sér í rosalega
góða stöðu á toppnum,“ segir Krist-
ján Einar Kristjánsson, umsjónar-
maður Formúlu 1 á Viaplay og hlað-
varpsþáttarins Pitturinn sem er á
öllum helstu hlaðvarpsveitum. n
ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Lewis Hamilton þarf að bíta frá sér
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Stjórn KSÍ hefur gengið
frá samningi við Vöndu Sigurgeirs-
dóttur, formann sambandsins, um
kaup og kjör. Þetta fékk Fréttablaðið
staðfest í skriflegu svari. Vanda tók
við starfinu til bráðabirgða í síðasta
mánuði. Er hún með umboð fram í
febrúar þegar ársþing sambandsins
fer fram. Vanda ætlar að sækjast eftir
endurkjöri og verður formaður sam-
bandsins þá kosinn til tveggja ára.
„Laun formanns eru birt með upp-
gjöri ársreiknings á ársþingi KSÍ.
Laun Vöndu eru þau sömu og forvera
hennar í starfi,“ segir Ómar Smára-
son, starfsmaður KSÍ, í skriflegu svari
til Fréttablaðsins.
Guðni Bergsson, forveri Vöndu,
var með 1.283.000 krónur á mánuði
og auk þess naut hann bifreiða-
hlunninda að hámarki 150.000
krónur á mánuði. Vanda fær sama
pakka og hefur skrifað undir samn-
ing þess efnis.
Guðni sagði upp störfum í lok
ágúst þegar sambandið var sakað
um að hylma yfir meint kynferðis-
brot landsliðsmanna. Málið varð til
þess að Guðni og stjórnin sagði starfi
sínu lausu, en Vanda er fyrsta konan
sem stýrir þessu stóra sambandi.
Vanda hefur mikla reynslu úr fót-
boltanum bæði sem leikmaður og
síðar sem þjálfari. Á komandi árs-
þingi í febrúar má búast við því að
hörð kosningabarátta eigi sér stað.
Fleiri munu sækjast eftir starfinu,
sem er valdamikil staða í stærsta
sérsambandinu í íslensku íþrótta-
hreyfingunni. n
Vanda þénar vel yfir milljón á mánuði hjá KSÍ
Vanda Sigurgeirsdóttir fær sama
samning og Guðni Bergsson frá-
farandi formaður KSÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Valur staðfesti í gær að
félagið hefði komist að samkomu-
lagi við Hannes Þór Halldórsson
um starfslok landsliðsmarkmanns-
ins fyrrverandi, sem átti eitt ár eftir
af samningi sínum. Yfirlýsing Vals
á Twitter vakti athygli þar sem það
var fullyrt að Hannes hefði verið
rekinn, en henni var eytt f ljótlega
og Valur baðst afsökunar stuttu
síðar.
Hannes og Valur hafa átt í við-
ræðum síðustu daga um starfs-
lok hans, eftir að félagið samdi á
dögunum við markmanninn Guy
Smit sem hefur leikið með Leikni
undanfarin ár. Hannes hefur verið
einn besti markmaður efstu deildar
undanfarin ár og er einn besti
markmaður Íslands frá upphafi,
eftir að hafa verið í lykilhlutverki
í landsliðinu undanfarinn áratug.
Hannes virðist sjálfur vera óviss
um framhaldið, hvort ferlinum sé
einfaldlega lokið, en hann sagðist í
samtali við vefmiðilinn 433.is vera
að skoða málin.
„Það á eftir að koma í ljós hvað ég
geri, ég þarf að skoða hvaða kostir
verða í stöðunni. Ég þarf að melta
stöðuna og tek næstu vikurnar í
það. Ég ætla að sjá hvernig landið
liggur og hvernig hausinn á mér er
varðandi það að halda áfram.“ n
Erfiður skilnaður
Hannesar og Vals
Hannes Halldórsson er farinn frá
Hlíðarenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þeir Max Verstappen og Lewis Hamilton berjast um titilinn í Formúlunni. Sannkallað Formúluæði er að grípa um sig hér á landi eftir að þættir um íþróttina
voru gerðir á Netflix. Kristján Einar, umsjónarmaður Formúlu 1 á Viaplay, býst við að keppnin í Brasilíu verði sú mikilvægasta til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnpall@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Öflug spilamennska
íslenska k vennalandsliðsins á
báðum endum vallarins dugði ekki
til í sex stiga tapi gegn Rúmeníu í
gær. Ísland leiddi fyrir lokaleikhlut-
ann en missti leikinn úr höndunum
á lokamínútu leiksins.
Þetta var fyrsti leikur Íslands í
undankeppni EuroBasket 2023 og
í fjarveru lykilmanna þurftu aðrir
að stíga upp. Sara Rún Hinriksdóttir
bar af í liði Íslands í gær með tvö-
falda tvennu, sautján stig og ellefu
fráköst. n
Naumt tap gegn
Rúmeníu ytra
Brautin í Brasilíu býður
upp á mikla baráttu
milli bíla þannig að við
gætum fengið algjört
einvígi þeirra á milli.