Fréttablaðið - 12.11.2021, Qupperneq 14
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu
þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þorbjörg Rósa
Guðmundsdóttir
frá Harðbak á Melrakkasléttu,
lést 25. október.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Streymt verður frá athöfninni:
https://laef.is/thorbjorg-rosa-gudmundsdottir/
einnig á Mbl.is/andlát
Þórey Björnsdóttir Jóhannes Jens Kjartansson
Jón Hrafnkelsson
Guðmundur Á. Björnsson Sæunn Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Djasslistamenn á heimsmæli-
kvarða leika saman og sitt í
hvoru lagi í Salnum í Kópavogi
á laugardag.
arnartomas@frettabladid.is
Tónleikaröðin Jazz í Salnum hefur verið
að festa rætur í menningarlífi Kópavogs
undanfarin ár og á laugardaginn verður
þar boðið upp á tónleika á heims klassa.
Þá munu ítalski píanistinn Simone
Graziano og belgíski píanistinn Eve
Beuvens hittast á því sem er lýst sem
eins konar blindu stefnumóti og sýna
hvað í þeim býr. Sunna Gunnlaugs
hefur haft umsjón með dagskránni frá
upphafi og er spennt fyrir herlegheitum
helgarinnar.
„Þau eru bæði af yngri kynslóð og
hafa sótt efnivið sinn í dægurtónlist,“
segir hún. „Simone hefur verið að leika
sér með efni frá Billie Eilish og Eve með
Dolly Parton. Þau semja líka sjálf, svo ég
er ekki alveg viss um hvaða dagskrá þau
hafa sett saman fyrir okkur.“
Flytjendurnir munu svo hvort um sig
f lytja sóló-sett áður en þau taka dúett
eftir hlé.
„Það sem mörgum finnst svo spenn-
andi við djassinn er hvað það er margt
óvænt í honum,“ segir Sunna. „Það er
ekki alltaf fyrir fram ákveðið í hvaða átt
hlutirnir fara. Svo er líka spennandi að
það verði tvö píanó en það er ekki alltaf
sem gefst tækifæri fyrir píanista að spila
með öðrum píanista. Flyglarnir í salnum
eru líka alveg frábærir.“
Væntanlegur virtúós
Þetta er þriðja starfsár tónleikaraðar-
innar en Sunna byrjaði með Jazz í Saln-
um árið 2019 en þurfti að setja hlutina á
ís í faraldrinum.
„Það var leiðinlegt því þá fannst mér
einmitt eins og við værum að komast
í gang fyrir alvöru og vorum búin að
koma okkur á kortið,“ segir hún. „Fólk
sem kom á tónleika hjá okkur var svo
afskaplega ánægt með þetta og að sjá
flytjendur á þessu heimsklassa kalíberi.
Nú erum við að fara aftur í gang og von-
andi kemur engin bremsa á okkur.“
Tónleikarnir um helgina eru þeir
einu fyrir áramót en í janúar kemur
bandaríski píanistinn Craig Taborn til
landsins. Hann er að sögn Sunnu einn
eftirsóttasti píanisti New York á undan-
förnum árum og í New York Times var
hann sagður mögulega besti djasspían-
isti samtímans.
„Craig er mikill virtúós og alveg sér-
stakt hvað hann passar inn í hvaða
umgjörð sem er,“ segir Sunna. „Hann
hentar, sama hvernig tónlist á að spila
án þess þó að missa sinn persónulega
karakter.“
Tónleikarnir á laugardaginn hefjast
klukkan 20 og hvetur Sunna fólk til að
kynna sér hvað Salurinn hefur upp á að
bjóða.
„Það er mikil upplifun að vera þarna
því hljómburðurinn er svo góður,“ segir
hún. „Þetta er órafmagnað og alveg frá-
bær akústík.“ n
Djass á heimskalíberi í Salnum
Sunna hefur stýrt Jazz í Salnum frá upphafi. MYND/AÐSEND
Simone og Eve munu leika sitt í hvoru lagi og sem dúett. MYNDIR/AÐSENDAR
Hjartkær eiginkona mín,
Þóra Davíðsdóttir
Suðurlandsbraut 60,
sem lést 27. október, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju mánudaginn
15. nóvember kl. 15.
Minnt skal á þakkarskuld við
hjúkrunarheimilið Mörk.
Ólafur Pálmason
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Karl Bjarnason
múrari,
Klettabergi 34, Hafnarfirði,
lést 3. nóvember.
Jarðsett verður í kyrrþey frá Hafnarfjarðar-
kirkju miðvikudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Streymt
verður frá athöfninni, https://youtu.be/OTFOB0wi338
Hildur Þorsteinsdóttir
Auður Baldursdóttir Erling Pétur Erlingsson
Þorsteinn Sveinn Karlsson Úlfhildur Jónasdóttir
Svanhildur Karlsdóttir Anton Magnússon
Lilja Guðríður Karlsdóttir Jónas Þór Oddsson
Það er ekki alltaf fyrir-
fram ákveðið í hvaða átt
hlutirnir fara.
1793 Jean Sylvain Bailly, fyrsti borgarstjóri Parísar, er
hálshöggvinn. Hann varð borgarstjóri eftir bylting-
una 1789 en féll síðar í ónáð.
1840 Franski myndhöggvarinn Auguste Rodin er í
heiminn borinn.
1927 Leon Trotsky er rekinn úr sovéska Kommúnista-
flokknum.
1929 Bandaríska leikkonan Grace Kelly fæðist.
1956 Marokkó, Súdan og Túnis ganga í Sameinuðu þjóð-
irnar.
1967 Síðustu tíu íbúarnir flytja úr Flatey á Skjálfanda og
hefur eyjan verið í eyði síðan. Flestir urðu íbúar
Flateyjar árið 1952 þegar þeir voru 129 talsins.
1974 Rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson deyr á Land-
spítalanum í Reykjavík 86 ára að aldri.
1982 Júrí Andropov verður aðalritari sovéska Kommún-
istaflokksins og leiðtogi landsins. Hann tekur við af
Leoníd Brezhnev sem lést tveimur dögum fyrr.
1996 Boeing 747 vél sádí-arabíska ríkisflugfélagsins og
Ilyushin II76 vél frá Kasakstan lenda í árekstri í há-
loftunum nálægt Nýju-Delí á Indlandi. Allir 349 um
borð í flugvélunum tveimur láta lífið.
1999 Jarðskjálfti að styrkleika 7,2 ríður yfir norðvestur-
hluta Tyrklands. Mest tjón verður í Düzce-héraði
en minnst 845 manns láta lífið og um fimm þúsund
slasast.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR