Fréttablaðið - 12.11.2021, Síða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn
Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Glúmur segist
hafa mátt undir-
búa sig betur
fyrir framboð
sitt í haust.
Hann eigi miklu
meira inni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
„Innst inni er ég fremur sak-
laus, hjartahlýr og góður maður.
Svo mikið, að vinkonur foreldra
minna í denn vildu alltaf klappa
mér um kinn og tylla mér á hné sér
í barnæsku og fram á unglingsár.
Svo laðast börn og dýr að mér.
Þetta fór að endingu svo í taug-
arnar á mér að á efri unglingsárum
fór ég í uppreisn og byrjaði að
drekka, haga mér ósæmilega opin-
berlega og stunda kvennafar meira
en góðu hófi gegndi. Bara til að
afsanna að ég væri drengur góður.
Kannski hefur þessi uppreisn
gengið of langt því að lokum gat ég
ekki umflúið eðli mitt. Ég hef stóra
samvisku og vil aftur nálgast hið
góða í sjálfum mér.“
Þetta segir Glúmur Baldvinsson,
en hvaðan kemur nafnið hans og
hví var honum valið það?
„Spurðu föður minn að því.
Hann réði öllum nöfnum okkar
systkina, nema því fyrsta, Aldís,
því hann var fjarri í Edinborg
þegar hún kom í heiminn. Þegar
ég fæðist er pabbi á kafi í Íslend-
ingasögunum og heimtar nafnið
Glúmur eða Illugi. Glúmur varð
það að endingu; í höfuðið á einum
karakter Íslendingasagnanna,
Víga-Glúmi, sem var seinþroska
og latur en reis loks úr rekkju og
hjó mann og annan, en átti því
óláni að fagna að deyja ellidauða.
Glúmur kemur líka fyrir sem
eiginmaður Hallgerðar langbrókar
í Njáls sögu. Mikill kappi. En eins
og nafnið bendir til þýðir það
hinn dimmi, dökki og þunglyndi.
Samanber enska orðið glum,“
útskýrir Glúmur og heldur áfram:
„Nafnið var svo óvenjulegt
þegar ég var að alast upp að ég
lenti oft í slagsmálum vegna þess.
Sem ég vann yfirleitt. Ég hef sagt
það í gamni að pabbi hafi gefið
mér nafnið til að herða mig, því
ef þú getur ekki lifað með svona
nafni gætirðu koðnað niður.
Eins og í lagi Johnny Cash, A boy
named Sue. En ég lifði það af og er
afar hrifinn af nafninu í dag.“
Missir systra mesta sorgin
Fjölskylda Glúms hefur orðið fyrir
þungum raunum á lífsleiðinni.
„Æska mín var lituð hamingju
og samstöðu innan fjölskyld-
unnar. Ekki bara æskan heldur allt
lífið fram að fertugsaldri. Þá lék
allt í lyndi,“ segir Glúmur og lítur
til baka.
„Mín mesta sorg er missir systra
minna. Snæfríðar sem lést óvænt í
blóma lífsins. Og svo missir Aldísar
sem hvarf inn í sorta veikinda
sem hún afneitar og getur því
ekki komið til baka og orðið sú
skemmtilega systir sem var sólar-
geisli æsku minnar. Þær eru báðar
horfnar mér. Árásir á föður minn
og móður hafa náttúrlega valdið
mér kvíða og þunglyndi, en ég hef
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
reynt að bera höfuðið hátt,“ segir
Glúmur, en hvernig?
„Ég þekki foreldra mína og veit
sem varðhundur heimilisins frá
byrjun að faðir minn er hafður fyrir
rangri sök. Aldrei varð ég var við
allan þann viðbjóð sem hann var
sakaður um og trúðu mér: Hefði
ég orðið var við slíkt sneri ég við
honum baki. Ég var vakandi yfir
öllu á mínu heimili, og kannski of
mikið. Ég trúi því að systir mín og
móðursystir standi í þessari aðför
að föður mínum, ekki til að ná
sér niður á honum, heldur móður
minni. Þar spilar öfund stórt hlut-
verk. Sagan er djúp og löng og teygir
sig langt aftur í tímann, en ég kæri
mig ekki um að rekja hana hér.“
Í vikunni var Jón Baldvin sýkn-
aður af ákæru fyrir kynferðislega
áreitni.
„Nú er eina dómsmálinu sem
höfðað hefur verið gegn föður
mínum lokið og hann sýknaður.
Fyrir utan allar lögreglukærurnar
sem hefur líka verið vísað frá. Ég
á mér þá ósk heitasta að foreldrar
mínir megi njóta ævikvöldsins í
friði og gleði, eins og þau eiga skilið,
enda hafa þau svo sannarlega gert
sitt í þessu lífi. Þau hafa staðið
sína plikt og unnið fyrir því að
eiga fagurt ævikvöld. Ég vil sjá þau
blómstra næstu áratugina og þá er
ég glaður.“
Glúmur er nánastur föður sínum,
sem hann segir sinn besta vin og að
engan sé betra að tala við.
„Faðir minn hvatti mig til að
vinna og nýta hæfileika mína.
Hann hvatti mig til að skrifa og
hugsa og hann hefur alltaf verið
minn besti vinur, því hvernig sem
ástatt er í lífi mínu þá leita ég til
hans til að fá ráð og huggun og kraft
til að halda áfram. Pabbi er hlýr
maður og enginn skemmtilegri við-
ræðu. Hann gerir kröfur til mín um
að standa í lappirnar og sýna karl-
mennsku. Kannski hef ég stundum
tekið það of langt. Skemmtilegri
faðir finnst ekki. Hann er í raun
átrúnaðargoðið mitt,“ segir Glúmur,
um dýrmætasta veganestið frá
foreldrum sínum.
„Mamma gaf mér ævintýraþrá
og ástríðu fyrir að skoða heiminn,
enda ferðaðist hún með okkur öll
sumur um útlönd. Ég fékk þá ferða-
bakteríuna og hef þegar heimsótt
sjötíu lönd í þessum heimi. Næst á
dagskrá er Suður-Ameríka. Mamma
reyndi líka að temja mér kurteisi,
sér í lagi við þá sem minna mega
sín. Hún reyndi af öllum mætti
að lækka í mér hrokann sem fór
vaxandi með velgengni fjölskyldu
minnar upp úr tvítugu. Mamma er
samviska mín.“
Vill ganga til liðs við annan flokk
Mörgum þótti spennandi þegar
Glúmur bauð sig fram til Alþingis
fyrir Frjálslynda íhaldsflokkinn í
haust. Eftirminnileg ummæli hans í
kosningabaráttunni voru að ætla að
rífa kjaft, kæmist hann á þing.
„Ég er nú fremur kurteis dags-
daglega og vil engum mein og
allra síst særa fólk. Þegar það gerist
get ég ekki beðið eftir að biðjast
afsökunar, sem ég geri oftast nær.
En þú verður að skilja að það að
vera sonur þessa fólks eða þessarar
fjölskyldu, þá þarf maður að læra
að verja sig og ég hef þróað þá list í
gegnum árin. Að svara fyrir mig og
ég læt engan vaða yfir mig. Engan.
Oft er leikurinn til þess gerður að
kenna fólki að reyna ekki að fara
aftur í mig. Því þá tapar það,“ segir
Glúmur, alvarlegur í bragði.
Hann gengst við því að vera skap-
mikill.
„Það fæ ég úr báðum ættum.
Ellert, móðurbróðir minn, er skap-
hundur, og amma hafði líka mikið
skap. Ég fæ þetta úr Schram-ætt-
inni, en þú vilt ekki heldur æsa
upp föður minn sem er alla jafna
yfirvegaður, en í þau fáu skipti sem
hann hefur reiðst um ævina hefur
verið best að forða sér. En þótt ég sé
skapmikill er ég þannig náttúraður
að ég kem niður á örskotsstundu og
allt er gleymt. Ég hata engan og ber
ekki kala til neins og ef mér finnst
ég hafa gengið of langt er ég fyrstur
manna til að biðjast afsökunar. Ég
hef þetta dæmigerða latneska skap.
Fljótur upp og fljótur niður.“
Í kosningabaráttunni stal
Glúmur svolítið senunni, en hvers
vegna, telur hann?
„Ég hef ekki grænan grun.
Kannski af því ég reif kjaft, eins og
ég lýsti að ofan. Kannski stuðaði ég
hinn almenna borgara. Allavega
skilaði það ekki mörgum atkvæð-
um. Ástæðan er kannski sú að ég
var í röngum flokki. Ég hef íhugað
að ganga til liðs við annan stjórn-
málaflokk og auglýsi það hér með.“
Glúmur var gagnrýndur fyrir að
hafa mætt drukkinn í kosninga-
kappræður í sjónvarpi.
„Það var tóm þvæla. Gísli Mar-
teinn hrakti þá sögusögn og
sminkurnar á RÚV. Það hefði ekki
farið framhjá neinum ef ég hefði
verið drukkinn. Ég gekk þarna
um gólf af tveimur ástæðum; ég
er hávaxinn og fæ í mjóhrygginn
við að standa tímunum saman við
dvergvaxið púlt. Í annan stað leidd-
ist mér á köflum að komast lítið
að í tvo og hálfan tíma. Ég er hins
vegar ekki bindindismaður og hef
á stundum glímt við áfengisvanda í
kjölfar ákveðinna áfalla í lífinu. Það
er djöfulleg barátta,“ segir Glúmur
af hreinskilni.
Hann kveðst eflaust misskilinn,
en lætur þó ekki deigan síga.
„Algengasti misskilningurinn er
að ég sé hrokafullur forréttinda-
drengur sem ætli á þing í kjólfaldi
föður míns. Án þess að eiga það
skilið. Ég er auðvitað óreyndur
með öllu og sýndi ekki mitt besta.
Ég hefði mátt brosa meira í anda
mömmu og koma mínum sjónar-
miðum á framfæri með skýrari
hætti. Ég hefði mátt undirbúa mig
miklu betur. Ég á miklu meira inni.“
Íhugar framboð til borgarstjóra
Áhugi Glúms á að hasla sér völl
í pólitík jókst eftir framboðið í
haust, en hvers vegna vill hann ná
metorðum á æðstu stöðum?
„Af því ég tel mig öllum kostum
búinn til að verða frábær pólitíkus.
Það hvatti mig líka áfram að
sjá hvernig samfélagið réðst að
fjölskyldu minni. Svo það var
hefndarhugur í mér. Ég tel mig geta
gert betur en nánast allir sem nú
sitja á þingi. Ég hef menntunina,
reynsluna, orðfærið og pennann, og
það er ekki öllum gefið,“ segir hann
sposkur.
Eftir alþingiskosningarnar
sagðist Glúmur næst bjóða sig fram
til borgarstjóra og forseta.
„Ég sagði það nú meira í gríni en
alvöru, en öllu gríni fylgir einhver
alvara. Ég væri til í að taka þátt í
borgarstjórnarkosningum í vor, en
það er bara spurning um flokk. Enn
og aftur auglýsi ég krafta mína því
ég vil Dag burt og allt sem núver-
andi borgarstjórn stendur fyrir.
Hvað forsetaembættið varðar var
það helbert grín. Ég yrði frábær for-
seti, en ekki strax. Fyrst þarf ég að
sanna mig annars staðar. Forsetinn
í dag er að mínu mati of daufur og
ekki nægilega hrífandi. Hann er
engu að síður góður maður og vill
vel. Komi að því að ég sækist eftir
forsetaembætti mætti búast við for-
seta í anda Ólafs Ragnars. Ég myndi
hvorki láta þingið né ríkisstjórnina
í friði þegar upp kæmu stór mál sem
þingið ræður ekkert við. En það
verður að bíða, enda á ég engan séns
í það embætti að svo stöddu.“
Hégómagjarn kvennaljómi
Glúmur hefur lengi verið annálaður
kvennaljómi.
„Í sanni sagt fékk ég kannski
meiri athygli kvenna en gengur og
gerist fyrir þá staðreynd af hvaða
fjölskyldu ég var. En svo þegar ég
fluttist utan komst ég að því að þar
var sama sagan, þar sem enginn
vissi hver ég var. Auðvitað naut ég
þess út í ystu æsar; ég er hégóma-
gjarn maður með afbrigðum, en
það kom mér oft í bobba,“ segir
hann og brosir.
„Lífið er dásemd og gjöf sem má
ekki kasta á glæ. Að eldast finnst
mér gott, sér í lagi þegar einstaka
kona gefur mér enn auga, þótt
ekkert þurfi að verða meira úr því.
En svo lengi sem heilsan bregst mér
ekki hlakka ég til að fá grá hár, sem
virðist seint ætla að ganga eftir.“
Listakonan Lína Rut Wilberg
fangaði hjarta Glúms fyrr á árinu.
Hún er ekki síður þekkt fyrir glæsi-
leik og ein fegursta kona Íslands.
„Ég var bálskotinn í Línu Rut
þegar ég var fimmtán og hún vann
í ísbúðinni í Úlfarsfelli vestur í bæ.
Mér fannst hún of falleg til að þora
að yrða á hana einu orði. Hún var
yfir mig hafin. Við strákarnir fórum
ekki þangað til að kaupa ís heldur
bara til að sjá Línu. Við kynntumst
svo 45 árum síðar á göngu í Kefla-
vík. Þá hleypti ég í mig kjarki til að
yrða á hana. Það endaði vel. Hún er
allt önnur týpa en ég og bætir við
líf mitt reglu, festu og ró. Hún er
praktísk á meðan ég er ópraktískur.
Hún er jarðbundin á meðan ég svíf
um í draumum. Kannski er hún sú
eina rétta?“ segir Glúmur, spurður
um ástarlífið. n
Árás-
ir á föður
minn og
móður
hafa nátt-
úrlega
valdið mér
kvíða og
þunglyndi,
en ég hef
reynt að
bera höf-
uðið hátt.
Það
að
vera sonur
þessa
fólks, þá
þarf maður
að læra að
verja sig og
ég hef
þróað þá
list í gegn-
um árin.
Að svara
fyrir mig
og ég læt
engan vaða
yfir mig.
Engan.
Lengri útgáfa á frettabladid.is
2 kynningarblað A L LT 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR