Fréttablaðið - 12.11.2021, Side 28
svavamarin@frettabladid.is
Með kólnandi veðri er góð húðum-
hirða mikilvægur partur af daglegri
rútínu að sögn Hörpu Káradóttur,
förðunarfræðings og eiganda Make-
Up Studio Hörpu Kára.
„Hrein húð er lykillinn að öllu og
er afar mikilvægt að þrífa húðina
fyrir nóttina. Allir ættu að eiga góð
rakakrem fyrir veturinn til að við-
halda rakastigi húðarinnar og að
forðast þurrk,“ segir Harpa.
Valið getur reynst sumum erfitt
þar sem úrvalið er afar fjölbreytt og
mælir hún með að fólk prófi færri
vörur en f leiri í einu. „Ef húðin er
ekki vön að nota þetta mikla magn
af vörum bregst hún oft illa við og
hvet ég fólk til að prófa eina vöru í
einu,“ segir Harpa.
Þegar kólnar er gefið mál að margt
sem virkar vel á sumrin virkar ekki
á veturna og mælir Harpa með að
skipta snyrtivörum út á milli árstíða
sem til að mynda veita meiri raka á
veturna, sem er ekki eins áríðandi
yfir sumartímann. n
Vetrarhúðrútína
Hörpu Kára
Clarins Take the day off
olíuhreinsir
„Á þessum árstíma færi ég mig
yfir í olíuhreinsa eða balm
hreinsa. Minn uppáhalds núna
heitir, Take the day off frá Clini
que. Ég ber hann á allt andlitið og
hann bræðir í rauninni farðann af,
svo nota ég heitan þvottapoka til
að þrífa andlitið eftir á.“
Bioeffect EGF power cream
„EGF power cream frá Bioeffect
er í miklu uppáhaldi þessa daga
og hentar mér og þessum veður
breytingum ótrúlega vel án þess
að erta húðina. Ég hef verið að
nota það krem bæði kvölds og
morgna.“
Clarins Beauty Flash
Eye Revive augnkrem
„Augnkrem frá Clarins, Beauty
Flash Eye Revive er mikilvægur
partur af minni húðrútínu. Það
dregur úr bólgu, þrota og kælir
augnsvæðið. Ég átti tvíbura fyrir
15 mánuðum síðan og við erum
enn að eiga við mikið svefn
leysi.“ Að sögn Hörpu færi þetta
krem með henni á eyðieyju.
Skyn Iceland Nordic Skin
Peel ávaxtasýruskífur
„Skyn Iceland ávaxtasýruskífur
eru mjög góðar til að jafna húðina
undir förðun. Ég skrúbba vanda
málasvæði á kvöldin og set síðan
krem eftir það. Ef fólk er ekki vant
að nota sýrur og skrúbba þarf að
byrja hægt kannski einu sinni til
tvisvar í viku.“
Smashbox Photo Finish
Smooth & Blur Primer
Fólk sem er vant að nota púður
getur fundið fyrir þurrki í húðinni
við notkunina á veturna að
sögn Hörpu og er gott að breyta
notkun á förðunarvörum á milli
árstíða. „Ég mæli með einni
lykilvöru sem dregur úr glansi
og því hægt að sleppa að nota
púður, það er primer frá Smash
box, Photofinsih. Primerinn er
glær og mattur sem jafnar áferð
húðarinnar og fyllir upp í svita
holur,“ segir hún.
Harpa Kára
dóttir, förð
unarfræð
ingur og eigandi
MakeUp Studio
Hörpu Kára,
er tilbúin fyrir
kólnandi veður.
MYND/ALDÍS
PÁLSDÓTTIR
Weleda Skin Food
Ultra-Rich Cream
Harpa hefur notað Weleda Skin
Food í mörg ár og segir það
algjöra rakabombu. „Formúlan
er mjög hrein og náttúruleg og
get ég notað það á mig og börnin
mín á alla þurrkubletti. Ég nota
það þegar húðin þarf extra raka
og fitu. Það er einnig hægt að
nota það sem rakamaska, bera
á í þykku lagi og bíða í 10 til 12
mínútur. Þeir sem eru með feita
húð þurfa í þessu tilfelli að fara
varlega í sakirnar.“
Bók
Meðal hvítra skýja
Bókin Meðal hvítra skýja lætur
ekki mikið yfir sér en hún geymir
skáldskap sem hefur ekki gleymst
og mun aldrei gleymast. Hér
eru fornar kínverskar vísur frá
tímum Tangkeisaraættarinnar
sem ríkti frá 618907. Hjörleifur
Sveinbjörnsson þýðir og skrifar
jafnframt inngang og skýringar.
Það þarf ekki að lesa lengi í þessari
litlu en innihaldsríku bók til að
heillast. Skáldskapur sem á yfir
borðinu virðist einfaldur en býr
yfir dýpt og vekur upp alls kyns
hugrenningar hjá lesandanum.
Bók sem má alls ekki týnast í jóla
bókaflóðinu.
n Allra best
Myndlist
Carl Boutard
Listamaðurinn Carl Boutard sýnir
skúlptúra sína í Ásmundarsafni
innan um verk Ásmundar Sveins
sonar. Þarna eru risastórir skúlp
túrar sem minna á ótal margt
í náttúrunni, gerðir úr pappír,
keramik, gifsi og frauðplasti.
Greinilegt er að verkin slá í gegn
hjá gestum sýningarinnar sem
hafa verið ósparir á að láta mynda
sig hjá þeim. Börnin eru áberandi
stórhrifin, list Boutard ratar svo
sannarlega til þeirra. Húsið sjálft
og umhverfið eru síðan listaverk
í sjálfu sér, þannig að heimsókn í
safnið skilur mikið eftir sig. Sýning
sem eindregið er mælt með. n
24 Lífið 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR