Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 10

Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 10
HEILSUVERND Jónas Kristjánsson: Hvers viríi er gói heilai! Um heilsuna hefir það löngum verið sagt, að enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst hefir. Engin eign veitir mönn- um meiri lífssælu en góð heilsa. Hún er hvers manns og hverrar þjóðar dýrmætasta eign. Menn eru oft næsta tóm- látir um varðveizlu heilsunnar, meðan hún er allgóð, en þegar hún er farin að bila, vilja menn verja sínum síðasta eyri til þess að endurheimta hana. Hvað er heilsa eða heilbrigði? Þetta hefir verið skýrt á ýmsan hátt. Vér vitum, að maðurinn er samband óteljandi lífseinda, sem vér köllum frumur. Heilbrigði er friðsam- legt samstarf allra þessara fruma. I heilbrigðum manns- líkama hafa allar frumur sameiginlegt takmark, heill og velferð heildarinnar. Allar vinna þær óeigingjarnt starf í hennar þágu.Þegar svo er, leikur allt í lyndi. Menn eru sælir af sjálfum sér. Sjúkdómar eru hinsvegar sundrung og truflun á þessu friðsamlega og náttúrlega samstarfi, og um leið barátta af henai hins inngróna læknismáttar líkamans, sem er trúnaðarlæknir forsjónar lífsins.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.