Heilsuvernd - 01.03.1950, Side 16

Heilsuvernd - 01.03.1950, Side 16
HEILSUVERND Björn L. Jónsson: Vörn og orsök krabbameins V. Lækning krábbameins. Næringin. Þá er komið að veigamestu orsök krabba- meinsins, en það er röng næring líkamans. Hinir útbreiddu og stórfelldu gallar á mataræði menningarþjóðanna hafa svo oft og ítarlega verið ræddir hér í ritinu og í bókum NLFÍ, að hér verður ekki fjölyrt um það atriði, heldur lát- ið nægja að minna á þá staðreynd, að menningarþjóðirnar búa frá vöggu til grafar við tilfinnanlegan skort ýmissa nauðsynlegra næringarefna, ofneyzlu annarra næringar- efna og ofát yfirhöfuð að tala. Af þessu leiðir veiklun einstakra líffæra og líkamans alls, í senn vegna ofreynslu og efnaskorts. Viðnámsþróttur líkamsfrumanna dvínar, og þær standast ekki árásir sýkla og annarra sjúkdómsafla. Með því er krabbameininu boðið heim, því að það ,,kem- ur aldrei í heilbrigt líffæri“ (sbr. síðasta hefti). Ennfrem- ur má minna á það, að rangt mataræði veldur tregum hægðum, sem eru, eins og áður hefir verið sýnt, ein helzta orsök innvortis eitrunar og krabbameins, bæði innvortis og útvortis. Því miður er ekki rúm til að taka upp nema fá sýnis- horn af miklum fjölda ummæla í þessa átt eftir þekkta er- lenda lækna og sérfræðinga. Sir William A. Lane, einn þekktasti og reyndasti skurð- læknir Englendinga, nýlega látinn, segir:

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.