Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 29

Heilsuvernd - 01.03.1950, Page 29
HEILSUVERND Húsmæðraþáttur Bakstur úr heilhveiti. Matarbrauð er verulegur hluti af dagsfæði hvers manns. Það skiptir því miklu máli, að brauðið sé bæði vel tilbúið og hollt. Til þess að búa til brauð er þetta þrennt nauðsyn- legt: Mjöl, vatn og einhverskonar lyftiefni. Venja hefir verið að nota rúgmjöl eða hvítt hveiti í brauð, en í seinni tíð hefir notkun heilhveitis færzt mjög í vöxt. En heilhveiti nefnist það, þegar hveitikornið er malað án þess að sigta hýðið frá. I yzta hýði kornsins er ómeltanlegt tréefni, en undir því er lag, auðugt að steinefnum og fjörefnum. Tréefnið örvar meltinguna og gerir þannig mikið gagn. Meginið af fjörefnum og steinefnum kornsins fylgja hýðinu, ef mjöl er sigtað eða grjón fægð. Því er bezt að nota heil- mjöl eða hýðiskorn til matar. — Ákjósanlegast væri að geta notað sveppager (ölger, þurrger) í stað lyftidufts, sem hefir eyðileggjandi áhrif á fjörefnin, en sveppagerið hins vegar auðugt að B-fjörefnum. — Hér fara á eftir nokkrar uppskriftir af matarbrauði og kökum úr heilhveiti. Hverabrauö. 900 gr. rúgmjöl; 600 gr. heilhveiti; 10—15 gr. sveppager (eða 1 tesk. þurrger, eða 1 hnefi súrdeig); 50 gr. púðursykur; 8 dl. kalt vatn; 1 tesk. salt. Gerið er hrært með 2 matskeiðum af ylvolgu valni. Öllu því þurra blandað saman, vætt í með vatninu og gerblöndunni og deigið hnoð- að vel saman. Sett í vel smurðan bauk og látið lyfta sér við yl í 1—2 klst. í ílátinu með klút yfir. Þá er lokið látið á baukinn og brauðið soðið i vatni í 5—7 klst. Einnig má skipta deiginu í 2—3 minni bauka, og þarf þá ekki nema 2 klst. suðu.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.