Heilsuvernd - 01.03.1950, Qupperneq 33
HEILSUVERND
25
sætindi eins og þau gátu torgað, auk síns venjulega óbrotna íæðis.
Eftir 6 vikur höföu 75% af börnunum fengiö tannátu. Tóku þá lækn-
arnir saman föggur sínar og skildu börnin eftir með tannátuna og
endurminninguna um sætindin. Þetta var óneitanlega dálítið grár
leikur, en sú er bót í máli, að margt má af þessu læra.“ (Leturbr.
hér).
Já, óneitanlega grár leikur — og með öllu óþarfur. Því að lækn-
um og næringarfræðingum eru fyrir löngu kunn skaðleg áhrif sæt-
inda á tennur barna. Auk þess mátti gera tilraunina á þann hátt,
að taka fyrir sætindaneyzlu barnahóps og athuga áhrif þess á tenn-
ur þeirra og heilsufar yfirhöfuð. Slíkar tilraunir hafa verið gerðar
með greinilegum jákvæðum árangri.
En hvaða gagn er svo af slíkum tilraunum, ef ekkert er farið eftir
þeim lærdómi, sem þær láta í té? Ekki verður þess a. m. k. vart
hér á landi, að læknar hefjist handa um útrýmingu sætindaáts
hjá börnum.
RÁÐ VIÐ KVEFI.
Amerískur læknir, Rasmus Alsaker að nafni, höfundur hinnar á-
gætu greinar um meðferð ungbarna í „Nýjum leiðum II“, segir á
þessa leið í nýútkomnu hefti af txmaritinu „Health Culture" (Heilsu-
rækt):
„Náttúrleg ráð við kvefi eru þessi: 1. Frá þeirri stundu, er þú
verður þess var, að kvefið er að byrja, máttu ekkert borða, hvorki
fasta né fljótandi fæðu. 2. Enda þótt þú hafir haft hægðir nýlega,
áttu að taka inn eitthvert milt hægðalyf og drekka á eftir eins mikið
af vel volgu vatni og þú getur, blandað sítrónusafa. Þá verkar
hægðalyfið betur. Síðar um daginn áttu að setja þér stólpipu. 3.
Leggjast í rúmið og liggja a .m. k. í sólarhring, ef ástæður leyfa.
4. Drekka mikið vatn, gjarnan með sítrónusafa saman við.
Sé þessum ráðum fylgt út í æsar, er kvefið venjulega á bak og
burt að sólarhring liðnum. En ef menn borða eitthvað, sleppa þeir
ekki eins vel.
Enn betri verða áhrifin, ef menn fara í bað, eins heitt og þeir
þola, og liggja þar, unz þeir bullsvitna. — Þessi aðferð hefir engin
slæm eftirköst í för með sér, heldur verður maður hressari eftir
en áður.
Menn ættu ekki að sýna hirðuleysi gagnvart kvefi. Meðal sjúkdóma,
sem geta komið upp úr langvinnu kvefi, má nefna lungnakvef
((bronchitis), astma, lungnabólgu og berkla".