Heilsuvernd - 01.03.1950, Blaðsíða 34
26
HEILSUVERND
LOFTHITINN I SVEFNHERBERGJUM OG ÖNDUNIN.
Á einni nóttu andar maður-
inn að sér 5-6000 lítrum af lofti,
og af því er 1/5 súrefni, eða
1000-1200 lítrar. Þetta er þó
breytilegt eftir hitastigi lofts-
ins, þvi að eins og kunnugt er,
þenst það út við hita en dregst
saman við kulda. Munar þetta
1/300 hluta við hvert stig á
Celsíus. Ef við förum t. d.
úr 20 stiga hita í 10 stiga frost,
þjappast loftið saman sem nem-
ur um 1/10, og að sama skapi
eykst það súrefnismagn, sem
við öndum að okkur í hverj-
um andardrætti. I einum litra
af lofti er þannig um 10%
meira af súrefni við 10 st.
frost en við 20 st. hita, og á
einni nóttu mundi þetta nema
100-200 lítrum af hreinu súr-
efni.
En svo kemur annað til
greina. 1 hreinu og köldu lofti
er öndunin miklu dýpri og full-
komnari en í heitu lofti. —
Myndin sýnir línurit af öndun
í heitu lofti (efri myndin) og
í köldu lofti (neðri myndin).
Sveiflurnar, sem penninn skrif-
Línurit af öndun, aö ofan í heitu ar a blaðið, sýna, hve djúpar
lofti, aö neöan í köldu lofti. inn- og útandanir eru, og
munar þetta mjög miklu.
öndunin er þýðingarmesta lifsstarf líkamans, og súrefnið þýðing-
armesta efni hans. 1 svefnherbergjum dvelja menn um eða yfir
þriðjung ævi sinnar. Af framansögðu má því marka, hve mikils-
vert það er, að þar sé jafnan hreint og kalt loft. Þeir, sem reynt
hafa, segjast aldrei sofa betur, þurfa minni svefn og vera hressari
að morgni en þegar þeir sofa í miklu frosti. En þá þarf auðvitað
allur umbúnaður að vera góður og vandaður. Þess eru mörg dæmi,