Heilsuvernd - 01.12.1952, Page 6
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Hversvegna?
- Vegnaþess.
Fyrir 60 árum las ég bók með þessu heiti. Bókin inni-
hélt spurningar um ýmis aflfræðileg og efnisleg mál og
svör við þeim í stuttu máli og á góðri íslenzku, eins og
vænta mátti af þýðanda. En hann var Guðmundur Magn-
ússon, síðar prófessor við Læknaskólann, ágætur lærdóms-
maður og kennari.
Mér hefir oft komið til hugar síðan, hversvegna ekki
má svara læknisfræðilegum og sjúkdómafræðilegum
spurningum á líkan hátt og gert var í umgetinni bók, svo
sem: Af hverju stafar þessi eða hinn sjúkdómur? Hvaða
ráð eru til úrbóta? Hvað eru sjúkdómar? Hvað er heil-
brigði?
Það er vitað mál, að sjúkdóma taka menn ekki af til-
viljun. Þeir koma allir af orsökum, og hverjar eru þær?
Og hver eru helztu ráðin til að koma í veg fyrir þá? Því
að betra er að styðja en reisa. Það má kalla lélega mann-
björg að byrja þá fyrst að lækna menn t. d. af botnlanga-
bólgu, þegar veikin er komin á lífshættulegt stig.
Segja mætti, að engan þurfi að lækna, fyrr en hann er