Heilsuvernd - 01.12.1952, Side 10

Heilsuvernd - 01.12.1952, Side 10
102 HEILSUVERND að skipta við hana eins og góðan viðskiptavin. Með þessu svikjum vér sjálfa oss. Niðurstaða vors lærðasta sáiarfræðings, sem nú er ný- látinn, var sú, að menn fæðast óvitar og deyja eivitar. Ég efast ekki um, að þetta er rétt. Vottur þess er hin mikla útbreiðsla hrörnunarsjúkdómanna. Án réttrar næringar geta frumur líkamans ekki innt af höndum fullt starf, andlegt né líkamlegt. En sé fæðan rétt valin, verður starfið gott og vænlegt til vaxandi heilbrigði og þroska. —------- JURTANEYZLA SPARAR LANDRÝMI. Allt ræktanlegt land á jörðinni nemur tæpri ekru (um 4000 fermetrum) á hvern jarðarbúa. Sir John Russel, forstöðumaður tilraunastöðvarinnar í Rothamsted, hefir reiknað út, að til þess að framleiða venjulegt cnskt fæði þurfi 1% ekru (6750 m2) á mann, og af þvi fari % hlutar til framleiðslu á kjöti, en aðeins % hluti (% úr ekru) til framleiðslu á mjólk, kornmat, aldinum og grænmeti. Hinsvegar þarf aðeins % ekru eða um 2000 m2 til að fæða mann, sem borðar jurtafæðu eingöngu. (Honest bread). MIKIL VERÐLÆKKUN Á BÓKUM N. L. F. 1. Fyrst um sinn verða rit N.L.F.Í. seld með þessu verði (upphaflega verðið innan sviga): Heilsan sigrar 3 kr. (4). — Lifandi fæða 20 kr. (28). -— Mataræði og licilsufar 10 kr. (15). — Matur og megin 15 kr. (16). — Menningarplágan mikla, ób. 10 kr. (17), ib. 15 kr. (25), í skinnb. 20 kr. (46). — Nýjar leiðir II 12 kr. (22). — Sjúkum sagt til vegar 10 kr. (15). — Úr viðjum sjúkdóm- anna, ib. 10 kr. (20). — Heilsuvernd frá byrjun (7. árgangar) 80 kr. (125). — Bækurnar verða sendar burðargjaldsfrítt, ef greiðsla fylglr pöntun. J

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.