Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 16

Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 16
HEILSUVERND J. E. Bctrker: Merkileg sjúkdómssaga. (Niðurlag). Lœkningin. Mér hafði farið allmikið fram í legunum, en nú fór mér að versna á ný. Kom mér þá til hugar, að einhverjar nátt- úrlegar orsakir hlytu að liggja til grundvallar fyrir allri þessari vesöld. Ég fór að brjóta heilann um, hvort ekki gæti skeð, að ég hefði trúað um of á kröftuga fæ'ðu og meðul, en þá trú hafði ég fengið að erfðum frá föður mínum — og hvort hinir tveir tugir lækna, sem ég hafði leitað ráða hjá, hefðu ekki heldur átt að breyta um mataræði hjá mér en meðul. Ég tók að lesa mér til um þetta efni og gera smávegis tilraunir á mér með náttúrlegt mataræði, en fór þó mjög gætilega í sakirnar. Smátt og smátt dró ég úr ofneyzlu minni á kjöti, fiski o. fl. Ég minnkaði einnig við mig sykur, ávaxtamauk og önnur sætindi, en hætti mér hinsvegar út í það að borða dálítið af soðnum ávöxtum, síðan hráa ávexti, hina mýkstu, sem unnt var að fá, þá harðari ávexti, blaðsalöt o. s. frv. Og mér til mikillar gleði varð ég þess var, að hver smá- breyting færði mér dálítinn bata. Eg fann minna til í maga að ræða, þótt hætt sé, eins og á sér stað um aðrar eitur- nautnir, t. d. kókaín og morfín. Ungu fólki er vorkunnar- laust að hætta. Og þeir, sem aldrei hafa byrjað, ættu að halda þeirri stefnu. Annars verður hver og einn að gera það upp við sjálfan sig, hvað hann vill leggja í sölurnar fyrir vafasama ánægju: heilsu og velliðan sína og annarra, fjármuni og frelsi. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé eng- um manni samboðið að gera sjálfan sig að þræli eins eða neins, tóbaks eða annars.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.