Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 22
HEILSUVERND
Séra Kristinn Stefánsson:
Ávarp
flutt í útvarj) á merkjasöludegi NLFl 20. september 1952.
Góðir áheyrendur!
I dag, 20. september, er hinn árlegi merkjasöludagur
Náttúrulækningafélags íslands. Eru merkin seld tii ágóða
fyrir heilsuhælissjóð félagsins, og fer sala þeirra fram bæði
í Reykjavik og viða úti um land.
Nú mun ýmsum ekki þykja það mikil tíðindi né girnileg,
að heyra sagt frá merkjasölu, og er mönnum það vorkunn.
Svo mjög tíðkast þær hin síðari ár. Oftast mun þó með
réttu mega segja, að hér helgi tilgangurinn meðalið. Og svo
er því farið með merkjasöluna í dag.
Náttúrulækningafélag íslands er alþjóð kunnugt fyrir
mikið og gagnmerkt menningarstarf. Það var stofnað árið
1939. Félagar þess eru nú 17—18 hundruð að tölu, og starf-
ar það í 10 deildum víðsvegar um landið. Félagið hefir haft
með höndum víðtæka starfsemi. Það hefir gefið út 11
bækur um mataræði og heilbrigðismál og síðustu 7 árin
tímarit, 4 hefti á ári. Eitt aðalstefnumál félagsins er að koma
á fót heilsuhæli, og hefir jörðin Gröf í Hrunamannahreppi
verið keypt í þeim tilgangi, en þar er jarðhiti mikill og skil-
yrði ákjósanleg. Hyggst félagið að hefjast handa á næst-
unni og hefir þegar fengið fjárfestingarleyfi til fram-
kvæmda. Hressingarheimili hefir félagið rekið undanfarin 2