Heilsuvernd - 01.12.1952, Page 18
110
HEILSUVERND
þeirra fengu sig fullsadda af fjögurra klukkustunda varð-
stöðu, voru orðnir þreyttir og hvíldar þurfi og langaði í
sterkt te. En ég bað um að verða settur á nýja fjögurra
stunda vakt, eða þá að ég lagði af stað í langa ferð hjólríð-
andi. Eg kem mjög sjaldan á hjól, en samt hjóla ég leik-
andi hátt á annað hundrað kílómetra á dag.
Lifnaðarhœttir mínir.
Með þvi að búast má við, að einhverja af lesendum mín-
um fýsi að vita, hvernig ég haga störfum mínum og lífs-
venjum, þá skal ég nú lýsa því nákvæmlega, ef einhverjir
kynnu að hafa gagn af því.
Eg fer á fætur klukkan sex á hverjum morgni, þvæ mér
úr köldu sápuvatni frá hvírfli til ilja og kaffæri mig i köldu
vatninu hvað eftir annað. Við þvottinn nota ég ekki svamp
eða þvottapoka, heldur aðeins hendurnar og harðan bursta.
Hendurnar eru hreinni en svampur, og þannig þvær maður
sig og nuddar í senn. Eg þurrka mig með hörðu handklæði,
harðasta og grófasta hörhandklæði, sem ég get fengið, og
nudda mig vel með því. Þá klæði ég mig mjög létt, drekk
stórt glas af vatni, eða vatn og sítrónusafa, og legg svo
af stað í röska 7—9 km göngu. Þegar ég kem heim úr
henni, er ég búinn að fá fyrirtaks matarlyst, en þá tilfinn-
inu þekkja fæstir, sem neyta morgunverðar, um leið og
þeir fara á fætur.
1 morgunmat borða ég hýðis-hafragraut, sem er búinn
til úr grófu haframjöli og hveitihýði til helminga — eftir
vigt — og soðinn í tvær minútur. Venjulega borða ég hann
kaldan með mjólk. Þá fæ ég mér sneið af grófasta heil-
hveitibrauði, sem fáanlegt er, sem ábæti borða ég einhvern
nýjan ávöxt eða salat, og að lokum drekk ég bolla af volgu
kaffi og mjólk til helminga, eða mjög veikt te. Ávaxtamauk
nota ég lítið, af hunangi tek ég það þykka, dökka fram
yfir það glæra, og af sykri nota ég þann dekksta, sem fáan-
legur er.
Að morgunverði loknum tek ég til starfa með ritara mín-