Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 12

Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 12
104 HEILSUVERND sakað þetta fyrirbæri (Richard Doll og A. Bradford Hill), að tóbaksreykingum, einkum sígarettum, muni aðallega eða eingöngu vera um að kenna. Sömuleiðis vakti einn af þekktustu skurðlæknum Ameríku, Alton Ochsner, athygli á því í desember 1940 og aftur í febrúar 1941, að vaxandi fjöldi fólks með lungnakrabba væri, að öllum líkindum, bein afleiðing af vaxandi sígarettureykingum. Og hann ráðleggur öllum þeim óhófsmönnum, er reykja um eða yfir 20 sígarettur á dag, að draga úr neyzlu sinni, eða hætta helzt með öllu, en að öðru leyti að láta röntgen- skoða lungu sin a. m. k. tvisvar á ári um fertugt, og f jórum sinnum á ári um fimmtiu ára aldur og þar yfir. 1 tímariti ameríska læknafélagsins 1. mars 1952 ræðir Ochsner og fleiri um þetta sama efni, og segir hann meðal annars, að árabilið 1938—1948 hafi tala dáinna úr lungna- krabba aukizt í Bandaríkjunum um 144%, úr 6732 árið 1938 í 16450 árið 1948, en á sama tíma hafi dánartala allra tegunda krabbameins aukizt um 31%. Ennfremur að frá 1920 til 1948 hafi dánartala af völdum lungnakrabba, miðað við hverja 100.000 íbúa, tífaldazt, úr 1,1 í 11,3, samfara sívaxandi sígarettureykingum. Wynder og Graham kom- ust að þeirri niðurstöðu, að hóflitlar sígarettureykingar um lengri tíma, væru veigamikið atriði sem orsök krabbameins í lungum. Af 605 sjúklingum (körlum) )með lungnakrabba, sem þeir rannsökuðu, reyndust yfir 96% hafa reykt lengi, um og yfir 20 ár, og mikið, um og yfir 20 sigarettur á dag. Mjög margir aðrir læknar og vísindamenn í ýmsum löndum hafa með rannsóknum sínum um þetta efni komizt að sömu eða svipuðum niðurstöðum. Tóbakið eykur munnvatnsmyndun, a. m. k. meðan á neyzlu þess stendur, en dregur úr matarlyst, stillir hungur- hreyfingar í maga og deyfir sult í bili, en veldur áköfum samdráttum, jafnvel krömpum, í þörmum og ristli. — Verða óvaningar stundum varir við það á heldur óþægi- legan hátt. — Það er undantekningarlaust óhollt fólki rheð veila maga og viðkvæman ristil. Það örvar magann til

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.