Heilsuvernd - 01.12.1952, Qupperneq 19

Heilsuvernd - 01.12.1952, Qupperneq 19
HEILSUVERND 111 um, les honum fyrir og geng um gólf á meðan, allan morg- uninn. Milli morgunverðar og hádegisverðar fæ ég mér glas af vatni eða sítrónuvatni eða þunnt te. Hádegisverður minn er mjög léttur. Venjulega er hann tvær eða þrjár tvíbökur úr grófu heilhveiti og afar veikt Kína-te með mjólk og örlitlum sykri, eða þá grænmeti og ávextir, eða sneið af heilhveitibrauði með smjöri og salati o. s. frv. Síðdegis fæ ég mér einn eða tvo bolla af mjög veiku tei, og þar eð ég hefi árum saman misboðið maganum með sjóð- andi heitum drykkjum, þá bæti ég það nú upp með því að hella köldu vatni í teið eða kaldri mjólk í kaffið. 1 kvöldverð borða ég grænmeti lítið soðið og soðnar eða bakaðar kartöflur með hýðinu. Auk þess borða ég egg og stundum lítið eitt af mjúkum osti, og að lokum fæ ég mér niðursoðna eða nýja ávexti, hrátt salat eða annað þess hátt- ar. I staðinn fyrir grænmeti og kartöflur borða ég oft gróft heilhveitibrauð og salat, búið til úr köldum, soðnum kart- öflusneiðum, höfuðsalati, tómötum, gúrkum, hráu hvitkáli, lauk o. fl. Stöku sinnum fæ ég mér hýðishafragraut með ávöxtum, lítið eitt af mjólkurbúðingi eða annan svipaðan rétt. Hægðir hefi ég eftir morgunverð og aftur síðari hluta dagsins, og stundum í þriðja sinn að kvöldinu. Venjulega hátta ég kl. 11, stundum seinna, og sef eins og steinn. Að minni hyggju er mest hressing í stuttum, djúpum svefni, en ég tel langan svefn bera vott um ófull- komna heilbrigði. Þeir sem vakna eftir langan svefn, óhvíld- ir og slappir, þjást sennilega af hægðatregðu eða ofáti, eða hvorutveggja. Um helgar fer ég út á land í 2—3 daga, þegar færi býðst. Ef ég fæ tveggja daga fri, geng ég 90 km í fjöllum og hæðum, en 140—150 km, ef ég er burtu í 3 daga. Á ferða- lögum haga ég mataræði mínu líkt og heima. Ég bragða varla vín. En ég drekk mikið af áfum, og oft drekk ég þykka súrmjólk.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.