Heilsuvernd - 01.12.1952, Qupperneq 24

Heilsuvernd - 01.12.1952, Qupperneq 24
HEILSUVERND Hressingarheimili N.L.F.Í. að Varmalandi í Borgarfirði tók til starfa laugardaginn 20. júní 1952. Þegar kom fram í júlí, var aðsókn svo mikil, að vísa varð allmörgum frá, og voru þá stundum um og yfir 40 fastir gestir, auk þeirra, sem keyptu lausar máltíðir eða aðrar veitingar. Af 208 dvalargestum var 121 kona, 64 karlar og 23 börn. Meðaldvalartími var tæpir 9 dagar (8,7), og 5 dvöldu mánuð eða lengur. Til samanburðar má geta þess, að hressingarheimili fé- lagsins í Hveragerði sumarið 1951, sem starfaði hálfum mánuði lengur, sóttu 157 dvalargestir, en meðaldvalar- tími var lengri (12,7 d.) og lausasala nokkru meii’i en nú. Tilhögun var að mestu hin sama og sumarið áður. Kl. 7.30 var morgundrykkur (skyrmysa), morgunverður kl. 8.30 (súrmjólk með rúsínum, spíraður rúgur, hveitihýði, haframjöl, skornir hafrar, smábrytjaður arfi, allt hrátt), hádegisverður kl. 12 (spónamatur, heitur jurtaréttur með soðnum eða bökuðum kartöflum og allskonar hrátt græn- meti og rótarávextir), hvíldartími til kl. 14, eftirmiðdags- drykkur kl. 16 (íslenzkt jurtate og veikt fjallagrasate, á sunnudögum var borið með heimabakað brauð), kvöld- verður kl. 18.30 (krúska, brauð, smjör og ostar, mjólk og grænmeti). Háttatími var kl. 22. Á laugardagskvöldum flutti Jónas læknir Kristjánsson jafnan erindi og svaraði fyrirspurnum dvalargesta, og á eftir var borin fram hressing. Vegna mikilla og langvarandi vorkulda var allt útirækt- að grænmeti síðsprottið, og olli það erfiðleikum í byrjun. En úr því rættist von bráðar, og var hrátt grænmeti aðal- fæða sumra gestanna. M. a. var mikið borðað af hráum kartöflum. öll brauð voru bökuð heima og malað í þau

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.