Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 36

Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 36
128 HEILSUVERND Á VÍÐ OG DREIF. Áhrif fæðunnar á fóstrið. í 1. hefti Heilsuverndar þ. á. var sagt frá dýratilraunum, sem sýndu, að vanfóðrun mæðranna um meðgöngutím- ann hafði í för með sér alls- konar sjúkdóma, vanskapanir og missmíði á afkvæmunum. Og áður liefir verið sagt í rit- inu frá merkilegum tilraunum á barnshafandi konum varð- andi áhrif viðurværisins á fósturlát, andvana fæðingar og heilbrigði barnanna. í Fréttabréfi um heilbrigðis- mál birtist nýlega grein um vanskapanir. Þar segir: „Þá er vitað, að næring konunnar kemur mikið við sögu í þessu tilliti. Rússneski læknirinn Ivanovsky veitti því athygli 1923, að er hungursneyð gekk yfir landið, jókst fjöldi þeirra barna, sem fæddust fyrir tím- ann eða andvana, og að ó- skapnaðir og hverskonar van- skapnaðir urðu algengir. í Indlandi og Japan hefir B- fjörefnaskorti oft verið kennt um, hve mikið fæðist þar af börnum andvana, fyrir tím- ann og með ýmsa vanskapn- aði“. í grcininni segir ennfremur frá tilraunum annarra vís- indamanna, sem sýna, að vönt- un vissra fjörefna í fæði móð- urinnar veldur ýmiskonar mis- smíðum á beinagrind afkvæm- Lifðu forfeður Dana á jurta- fæðu? Nálægt Silkiborg á Jótlandi fannst nýlega mannslík í mýri nokkurri í hálfs þriðja metra dýpt. Nákvæmar rannsókn- ir fornleifafræðinga sýndu, að likið var um 2 þúsund ára gamalt. Jarðvegssýrurnar höfðu varið líkið skemmdum, hárið var óskemmt, andlits- drættirnir greinilegir, leður- belti og leðurhúfa létu ekkert á sjá, og sama var að segja um snöruna, sem reyrð var að hálsi líksins og var órækiir vottur þess, hvernig maður- inn liafði látið líf sitt. Við krufningu líksins fannst mikið af hálfmeltum eða ó- meltum mat í maga og þörm- um. Kjötleifar fundust engar. En þarna voru saman komnar einar 18 tegundir af jurtum, fræjum eða ávöxtum, þar á meðal bygg og hörfræ. Enda þótt þessi fornleifa- fundur sanni ekkert af eða á um það, hvort Danir hafi borðað almennt mikið eða litið kjöt á dögum Krists, er liann augljós vottur þess, að á þess- um tíma hafi það þekkzt að nærast eingöngu á jurtafæðu, hversu útbreiddur sem sá sið- ur kann að hafa verið. anna.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.