Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 12
72
HEILSUVERND
er réttilega samsett jurtafæða eitt af hinum nauðsynlegu
skilyrðum, sem gæta verður, ef slíkt á að takast. Sumir
næringarfræðingar ganga jafnvel svo langt að fullyrða, að
kjötát loki leiðinni til fullkominnar heilbrigði. En Guðspek-
in kennir einnig, að kjötát hafi ekki einungis þau áhrif á
líkamann, að hann verði grófari, þyngri á sér og viðnáms-
minni gagnvart sjúkdómum, heldur hafi það og spillandi
áhrif á sálarlífið yfirleitt. Hún heldur því fram, og styðst
þar m. a. við álit sumra nútíma visindamanna, að dýra-
vefir varðveiti, hversu soðnir sem þeir séu, suma eiginleika
þeirra dýra, sem þeir tilheyra. Þegar dýrakjöts er neytt,
tekur því sá, er neytir þess, inn í sig eitthvað af eiginleik-
um og sérkennum dýrsins, — verður ofurlítið dýrslegri, of-
urlítið jarðhverfari og jarðbundnari eftir en áður. Áhrif
í þessa átt eru mest frá holdi stærri dýra, minni frá fugla-
kjöti og fiski, en alls engin frá jurtafæðu. 1 þessu sambandi
er oft bent á það, að jafnvel meðal dýranna sjálfra láti
þessi staðreynd til sín taka. Dýr, sem lifa á jurtafæðu, eins
og til dæmis kýr, geitur, kindur, hestar, páfagaukar, dúfur
og fleiri, hafa hreina líkama og fíngerða og eru yndisleg
á að líta, en dýr þau, sem sjálf eru dýraætur, svo sem til
dæmis tígrisdýr, Ijón, refir, rottur, krákur og mörg önnur,
eru alltaf óhrein, óþrifaleg og þefill. Hin fyrr nefndu dýr,
jurtaæturnar, eru yfirleitt mild og friðsöm, en hin síðar
nefndu, kjötæturnar, grimm og vanstillt.
2. Jurtafæða hefur meira næringargildi en samsvarandi
magn dýrafæðu. Líkaminn þarf á fjórum tegundum efna
að halda til þess að geta haldið sér við. Þau eru: köfnunar-
efni, svo kallað kolhydratefni, kolvetni og sölt eða stein-
efni. Af öllum þessum efnum er meira í jurtafæðu en í
dýrafæðu. Þannig eru t. d. hnetur, baunir, ertur, mjólk
og ostur, auðug að köfnunarefni (eggjahvítu). Hveiti,
hafrar, hrísgrjón og önnur grjón, ávextir og flestar jurta-
tegundir eru auðugust af kolhydrötum, þ. e. sterkju og
sykri. Nærri öll köfnunarefnisfæða og jurtaolía lætur í té
eggjahvítu eða fitu, en hin dýrmætu steinefni, svo sem