Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 13

Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 13
HEILSUVERND 73 járn, potassium, kalk, sóda o. fl., sem hreinsa blóðið, flýta fyrir tæmingu þarma og varna sjúkdómum, er aðallega að finna í jurtaríkinu. — 3. Það mun hafa verið einhvern tíma eftir 1906, að upp- götvuð voru hin svo kölluðu fjörefni, vitamín, í ýmsum fæðutegundum, en þau efni eru lífinu nauðsynleg til vaxtar og viðhalds. Vaneldi mun oftast mega rekja til skorts á einhverjum af þessum fjörefnum. Af allri fæðu er jurta- fæða auðugasta uppspretta þeirra, — sérstaklega þó jurta- fæða í hráu ásigkomulagi, því að suða dregur úr eða eyðir með öllu áhrifamagni margra þessara fjörgjafa. 4. Það, sem telja má jurtafæðu til gildis fram yfir dýra- fæðu, er í stuttu máli þetta: Jurtafæða veldur síður sjúkdómum en dýrafæða, og er í raun og veru ágæt vörn gegn mörgum sjúkdómum. Kjöt er oft mengað hræðilegum sjúkdómum, svo sem krabba- meini og berklaveiki. 1 fimmtu skýrslu sinni til Leyndar- ráðs konungs í Englandi staðhæfði prófessor Gamgee, að einn fimmti hluti þess kjöts, sem neytt er í Englandi, sé af skepnum, sem haldnar séu illkynjuðum sjúkdómum, þeg- ar þær eru deyddar. Mjög margir læknar, sem hafa í sönn- um vísindalegum anda rannsakað áhrif mataræðis á heilsu manna, banna sjúklingum sínum allt kjötát, — ekki að- eins til þess að draga úr kvillum, eins og til dæmis gigt og liðaveiki, heldur einnig til þess að verja þá ýmsum sjúk- dómum, svo sem krabbameini, botnlangabólgu og berkla- veiki. Og það er vitað, að ef menn lifa á jurtafæðu, gróa sár þeirra fyrr en ella, og þeim er síður hætt við hitasótt, en fái þeir hana, leggst hún ekki eins þungt á þá, og ef þeir neyttu dýrafæðu. Maðurinn er að eðlisfari jurtaæta en ekki dýra. Tennur hans líkjast ekki hið minnsta tönnum rándýra, og meltingarfæri hans líkjast ekki meltingarfær- um rándýra, og virðast að flestu leyti betur við hæfi jurta- en dýrafæðu. Jurtafæða er meiri orkugjafi en dýrafæða. Kjötætur gorta stundum mjög af likamskröftum sínum, en þær hafa

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.