Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 24

Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 24
84 HEILSUVERND RAUÐKÁL hefir mjög góð áhrif á kirtlastarfsemi líkamans. Fjörefni A, B og E. GULRÓFUR eru bæði ljúffengar og hollar. Þær eru harðgerar og geta staSiS langt fram á haust. Vaxa mest er fer að skyggja. Úr rófum hefir nú verið unnið lyf, sem líkur eru taldar til að vel muni reynast gegn flogaveiki. Er það þá fyrsta lyfið við þeim sjúkdómi. — Lyf þetta er kallað „Glútamín“. En kannske er það fulldýrt ennþá, þar sem dagskammtur kostar kr. 3200,00. Dr. Bailey, bandariskur læknir, sem stjórnar tilraununum, segir að „Glútamín“ sé fyrsta heilafjörefnið, sem tekizt hafi að fram- leiða og vonir standi til, að með hjálp þess verði hægt að leysa ýmsar gátur heilastarfseminnar. Fregnin greinir ekki, hvort þetta efni sé unnið úr gulrófum. En víst er, að þær eru hollar. Það er aðalatriðiS. Kálið er veigamikill C-fjörefnisgjafi, sem vissulega er of lítið notaður, bæði til mann- og skepnueldis. Gera þyrfti tilraunir meS geymslu á því og öðru káli. Væri ekki hægt að geyma það vel fergt í kassa eða tunnu? í sýru má sjálfsag't geyma það, sé rétt að farið. KARTÖFLUR. Kartaflan er upprunnin í Suður-Ameríku. Og enn í dag vex hún villt í hálendi Ecuador og Peru. Til Evrópu fluttist hún með Spán- verjum á 16. öld, jafnvel ekki öllu síðar en 1535 að taliö er. Hér á landi munu kartöflur fyrst hafa verið ræktaðar að Bessa- stöðum 1758 hjá Hastfer baróni, en séra Björn Halldórsson í Sauð- lauksdal hélt þeirri ræktun áfram og mun af flestum vera talinn frumkvöðull kartöfluræktunar hér. Var hann mikill áhugamaður um garðrækt og frægar eru framkvæmdir hans í Sauðlauksdal á því sviði. En hann hófst þegar handa um þær, er hann fluttist þangað 1752. Allir vita, að kartöflur eru i senn einhver ágætasta og ódýrasta fæða, sem völ er á. Tilraunir hafa verið gerðar með kartöflufæði. Sanna þær, að kartaflan tekur flestu fram um hollustu- og næringargildi. Rúms- ins vegna verður hér aðeins skýrt frá einni slíkri tilraun, sem Irving Fischer, prófessor við Yale háskólann í Bandaríkjunum fékk að gera á 100 föngum, sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum, eins og gengur og gerist. í 6 mánuði voru þeir eingöngu nærðir á soðnum kartöflum og

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.