Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 26
86
HEILSUVERND
SPÍNAT
er upprunniS austur í Asíu. Spínat er auðugt að fjörefnum og
jarðefnum, sérstaklega járni. Spínat er bæði blóðhreinsandi og
blóðaukandi, hefir örvandi áhrif á efnaskipti líkamans og talið
mikilvægt börnum til vaxtar og þroska.
TÓM AT AR.
Meðal ýmsra þjóðflokka í Suð-Austurlöndum eru tómatar aðal-
fæða, borðaðir hráir með lauk, enda eru þeir góðir þannig.
Tómatinn er talinn næring sérstaklega góð blóði og taugum.
Sumir telja hann góðan við nýrnasteinum.
Með næringartilraunum hefur sannast, að tómatar innihalda
lifefni, sem efnafræðingum hefur ekki tekist að einangra eða
greina.
„Vegurinn til heilbrigði liggur gegnum eldhúsið".
Dr. med. Olav Sopp.
Náttúrulækningafélag Akureyrar hélt aðalfund sinn 11. apríl. í
stjórn voru kjörnir: Jón Kristjánsson, verzlunarmaður, form.; frú
Guðríður Brynjólfsdóttir, frú Jónína Steinþórsdóttir, Páll Sigur-
geirsson, kaupm. og Árni Ásbjarnarson, bóndi.
Um síðustu áramót voru í félaginu 157, þar af 5 ævifélagar.
Staka send Heilsuvernd.
Til að vinna verkin góð
og vænstu finna gæði,
er heims að tvinna í hverja þjóð
heilbrigðinnar fræði.
Bjarni Guðmundsson frá Hörgsholti.
Dr. Anton J. Carlson, fyrrverandi prófessor við háskólann í
Chicago, 'heimskunnur lifeðlisfræðingur, kallar agene taugaeitur
og telur það eina af orsökum drykkjufýsnar. Ummyndun eggja-
hvítuefnanna af völdum bleikingarefnisins valdi mjög oft tauga-
veiklun, sem leiði til ofdrykkju.